Sjálfstætt fólk, sjálfstæð þjóð

Meginástæða þess að ég gef kost á mér til að gegna embætti forseta Íslands er sú að ég tel ógnir steðja að okkar dýrmæta lýðveldi. Þessar hættur leyna á sér og eru misjafnlega sýnilegar fólki; bæði eftir því sem það hefur upplifað sjálft og líka eftir því sem það vill sjá og heyra. Ég veit að það getur stundum verið þægilegt að líta undan og e.t.v. gerum við það flest í æ ríkara mæli eftir því sem við þurfum stöðugt að meðtaka fleiri fréttir og nýjan fróðleik í gegnum allar þær leiðir sem fjölmiðlar og netheimar nútímans nýta til að ná til okkar.

Ógnirnar sem steðja að íslensku lýðræði felast að mínu viti í því að fulltrúalýðræðið er að fjarlægjast hinn upphaflega tilgang sinn. Við höfum um langa hríð skipað okkur í ólíkar fylkingar og greitt ólíkum stjórnmálaflokkum atkvæði til þess að tryggja áherslumálum okkar brautargengi. Valdið hefur komið frá fólkinu. Gjarnan mótar stór hópur stefnuna, t.d. á flokksþingum, sem setur svo fulltrúa sína til verka á Alþingi eða í sveitarstjórnum. Þannig höfum við í senn hvatt fólk til sjálfstæðrar ákvarðanatöku og þátttöku á sviði stjórnmálanna. Við höfum laðað fram heilbrigð skoðanaskipti innan flokkanna og á milli þeirra og staðið vörð um sjálfstæði þjóðarinnar og sameiginleg hagsmunamál hennar. En nú er hún Snorrabúð stekkur. Eða hvað? Getur verið að feðranna frægð sé „fallin í gleymsku og dá“ eins og Jónas Hallgrímsson gerði svo eftirminnilega að yrkisefni sínu í ljóðinu um Ísland farsældafrón.

Það var heimssögulegur atburður þegar Íslendingar stofnuðu Alþingi á Þingvöllum árið 930. Alþingi var í senn löggjafarþing og æðsti dómstóll þjóðarinnar allt þar til við samþykktum Gamla sáttmála og gengum Noregskonungi á hönd. Um leið seldum við erlendu valdi sjálfstæði okkar og endurheimtum það ekki fyrr en í áföngum meira en sex hundruð árum síðar. Sagan má aldrei endurtaka sig en blikur eru því miður á lofti. Eina vörnin er fólgin í virku lýðræði þar sem hver og einn fær tækifæri til þess að taka þátt og leggja sitt af mörkum.

Lýðræði er nefnilega ekki áhorfendasport. Það byggist ekki upp á því að nokkrir útvaldir mæti til leiks og heyi keppnina á eigin forsendum. Þvert á móti. Keppendur eru valdir af grasrótinni og fá ekki einungis fyrirmælin um erindi sitt frá stuðningsfólkinu heldur einnig aðhaldið í gegnum samtal þar sem allir geta tjáð sig og hafa sama aðgang að ræðustólnum. Þannig eru grundvallaratriði lýðræðisins. Um þau vil ég standa vörð og ég tel ekki veita af því að hvatning og aðhald í þeim efnum komi frá eina embættismanni þjóðarinnar sem kosinn er beinni og milliliðalausri lýðræðislegri kosningu – forsetanum. Sérstaklega þegar sú staða virðist blasa við að stór hluti stjórnmálamanna sé smám saman að missa sjónar á aðalatriðunum í hlutverki sínu og skyldum gagnvart umbjóðendum sínum og lýðræðinu.

Rót lýðræðisins er hjá almenningi, ekki hjá stjórnmálaflokkunum sjálfum, stórfyrirtækjum sem seilast til áhrifa, fræðimönnum sem tala í krafti sérþekkingar, embættismönnum eða alþjóðlegum stofnunum. Í stað þess að stjórnað sé með reglum sem eiga sér lýðræðislega rót í samfélagi sjálfstæðra einstaklinga færist ákvarðanatakan yfir til flokka sem í framkvæmd sýna viðleitni í þá átt að stýra með valdboði og leggja áherslu á hlýðni við yfirvald fremur en sjálfræði einstaklingsins og þátttöku hans í stjórn sinna mála. Undir merkjum fagmennsku setja þrýstihóparnir gjarnan fram stefnuskrár sem klæddar eru í búning almannahagsmuna en þjóna í reynd þröngum sérhagsmunum.

Á hinu alþjóðlega sviði eru sumir þessara þrýstihópa svo stórir, valdamiklir og fjársterkir að smáríki eins og Ísland mega sín lítils í leiknum. Undan þrýstingi á slíkum vettvangi, t.d. meðal embættismanna ESB, meðal auðjöfra í Davos eða fulltrúa (ólýðræðislegra) stórvelda á vettvangi SÞ, mega fulltrúar Íslands ekki kikna. Þeirra hlutverk er ekki að starfa í þágu sérhagsmuna víða um heim heldur að verja stjórnarskrá lýðveldisins og standa vörð um þjóðarhag á breiðum faglegum, efnahagslegum og þjóðhagslegum grunni.

Ég hef áhyggjur af því að þjóðkjörnir stjórnmálamenn og ekki síst ráðamenn íslenskrar þjóðar, séu að fjarlægjast lýðræðislegar skyldur sínar og í sumum tilfellum, kannski óafvitandi, að þróast yfir í það að verða einhverskonar embættismenn sem ganga erinda alls kyns þrýstihópa og lúta jafnvel erlendu valdi þannig að gengið sé á stjórnarskrárvarin réttindi fólksins í landinu. Í slíkum tilfellum tel ég að forseti Íslands eigi að nýta sér þann rétt sem hann hefur til þess að vísa málum beint til þjóðarinnar. Það er að mínu viti stærsta verkefni embættis forseta Íslands að næra, eins og frekast er unnt, sjálfstæða ákvarðanatöku einstaklinganna í heilbrigðu lýðræðisríki og standa vörð um sjálfstæði þjóðarinnar í farsælu samstarfi við aðrar þjóðir.

[Grein þessi birtist fyrst á visir.is 26. janúar 2024].


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þakka þér Arnar Þór fyrir þennan og alla þína góðu pistla.

Ég er þér hjartanlega sammála. Ég hef áhyggjur af stöðu Alþingis og þeirra sem skipa þar sæti. Mér hefur fundist lítið sem ekkert koma frá þingheimi sem máli skiptir fyrir þjóð okkar. Fjölmörg mál fara í gegnum þingið án alvarlegra athugasemda og stjórnarþingmenn samþykkja athugasemdarlaust mál sem þeir ættu í samræmi við stefnu flokka sinna að andmæla. Til hvers erum við annars að kjósa þetta fólk á þing ef það sinnir ekki eftirlitsskildu sinni gagnvart ráðherrum og öðrum embættum ríkisins?

Við þurfum einmitt forseta sem tekur á slíkum málum og er tilbúinn að láta mál í dóm þjóðarinnar einkum mál sem skipta okkur öll máli og varðar sjálfstæði okkar sem þjóðar.

Ég sé þig fyrir mér sem slíkan forseta sem við þurfum á að halda.

Tómas Ibsen Halldórsson, 26.1.2024 kl. 15:40

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Vel skrifað Arnar Þór
Mér finnst reyndar ótrúlegt að enginn sýni viðbrögð við svari Bjarna í Silfrinu 
þegar stærsti flokkur Íslands og handhafi dómsmálaráðuneytisins síðastu áratugi var gerður í spurningu fréttamanns ábyrgur fyrir stöðu hælisleitanda

Það hefur ekki verið hægt að koma umbótum í gegnum Alþingi - svo furðar fólk sig á að Trump skuli fá fylgi

Grímur Kjartansson, 26.1.2024 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband