Á tímamótum

Evrópskir "leiðtogar" sem sátu kindarlegir undir ræðu J.D. Vance um daginn voru skömmustulegir vegna þess að þau skildu strax að allir aðrir sáu að þau voru hugmyndafræðilega nakin. Allt fína talið þeirra um "frelsi" og "lýðræði" var fokið út í vindinn, því nú mega allir vita að frelsis- og lýðræðisást þeirra er fölsk og innantóm, sbr. það sem viðgengst í heimalöndum þeirra sjálfra, sbr. t.d. Þýskaland og Bretland. Hvernig á að vera hægt að skilja þessa öfugþróun, þar sem ríkisstjórnir þjóðríkjanna misvirða eigin stjórnarskrár í framkvæmd - og reyna jafnvel að setja lög sem grafa undan réttaröryggi borgaranna og veikja innlent löggjafarvald? Hvernig stendur á því að Evrópuríkin keppast við að flytja inn unga menn frá fjarlægum löndum og hýsa þá, fæða og klæða á kostnað skattgreiðenda sem njóta ekki sambærilegrar þjónustu? Hvernig stendur á því að engu virðist skipta hvaða flokkar eru kosnir, því allir framkvæma þessar sömu stefnur? Hvers vegna eru t.d. flestir Evrópuleiðtogar svona á móti friðarviðræðum og heimta meira stríð? Illa er fyrir okkur komið ef nota á stríð til að breiða yfir eitthvað sem þolir ekki dagsljósið.

Varla nokkur maður vill til þess hugsa að stríðsæsingarnar, ritskoðunin og sviksemin við eigin þjóðir hafi mögulega eitthvað með þær 4,7 trilljónir dollara sem virðast hafa runnið úr sjóðum Bandaríkjanna undir woke-stjórn Biden bandaríkjaforseta. Margt þyrfti að endurskoða í orðum og verkum síðustu ára ef í ljós kæmi að íslenskir fræðimenn, blaðamenn, fjölmiðlar, stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar hafi fengið greitt fyrir að halda tilteknum sjónarmiðum á lofti, en rægja önnur, snúa staðreyndum á hvolf, t.d. með því að segja í (í anda Orwells) að stríð sé friður, ánauð sé frelsi og að fáfræði sé styrkur. En vonandi sýndu Íslendingar meira siðferðilegt viðnám og seldu ekki sálu sína fyrir peninga sem áttu að vera órekjanlegir. 

Ný Bandaríkjastjórn vinnur svo hratt að því að afhjúpa myrkraverk hinnar fyrri að vindáttin snýst nú leifturhratt. Afleiðingarnar eru þegar byrjaðar að koma fram, t.d. í því hvernig allt í einu má nú ræða opinberlega um hugsanlega skaðsemi "bóluefnanna góðu" gegn "veirunni skæðu". Hér er t.d. einn helsti málsvari lyfjasprautanna farinn að spyrja býsna alvarlegra spurninga

Við stöndum á tímamótum. Mikil umskipti eru að eiga sér stað, jafnvel pólskipti í pólitík og frjálsri umræðu. Uppgjörið má ekki einkennast af reiði eða hefndarþorsta, heldur er þetta tækifæri til lærdóms. Vonandi lærum við öll okkar lexíur af því sem gerst hefur. 

 


Við erum (hugsandi) menn en ekki alifuglar

Þessi frétt um froðukenndan málflutning hagsmunaaðila, stjórnmálamanna (og fréttamanna) kallar á við skoðum hlutina í samhengi.

Eftir gönguferð í góðu veðri í gær, þar sem litlir kassar (hús) í öllum gerðum blöstu við, átti ég samtal við dóttur mína um sjónvarpið, þar sem ég spáði því að hún gæti átt erfitt með að skýra út fyrir sínum börnum litlu kassana sem fólk notaði til að meðtaka sérhannaðan sýndarveruleika, "skemmtiefni" og misjafnlega gagnlegan fróðleik frá ríkisreknum og hagsmunadrifnum fréttastofum. Eftir örfá ár verða sjónvörp orðin að forngripum. Þegar "imbakassinn" hverfur sparast vonandi mikill tími og minna verður innbyrt af hræðsluáróðri og óhollri froðu. 

Sjónvarpið er vissulega ekki alslæmt. Fyrir kemur að þar bregði fyrir nytsamlegu efni. Í gær kom upp í hendurnar á mér bók sem talsvert var hampað í sjónvarpi eftir fjármálahrunið 2008, m.a.s. af æðstu prestum pólitísks rétttrúnaðar þess tíma (í Silfri Egils Helgasonar). Bókin heitir "Confessions of an Economic Hit Man" eftir John Perkins. 

Á þessu bloggi hefur a.m.k. tvisvar verið sagt frá því a Alþjóðabankinn hafi týnt 41 milljarði dollara í fyrra sem merktir voru "loftslagsbaráttu". Fólk sem er forritað til að trúa því sem kemur út úr litlu sjónvarpskössunum hefur ekki viljað trúa þessu, en hér er þetta samt sem áður svart á hvítu.

Hvernig tengist þetta bók J. Perkins? Jú, fremst í bókinni má finna eftirfarandi texta: 

Economic hit men (EHM) are highly paid professionals who cheat countries around the globe out of trillions of dollars. They funnel money from the World Bank, the US Agency for International Development (USAID), and other foreign "aid" organizations into the coffers of huge coprorations and the pockets of a few wealthy families who control the planet´s natulal resources. Their tools include fraudulent financial reports, rigged elections, payoffs, extortion, sex and murder. They play a game as old as empire, but one that has taken on new and terrifying dimensions during this time of globalization. 

I should know; I was an EHM.

Í niðurlagi bókarinnar hvetur Perkins lesandann til að lesa milli línanna í fréttum, gleypa ekki allt hrátt, trúa ekki öllu. Hann útskýrir að stærstu fréttamiðlar heims eru í eigu örfárra fyrirtækja og að fjölmiðlarnir séu hluti af hlutafélagavæddu stjórnkerfi, þar sem peningalegir hagsmunir örfárra ráði för með aðstoð fámennrar stéttar (e. elite) embættismanna, fréttamanna, stjórnmálamanna o.fl. sem stýrast m.a. af græðgi, ótta og eigingirni. Frammi fyrir þessu sé það skylda okkar að greina sannleikann undir yfirborðinu og afhjúpa hann í samtölum við vini og fjölskyldu: Láta orðið berast. 

Í lokaorðum sínum segir Perkins að við þurfum ekkert minna en byltingu í nálgun okkar gagnvart menntun, þar sem við valdeflum okkur sjálf (og börnin okkar) og gefum okkur leyfi til að hugsa, efast og setja gott fordæmi með orðum okkar og athöfnum, minnug þess að forfeður okkar eru að horfa yfir öxlina á okkur og að framtíð barnanna okkar sé háð því að við látum samfélag okkar ekki verða græðgi, óhófi, neysluhyggju og eyðileggingu að bráð.

Og ef þér tókst að lesa svona langt, þá eru hér löngu tímabær verðlaun sem þú átt skilið að fá. Þetta er nýi tíminn. Hann er kominn á þröskuldinn.  

P.S. Í framhaldi af umfjöllun minni í gær er vert að benda á viðtal Morgunblaðsins við Stefán Má Stefánsson prófessor, þar sem Stefán gerir einmitt það sem Perkins hvetur okkur til, þ.e. að miðla af greind, menntun, reynslu og þekkingu til að vara við og benda á staðreyndir.  

 


mbl.is „Verra en það sem troðið var ofan í kokið á okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískir fjandvinir sameinast um bókun 35, gegn hagsmunum kjósenda sinna. Af hverju?

Nú styttist óðum í formannskjör í Sjálfstæðisflokknum. Hvorug frambjóðendanna hafa lýst sig andvígar frumvarpinu um bókun 35 sem fráfarandi formaður og varaformaður hafa ítrekað reynt að koma í gegnum Alþingi og núverandi utanríkisráðherra hefur tekið óbreytt upp á sína arma. Þarna má sjá pólitíska andstæðinga (sem allir hafa á fyrri stigum lýst trúnaði við Sjálfstæðisstefnuna) sameinast um það að vinna í þágu ESB, gjaldfella íslensk lög og veikja stöðu Alþingis. Þeir sem vija halda tryggð við hina góðu og klassísku stefnu Sjálfstæðisflokksins verða að finna sér annan flokk, því ekki eru líkur á að formannskandídatarnir muni breyta um stefnu fráfarandi forystu í þessu mikilvæga efni. Frumvarpið hljóðar svo: 

Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum ef þau eru ósamrýmanleg öðrum stjórnvaldsfyrirmælum.

Óhætt er að fullyrða að lítill minnihluti alþingismanna les allar þær skuldbindingar sem fólgnar eru í þeim fjölda EES reglna sem innleiddar eru í massavís í íslensk lög á hverju ári. Þetta er í raun opinn krani og hefur verið í 30 ár, án þess að samningsbundnu neitunarvaldi Íslands hafi nokkru sinni verið beitt. Þetta er óvönduð færibandavinna, en ekki löggjafarstarf. Þetta afhjúpast í því hvernig innleiðingin fer fram, þ.e. með einfaldri þingsályktun, en ekki með hefðbundnu ferli löggjafar, þ.e. að undangengnum þremur umræðum. Þessi aðferð við innleiðingu reglna sem eiga að hafa hér lagagildi stenst í reynd ekki stjórnarskrá. 

Með innleiðingu á reglum ESB í massavís hafa þingmenn innleitt og þannig samþykkt ótal skuldbindingar fyrir hönd íslenska ríkisins sem allar geta yfirtrompað almenn lög frá Alþingi verði frumvarpið um bókun 35 að lögum. Til að staðreyna þetta getur fólk farið inn á vef Alþingis og skoðað hvað þar er í gangi. Á 5 mínútum nú áðan valdi ég, af handahófi, reglugerð nr. 1228/2003 sem finna má hér. 

Skuldbindingar sem verið var að samþykkja með þeirri innleiðingu, fyrir hönd íslenska ríkisins, eru þar "i lange baner". Þar dugar að renna yfir fyrstu blaðsíðurnar: Dæmi: 

-  Stuðla skal að sköpun raunverulegs innri markaðar á sviði raforku með því að auka viðskipti með raforku, sem eru sem stendur vanþróuu í samanburði við önnur svið efnahagslífsins. 

- Ríki hindri ekki viðskipti með raforku yfir landamæri

- Auka samkeppn á innri markaðnum með raforku

Þetta litla dæmi sem áréttar ófarir Norðmanna vega sæstrengja til ESB er til áminningar um að þessi vangæsla íslenskra ráðamanna getur ekki endað nema með ósköpum. 

Íslendingar hafa aldrei samþykkt - og Alþingi hefur aldrei formlega viðurkennt - að veita alþjóðlegum stofnunum vald til að binda hendur íslenskra yfirvalda. Til þess þarf stjórnarskrárbreytingu. 

Í dag kl. 14 hefst í Valhöll málþing um "áform ríkisstjórnar Íslands í Evrópumálum". Þótt ég verði því miður fjarverandi hvet ég alla áhugasama til að mæta og taka þátt í umræðum. 

 

 

 


RÚV er risaeðla sem getur ekki lifað í frjálsu umhverfi hins nýja tíma

Ég tilheyri (ennþá) fámennum en ört vaxandi minnihlutahópi, sem kveikir aldrei - og þá meina ég aldrei nokkurn tímann - ótilneyddur á fréttatíma Rúv. Venjuleg nauðung, svo sem hótun um beint ofbeldi myndi ekki duga, enda er það lágmarksréttur hvers manns að mega verja sig. En nóg um það. Í gærkvöldi gerðist sem sagt þessi sjaldgæfi viðburður, að ég horfði á upphaf fréttatíma Rúv vegna þess að annar maður kveikti á þessu kl. (19) í gærkvöldi. 

Á þessum fyrstu mínútum sannfærðist ég enn og aftur um þarfleysi Rúv í nútímasamfélagi og furðaði mig auk þess á fréttamatinu: Fyrsta frétt var um kjarabaráttu hreingerningarfólks á Íslandi, þar sem fréttastofan sjónvarpaði m.a. þeirri staðhæfingu að einhverjir í þeim hópi hefðu þurft að "pissa í fötu" við störf sín vegna álags. Vissulega dapurt ef rétt er, en ætti ekki að vera fyrsta frétt. 

Aðalfréttin mætti afgangi, og þar huldi umfjöllun Rúv jafnmikið og hún upplýsti: Ráða mátti af "fréttaflutningi" Rúv að ræða varaforseta USA á öryggisráðsstefnu í München hefði verið léttvægt grín og m.a. snúist um Gretu Thunberg og Musk. Svo var ekki og það er tímabært að þjóðin sem byggir þessa eyju hér norður í hafi hætti að taka við gerilsneyddum upplýsingum frá fréttastofu Rúv. Ræða J.D. Vance var ekkert minna en sögulegur stórviðburður, sem markar skýr tímamót í varnarmálapólitík Evrópu á 21. öld. Flestir leiðtogar sátu þöglir undir ræðunni og áttuðu sig á því að þeir þurfa nú að endurhugsa alla sína nálgun og breyta um takt, strax í dag, ef þeir ætla ekki að líta út eins og steingerðar risaeðlur: Áframhaldandi ritskoðunartilburðir munu slá þau sjálf í andlitið; orðræða í stíl kommúnista um falsfréttir og rangar / misvísandi upplýsingar (e. misinformation) mun ekki veita neina vörn; klassískt frjálslyndi mun leysa af hólmi gervi-frjálslyndið sem (ókjörnir) leiðtogar ESB og ráðherrar á Íslandi hafa aðhyllst undir því yfirskini að þau séu að "vernda almenning" og "verja lýðræðið". Þetta er allt saman búið og nú þarf ESB í þokkabót að fara að taka ábyrgð á eigin vörnum, sem þýðir í stuttu máli að heimatilbúinn sósíalismi, þar sem peningum almennings er eytt í gæluverkefni stjórnmálamanna, getur ekki lengur viðgengist. Auk þess verða menn að taka ábyrgð á landamærum sínum. Þetta er hinn nýi veruleiki og þeir sem vilja kynnast honum ættu frekar að horfa beint á ræðuna sjálfir, en að móttaka hann í fitusprengdu og gerilsneyddu formi frá ríkisrekinni fréttastofu Rúv. Ræðuna má t.d. sjá hér - og áhugasömum er bent á að þegar Vance mælir fram lykilsetningu í anda Voltaire sem er í raun hornsteinn klassísks frjálslyndis, þá bregður utanríkisráðherra Íslands, Þorgerði Katrínu, fyrir á myndinni (sjá ca. 8.58-9.05), en þá gerist það "óvænta" að þessi helsti talsmaður "frjálslyndis" (lesist: gervi-frjálslyndis) á Íslandi finnur ekki hjá sér neinn vilja til að klappa. Myndskeiðið segir meira en mörg orð. Ræðan í heild segir meira en "frétt" Rúv í gær. 

Í anda Cato hins gamla ætti ég að ljúka öllum pistlum á sömu setningu: "Að lokum legg ég til að RÚV (og ritskoðunarnefndin ... afsakið "fjölmiðlanefnd" verði lögð niður". 

  

 


Hvað hefur nýr Bandaríkjaforseti eiginlega gert?

Á Íslandi ríkir pólitískt hnignunarástand. Grafið hefur verið undan tiltrú á getu okkar til stjórna okkur sjálf og til að vera fullvalda þjóð. Þessi þróun, þar sem þjóðríkið hefur verið gert veikara með opnum landamærum og fjárvana lögreglu, og með þjónkun gagnvart ólýðræðislegu fjarlægu valdi, hefur orðið sífellt meira áberandi. Þessi öfugþróun er engin tilviljun, heldur afleiðing þess að við höfum setið uppi með atvinnustjórnmálamenn sem segja eitt en gera annað. Í framkvæmd birtist þetta í því að litlu skiptir hvaða flokkar sitja í stjórn, allir ganga erinda ESB, WEF o.fl., hvort sem þeir gera sér fulla grein fyrir því eða ekki.

En nú kveður við nýjan tón vestan hafs. Trump var kosinn af meirihluta þjóðarinnar vegna loforða sem hann gaf ... og virðist ætla að efna, sem hljómar ótrúlega í eyrum kjósenda sem vanir eru öðru. Eins og heyra má í ríkisreknum fjölmiðlum og í máli íslenskra þingmanna (núverandi og fyrrverandi) þá eru þetta hræðilegar fréttir. 

Hvað hefur Donald Trump gert? Hann hefur bannað öllum körlum (sem hafa tekið lyf eða gengist undir skurðaðgerðir og vilja láta líta á sig sem konur) að keppa í kvennaíþróttum og stöðvað kynleiðréttingaraðgerðir á unglingum. Hann hefur boðið öllum bandarískum hermönnum, sem voru reknir fyrir að neita að taka mRNA-bóluefnin, aftur í herinn – og það með fullri afturvirkri launagreiðslu. Hann hefur fyrirskipað að ríkisstarfsmenn hætti dyggðaskreytingu á borð við „þetta eru fornöfnin mín“ í tölvupóstum stjórnvalda. Hann hefur hótað að hækka tolla og skipað nýja tegund fólks í opinber embætti, þ.e. fólk sem er annt um landið sitt, landamæragæslu og innlenda lagasetningu. Þetta hefur leitt til þess að skrúfað hefur verið fyrir straum ólöglegra innflytjenda á sama tíma og brottvísanir eru hafnar - á methraða. Hann hefur dregið Bandaríkin út úr Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO). Hann hefur hent kolefnishlutleysismarkmiðum út úm gluggann, sbr. Parísarsamkomulagið.usa

Hann hefur skrúfað fyrir stjórnlausa eyðslu á almannafé í rafbílakaup og í rafhleðslustöðvar. DEI (Diversity, Equity, Inclusion) er horfið úr bandarískri stjórnsýslu og hann hefur hótað að skera niður styrki til háskóla sem halda því áfram. Undir stjórn DT er byrjað að skera niður útbólgnar ríkisstofnanir. Flett hefur verið ofan af hræðilegri spillingu í útgjöldum USAID í gæluverkefni vinstrimanna, þar á meðal til að stýra dagskrárvaldi í meginstraumsmiðlum sem hafa nánast allir verið á fóðrum hjá USAID. Hann hefur látið ESB líta mjög illa út með því að boða friðarviðræður til að ljúka Úkraínustríðinu, því ESB (og íslenskir utanríkisráherrar) hafa ekkert gert annað en að kalla eftir meira blóði án þess að leggja fram neinar hugmyndir um hvernig binda megi enda á manndrápin. Trump boðar endurskipulagningu í Miðausturlöndum sem gætu gefið Palestínumönnum nýja von í nýju og betra umhverfi og Ísraelsmönnum von um frið. Síðast en ekki síst hefur hann gert RFK jr. að heilbrigðisráðherra sem mun varpa skæru kastljósi á spilltan lyfjaiðnað, matvælaiðnað og orkuiðnað í Bandaríkjunum. 

Lítur þetta hræðilega út? Já, fyrir fyrri bandaríkjaforseta (Obama veitti engin andsvör þegar Rússar réðust inn á Krímskaga 2014 + Biden sem gerði ekkert til að koma í veg fyrir innrás Rússa árið 2022).

Jafnvel þótt yfir 90% Íslendinga sé í nöp við Trump, þá breytir það ekki því að hér eru runnir upp nýir tímar, þar sem íslenskum stjórnmálamönnum leyfist ekki lengur að sóa fjármunum í gæluverkefni en vanrækja innviði. Slíkt mun líta mjög illa út í samanburði við forysturíki Vesturlanda, þ.e. BNA. Allir þjngflokkar á Alþingi Íslands hafa brugðist í þessu samhengi með rangri forgangsröðun, sviknum loforðum og verkleysi.  

Lýðræðisflokkurinn fékk örfáar vikur til að heyja kosningabaráttu sl. haust, gegn ofurefli ríkisrekinna flokka. Þetta var barátta Davíðs við Golíat: Barátta fyir því að verja landið og vekja fólkið, gera Ísland aftur að góðu landi til að búa í, þar sem staðinn er vörður um auðlindir landsins og hreina náttúru, unnið gegn vaxtaokri og skipulagðri glæpastarfsemi, talað gegn stríðsæsingu, hömlur settar á sóun almannafjár, loftinu hleypt úr útblásnu ríkisvaldi og unnið gegn ritskoðun. Jafnvel þótt við ofurefli sé að etja, þá er það samviskumál að finna leið til að halda baráttunni áfram.   

 


Nútíminn er "orvelskur"

Með hverjum deginum sem líður tekur samfélag okkar á sig "orvelskari" mynd, sbr. enska orðið Orwellian sem vísar til framtíðarsamfélags í anda George Orwells. Í ljósi aðstæðna hefðu Íslendingar meira gagn af því að kynna sér rit (viðvaranir) Orwells en að sækja auglýst námskeið fyrrum forsætisráðherra um "glæpasögur".

Ný sviðsmynd að teiknast upp: Trump og Pútín töluðu saman í síma í 90 mínútur í gær um framtíð Úkraínu, án þess að Úkraínuforseti væri með í því samtali, þótt Biden hafi ítrekað lýst því yfir annar háttur yrði hafður á. Aðspurður sagði Trump að forsætisráðherra Úkraínu væri ekki lengur með lýðræðislegt umboð. Með símtalinu er hann þó í raun að undirstrika að smáríki eru peð á taflborði stórveldanna, sem eru þrjú, sbr. Orwell: Oceania (BNA), Evrasía (Rússland) og Austasía (Kína). Nýr tími er runninn upp í stað eldri sviðsmyndarinnar, þar sem bandarískt skattfé var m.a. notað til að fjármagna samtök ríkustu hagsmunaaðila / stórfyrirtækja / auðmanna (e. stakeholders) sem miða að því að koma á miðstýrðu, fjarlægu og ólýðræðislegu valdi.  

Stóra myndin er kannski ekki vel sýnileg ennþá á Íslandi, þar sem ríkisfjölmiðillinn brýtur hlutleysisskyldur sínar daglega og reynir að sameina þjóðina í illvilja gegn sumum en ekki öðrum. Illa er komið fyrir þjóð sem hefur týnt Guði en reynir að sameinast í reiði, heift og illvilja. Pólitískur óstöðugleiki hérlendis þrýstir stjórnmálamönnum sífellt lengra inn í heimatilbúinn hliðarveruleika, þar sem stjórnmálaflokkar misnota löggjafarvaldið til að skammta sér fé úr vösum almennings og gæta hagsmuna hvers annars ef framkvæmdin reynist gölluð, því enginn flokkur þolir leiðréttingu á kerfinu. Í hliðarveruleika íslenskra stjórnmála ræða eru kynjamál efst á dagskrá (kynferði ráðherra í ríkisstjórn, kynjamerkingar á klósettum, kynleiðréttingar, kynhneigð, hvort kynin eru 37 eða 73), en ekki um spillinguna sem vellur upp úr öllum pottum þegar lokið er tekið af þeim. Ríkisreknir fjölmiðlar taka þátt í að ýta undir veruleikafirringuna í von um að styrkjakerfi þeirra verið látið óáreitt og blaðamenn taka jafnvel einnig þátt í leiknum í von um að fá góða stöðu sem upplýsingafulltrúar hjá einhverjum af flokkunum. Hér eru þó ekki allir fjölmiðlar og blaðamenn samsekir, því einstaka maður sker sig úr og leitar sannleikans. Ytri aðstæður gera slíkum mönnum þó erfitt fyrir, sbr. það fréttir af því hvernig ESB bar 132 milljónir Evra á fjölmiðla í aðdraganda kosninga til þings ESB og hvernig USAID notaði skattfé almennings til að fjármagna nær alla meginstraumsmiðla (MSM) sem fjölmiðlanefnd í speki sinni vill að við tökum mest mark á (stórir og rótgrónir fjölmiðlar).  

Á námskeiðinu um Orwell, sem Katrín Jakobsdóttir er ekki að fara að kenna, væri líka full ástæða til að ræða um hellislíkingu Platóns, því hún dregur fram hvernig hópur fólks (heil þjóð?) getur orðið föst í hlekkjum fáfræði og farið að líta á skuggamyndir sem raunveruleika í stað þess að nota eigin augu og eigin hyggjuvit til að horfa á veruleikann eins og hann birtist í raun og veru. 

Hvorki íslensk þjóð, né þingmenn, né ný ríkisstjórn getur lengur leyft sér að nota ímyndanir sem áttavita og ganga um með bundið fyrir augun. ESB er peð á taflborði stórveldanna og mun ekki veita Íslandi efnahagslegt né hernaðarlegt skjól á þeim tímum sem nú fara í hönd, hvað svo sem forsætisráðherra segir.

Ísland á að vera málsvari friðar og sátta, land þar sem raunsætt mat er lagt á stöðu landsins og vernd umhverfisins. Landfræðileg staða okkar er bæði veikleiki og styrkur. Við getum átt friðsamleg og vinsamleg samskipti við aðra og notað okkar veiku rödd til að stilla til friðar fremur en að gerast gjammandi smáhundur í bandi stærri ríkja. Ísland er og verður vonandi "eilífðar smáblómið" sem sungið er um, því allir menn og m.a.s. stórveldin veigra sér við að traðka slík blóm í svaðið. 

 


mbl.is Styrkjamálið til saksóknara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úthygli, athyglisbrestur og vanþekking sem rýra virðingu Alþingis

Mögulega er í þessari frétt að finna lýsingu á einhvers konar lágpunkti umræðu í þingsal Alþingis. Fyrsta þingmál nýrrar ríkisstjórnar miðar að því að veikja Alþingi og færa Ísland enn frekar undir vald ESB, sbr. frumvarp um bókun 35. Þingmaður Sjálfstæðisflokks horfir fram hjá þessum kjarna, enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt niður kyndilinn sem honum var ætlað að bera, þ.e. að verja sjálfstæði Íslands og fullveldisrétt okkar. Það má sjá af því hvernig XD hefur oftar en einu sinni reynt að koma þessu frumvarpi í gegnum þingið. Ráðherra Flokks fólksins tekur til máls en heldur augljóslega engum þræði og klikkir svo út með tómri þvælu um ESB og "eitt sett af reglum". Hefur þetta fólk ekki lesið EES samninginn sjálfan? Vita þau ekki að neitunarvald Íslands var forsenda fyrir aðild okkar að EES árið 1993? Er samgönguráðherrann búinn að gleyma því að við sömdum aldrei við ESB og að samningsaðili Íslands hefur í raun stökkbreyst á þeim tíma sem liðinn er frá gerð EES samningsins? Í ofanálag birtast nú fréttir af því að þingmenn fái ekki sjá né ræða innihald bréfa sem Guðlaugur Þór, þáverandi utanríkisráðherra, sendi ESA árið 2020 þar sem hann andmælti Bókun 35 fyrir hönd Íslands. Hversu djúpt þarf Alþingi að sökkva í niðurlægingu áður en almenningur missir þolinmæðina?

 


mbl.is Bryndís: „Er þetta samstaðan?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískt upplausnarástand

Efni þessarar fréttar segir okkur að það er ekki allt með felldu í íslenskri pólitík. Ný þriggja flokka ríkisstjórn leysir af hólmi aðra þriggja flokka stjórn og tekur samstundis við að ljúka þeim þingmálum sem fyrri stjórn hafði ætlað að gera. Ég (og félagar mínir í XL) höfðum bent á að stjórnmálaflokkarnir væru allir samvaxnir, á pyngjunni, því þeir hafa notað löggjafarvaldið til að setja reglur sem gera flokkana að ríkisstofnunum, svo framkvæma fulltrúar þessara sömu flokka lögin með því að borga út þessar (ca. 1000) milljónir á ári. Ef vafaatrið koma upp (t.d. um hvort útgreiðslur til flokka hafi verið lögmætar / skilyrði laga hafi verið uppfyllt), þá taka fulltrúar þessa sama marghöfða skrímslis að sér að úrskurða um málið. Allt vald er þá í raun á einni hendi, löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald. Þetta heitir spilling á góðri íslensku. Vestrænar stjórnarskrár, sérstaklega ákvæði um valddreifingu, áttu að verja okkur fyrir einmitt svona misbeitingu á valdi. 

Það sem verra er, áherslur nýrrar ríkisstjórnar á ljúka málum fyrri stjórnar (m.ö.o. pólitískra andstæðinga sinna) gefur til kynna að Íslandi sé mögulega alls ekki stjórnað frá Austurvelli, heldur allt annars staðar frá. Í nýlegu viðtali sagði Liz Truss að þarna væru að verki skuggaöfl. Í Bandaríkjunum tala æðstu ráðamenn daglega um djúpríkið (deep state) sem þurfi að uppræta, en þar er vísað til samgróninga milli ríkisvaldsins / fjárveitingarvaldsins og þeirra sem eru á ríkisspenanum. En á Íslandi er ekkert slíkt í gangi, er það? Hver sem ýjar að slíku þar er að dreifa samsæriskenningum, enda er vel farið með fé íslenska ríkisins (lesist: almannafé) á Íslandi, ekki satt? Hvergi er verið að sóa þeim peningum, nei nei, ekkert að sjá hér. 

Nú ætlar ný ríkisstjórn að koma í gegn frumvarpi um bókun 35, sem hugnast mun ESB sérlega vel, því ESB vill að komið sé á lagalegri einingu (þ. Gleichschaltung) á öllu EES svæðinu og kann því illa að smáþjóð norður í ballarhafi sé með einhverja fyrirvara, hvað þá beiti samningsbundnu synjunarvaldi. 

Ný ríkisstjórn sýnist einbeitt í því að halda áfram að ganga erinda ESB og NATO í öllu því sem lýtur að stríðsrekstri. 

Ný ríkisstjórn virðist sömuleiðis vera ákveðin í því að leyfa alþjóðlegum gróðafyrirtækjum að nota Ísland og hafið í kringum landið sem ruslakistu með niðurdælingu á alls konar efnum sem gætu borist í grunnvatn og lífríkið að öðru leyti. 

Fyrir hvern eru stjórnvöld að vinna? Er nema von að spurt sé? Íslensk stjórnmál eru að leysast upp fyrir framan augun á okkur. Þau eru að breytast úr því að vera harmleikur í það að vera skrípaleikur, þar sem enginn tekur ábyrgð, þar sem alvarleg mál eru leyst upp í grín, þar sem gerður er öfugsnúningur á gríni og alvöru. 

Ég minni hér aftur á örlög Úkraínu á 20. öld: Úkraína var sjálfstætt ríki í mjög skamman tíma áður en Sovétríkin í raun innlimuðu Úkraínu. Þetta var gert á svo lymskulegan hátt að fæstir gerðu sér grein því sem gerst hafði: Þingið var enn til staðar, en ákvörðunarvaldið í öllu sem máli skiptir hafði verið flutt til Kreml. Ríkisstofnanir voru enn að störfum en voru í raun aðeins orðnar afgreiðslustofnanir fyrir erlent vald. Skattlagning var aukin en peningarnir runnu ekki til að bæta þjónustu við skattgreiðendur í Úkraínu, heldur til að fóðra Sovétið. Örlög Úkraínu eru víti til að varast. 

Hvert er verið að stefna með Ísland? Stendur íslenska ríkið á sterkum og sjálfstæðum fótum? Eru íslenskir embættismenn að verja íslenska hagsmuni eða erlenda ... eða jafnvel bara sína eigin hagsmuni? Svari nú hver fyrir sig. Stóra áhyggjuefnið er þetta: Hver mun koma Íslandi til varnar og framtíðarkynslóðum Íslendinga ef ríkisvaldið á Íslandi er nú að mestu leyti mannað fólki sem er valdhlýðið, spyr engra spurninga, framkvæmir hugsunarlaust það sem þeim er skipað að gera? Hvar á sjálfstæð hugsun heima í kerfi sem týnir yfir 150 hælisleitendum; sem leyfir eldra fólki og öryrkjum ekki að vinna og lifa sómasamlegu lífi; sem notar fjármuni fátæks fólks á Íslandi til að þenja út sjóði erlendis sem gera ríkt fólk ennþá ríkara? 

Á Íslandi ríkir pólitískt upplausnarástand, ekki bara í Reykjavíkurborg, heldur einnig í landsmálunum. Ef stjórnmálin verða ekki endurnýjuð frá grunni með nýju fólki og afturhvarfi til grundvallargilda, þá getum við fljótlega afskrifað sjálfstætt íslenskt lýðveldi, því miður. 


mbl.is Stefán Vagn: Kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innri barátta manns og þjóðar

Ég hef verið í sorgarferli í nokkrar vikur vegna veikinda og andláts tveggja feðra minna. Á því tímabili hef ég fundið hjá mér þörf til að skamma sjálfan mig og aðra. Ég hef skammast í Íslendingum fyrir að trúa öllu sem þeir heyra í fréttatímum ríkisrekinna fjölmiðla; fyrir að afneita inngróinni og landlægri spillingu á Íslandi; fyrir að ráðast á þá sem raska huggulegri og yfirborðslegri heimsmynd Íslendingsins, því íslenskt samfélag er að mörgu leyti eins og fjölskylda alkohólista sem þolir illa að bent sé á stjórnlausa fyllibyttuna sem rót alls vanda. 

Ísland hefur alið marga frábæra einstaklinga. Margir þeirra hafa reyndar kosið að verja stærstum hluta ævinnar erlendis og kannski einmitt þess vegna náð að horfa á Ísland úr nægilegri fjarlægð til að setja fram raunhæfa greiningu. Jónas Hallgrímsson er augljósasta dæmið. Jón Helgason prófessor er annað gott dæmi. Í ljóði Jóns, Í Árnagarði, kemur fyrir eftirfarandi erindi, sem hittir í mark í hvert sinn sem ég les það: 

Vatnsfallið streymir af ókunnum öræfaleiðum,
andblærinn líður um túnið af fjarlægum heiðum,
kveiking í hugskoti handan við myrkvaða voga
hittir í sál minni tundur og glæðist í loga.

Þetta hugsaði ég þegar ég las rit Václav Havel, Vald hinna valdlausu (e. Power of the Powerless), þar sem hann lýsir helsjúku ómenningarástandi Tékkóslóvakíu undir harðstjórn kommúnista, þar sem ómanneskjulegt tækniveldi og skrifstofubákn hafði gjöreytt allri mennsku, allri mannlegri reisn og öllu sem kalla mætti kjarna mannlegrar tilvistar: Trú, heimkynni, þjóðvitund, samfélag o.s.frv. 

Kommúnisminn í öllu sínu þrúgandi veldi snerist nefnilega aðeins um eitt: Um efnishyggju. Áherslan var ekki á andann, heldur efnið. Allt snerist um neyslu, auglýsingamennsku og framleiðslu. Í slíku samfélagi höfðu menn tvo kosti: Að spila með samtímanum og valdinu og taka þátt í þeirri stýrðu hegðun sem stjórnvöld vildu framkalla - eða gerast andófsmenn með allri þeirri áhættu sem því fylgdi. 

36 árum eftir að múrinn hrundi munum við ekki eftir öllum þægu embættismönnunum sem vafalaust áttu glæstan starfsferil innan þessa spillta og klíkuvædda stjórnkerfis. Nei, við munum eftir mönnum eins og Hável og Solzhenitsyn sem lögu allt undir í andófi til að undirstrika að baráttan var ekki við annað fólk um efnisleg verðmæti, því hin raunverulega barátta, þá eins og nú, er milli anda og efnis, milli ljóss og myrkurs, milli góðs og ills. 

Þetta er þriðja ástæðan fyrir sorginni sem ég er að kljást við - og í raun sú þungbærasta, því allt of margir Íslendingar afneita hinni andlegu, guðlegu vídd tilverunnar og reyndu að þagga niður í okkur hjónunum - og svo félögum okkar í Lýðræðisflokknum - þegar við bentum á það sem mestu skiptir, sem er friðar- og kærleiksboðskapur Krists. Íslenskur nútími, með allri sinni sjúklegu og kæfandi efnishyggju, þolir ekki að nafn Jesú eða Guðs sé nefnt. 

Við erum í andlegri baráttu. Hið illa er raunverulegt og sjáanlegt öllum sem það vilja sjá. En ljósið skín í myrkrinu og myrkrið fær ekki höndlað það. 

Í hvoru liðinu ætlar þú að vera, liði ljóssins eða myrkursins?

 


mbl.is „Það var blóðlykt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leitum sannleikans með opnum huga

Kæru Íslendingar, hér er eitthvað til að hugsa um: Samkvæmt Chat GPT finnst ekkert kjördæmi í gjörvallri N-Ameríku þar sem Kamala Harris mældist með meira fylgi en á Íslandi. Gervigreindarforritið gat heldur ekki fundið neina könnun á heimsvísu sem benti til að nokkur önnur þjóð væri eins eindregin í stuðningi við Harris og Íslendingar. 

Hér er ekki við Íslendinga sjálfa að sakast. Við höfum orðið fyrir ákveðnum heilaþvotti og verðum að fara að horfast í augu við að við erum mötuð af einsleitum skoðunum. 

Von mín er sú að fleiri nálgist fréttir með gagnrýnum huga og leiti sannleikans með opnum huga. 

 

chat3

gdp2

chatgdp


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband