29.9.2024 | 10:27
Fréttatilkynning: Stofnun nýs stjórnmálaflokks.
Á vegferð minni í framboði til embættis forseta Íslands fann ég mikinn stuðning víða um land, sem ég er þakklátur fyrir.
Framboðið var heiðarleg tilraun til að vekja Íslendinga til vitundar um þá öfugþróun sem er að eiga sér stað í landsmálum. Innviðir okkar eru við það að brotna, sumir jafnvel þegar brotnir: Löggæslan, landamærin, vegakerfið, menntakerfið, sjúkrahúsin og okkar sameiginlegu siðrænu viðmið. Ef innviðirnir brotna, þá brestur einnig sjálfur grundvöllur samfélagsins, þ.e. sú góða samfélagsgerð sem við Íslendingar höfum búið við fram að þessu. Engin þjóð vill missa frá sér lagasetningarvaldið, landið, innanlandsfriðinn, auðlindir sínar, tungumálið o.fl. Þetta gæti allt gerst innan fárra áratuga. Frammi fyrir þessari alvarlegu stöðu hljótum við að spyrja hver muni koma okkur til bjargar og verja frelsi okkar? Kynni mín af Alþingi, stjórnmálaflokkunum, dómstólunum, háskólunum, stjórnsýslunni o.fl. segir mér að við getum ekki reitt okkur á flokkakerfið, stjórnkerfið, dómskerfið, menntakerfið, fjölmiðlana né stórfyrirtækin. Lausnin er heldur ekki fólgin í að ofurselja okkur fjarlægu, yfirþjóðlegu valdi. Hver er þá að fara að koma okkur til bjargar? Enginn nema við sjálf.
Frammi fyrir aðsteðjandi ógnum er okkur bæði rétt og skylt að verja þá samfélagsgerð sem við sjálf höfum fengið að njóta góðs af, þar sem börnin okkar geta verið frjáls og örugg. Þessi vörn þarf að eiga sér stað á opnum og lýðræðislegum vettvangi, þar sem allir fá að láta rödd sína heyrast á jafnræðisgrunni, skrumskælingarlaust. Þessar leikreglur þarf að virða svo að lýðræðið verði ekki að blekkingarvef. Stjórnmálaflokkar eru kosnir á grundvelli loforða sem þeir sjálfir gefa og gangi þeir á bak orða sinna eiga kjósendur ekki að una því andmælalaust. Stjórnmál snúast um hagsmuni þjóðarinnar, ekki hagsmuni stjórnmálamanna. Lýðræðið má ekki verða flokksræði að bráð. Kjörnir fulltrúar hafa ekki umboð til að leggja ákvörðunarvald í hendur ókjörinna embættismanna. Ákvörðunarfælið fólk á ekki erindi í stjórnmál. Stjórnmálamenn eiga ekki að gerast blaðafulltrúar ráðandi afla í von um að halda starfi sínu. Þrýstihópar mega ekki ná tangarhaldi á ríkisvaldi. Íslenskir kjósendur hafa aldrei samþykkt að alþjóðlegar stofnanir ákvarði stefnu íslenskra stjórnvalda og að sú stefna sé innleidd hér án umræðu.
Mjög alvarleg staða blasir við, bæði hér og í nágrannalöndum okkar. Stjórnmálaflokkar hafa gengist sérhagsmunahópum á hönd, ríkisvald er í síauknum mæli afhent alþjóðlegum stofnunum. Smáríki tala eins og stórveldin fyrirskipa. Stjórnmálaþróunin virðist vera í átt til miðstýrðrar alheimsstjórnar, þar sem þjóðríkin afhenda fjármuni og vald til alþjóðlegra stofnana, samhliða því að tengslin rofna milli kjósenda og þeirra sem fara með valdið. Slíkt andlitslaust og ábyrgðarlaust valdakerfi er ógn við borgaralegt frelsi og virðist raunar miða að því að ná stjórn á öllum þáttum mannlífsins: Orkunotkun okkar; hvað við fáum að sjá og lesa á Internetinu; hvaða lyf við tökum; hvað við fáum að kjósa um. Alræðisógnin sem í þessu felst er greinileg og vaxandi. Frammi fyrir þessu ber okkur að verja frelsi okkar, virkja almenning til lýðræðislegrar þátttöku og standa vörð um Ísland. Sem smáþjóð með merka lýðræðissögu hafa Íslendingar dýrmætan möguleika á að marka sína eigin braut í átt til farsældar með náungakærleik og samvinnu að leiðarljósi.
Landnám Íslands var knúið áfram af frelsisþrá og enn leitar fólk hingað í leit að frelsi. Okkur ber því að verja frelsið og gæði landsins. Við höfum fengið þetta land að gjöf og frelsið í arf. Okkur hefur verið trúað fyrir þessu landi, en við erum að tapa því frá okkur og um leið töpum við auðæfum landsins. Ef ekki kemur sterk rödd inn á þingið til að verja allt það sem við þurfum að vernda þá mun illa fara. Koma verður til móts við unga fólkið sem vill hafa atvinnu og vill eignast þak yfir höfuðið og bændur sem vilja fá möguleika til að lifa af við framleiðslu sína. Koma verður því fólki til aðstoðar sem er að missa hæfileikana til að takast á við lífið og leysa vanda margs eldra fólks sem býr við ótrúlegar fjárskerðingar og bág kjör. Unga fólkið og gamla fólkið verður að hafa von um breytingar: Lausn undan valdboði. Gegn misrétti. Gegn endalausri skattheimtu og græðgisvæðingu.
Á síðustu vikum hafa fjölmargir hvatt mig til að stofna stjórnmálaflokk til að freista þess að snúa þjóðfélagi okkar til betri vegar. Baráttu minni sé alls ekki lokið, hún sé í raun rétt að byrja. Framtíð landsins og íslenskrar þjóðar eru í húfi. Þetta eru verðmæti sem eru þess virði að berjast fyrir og verja.
Á grunni framangreindra sjónarmiða hef ég nú stofnað stjórnmálasamtök, Lýðræðisflokkinn - samtök um sjálfsákvörðunarrétt, í þeim tilgangi að vinna gegn þróun í átt til ofstjórnar og óstjórnar[1] sem er að knésetja íslenskan almenning og íslensk fyrirtæki. Spyrna verður gegn öfugþróun sem birtir verstu hliðar stjórnmálanna, gerir lýðræðið óvirkt, eyðir lýðfrelsi og skapar í reynd nýja yfirstétt sérfræðinga og tæknimanna, sem öðlast sífellt meiri völd án þess að svara til ábyrgðar gagnvart kjósendum. Gömlu flokkarnir eru þá orðnir eins og tveir vængir á ófleygum fugli, hluti af kerfi sem hætt er að þjóna almenningi en þjónar þess í stað sjálfu sér, flokksgæðingum, hagsmunaaðilum og erlendu valdi.
Lýðræðisflokkurinn snýst um að efla lýðræði, frelsi og sjálfsákvörðunarrétt. Þessi nýju stjórnmálasamtök verða byggð á heiðarleika og þeim gildum sem best hafa reynst. Ég er tilbúinn að fara í þessa baráttu með öllu því hugrakka og velviljaða fólki sem vill heyja hana með mér af heilu hjarta, með réttsýni og visku að leiðarljósi, fyrir landið okkar, Ísland.
Garðabær, 29. september 2024,
Arnar Þór Jónsson.
[1] Ofstjórn felur í sér tilhneigingu í átt til alræðis, þar sem ríkið stjórnar öllu. Óstjórn er myndbirting stjórnleysis.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Utanríkisráðherra Íslands er nú lofuð af varautanríkisráðherra Bandaríkjanna fyrir stuðning og hollustu. Bandaríkin hafa verið í stöðugum stríðsrekstri síðustu áratugi og utanríkisráðherra Íslands hefur í orði og verki kastað olíu á ófriðarbálið. En hafa Íslendingar verið spurðir álits? Styðja Íslendingar áframhaldandi stríðsrekstur í Úkraínu? Í umboði hvers talaði Þórdís Kolbrún þegar hún ögraði Rússum og rússneska flotanum? Hvaða siðferðilegu forsendur hefur utanríkisráðherra vopnlausrar þjóðar til að hvetja til hernaðar og blóðsúthellinga? Ætlar hún sjálf fram á vígvöllinn eða telur hún rétt að Íslendingar sendi menn fram til orrustu? Væri ekki rétt að við Íslendingar fengjum að lýsa afstöðu okkar til þessara stríðsæsinga áður en ráðherrar gefa yfirlýsingar í okkar nafni? Hvers konar lítilsvirðing er það fyrir almennum borgurum að nota skattfé þeirra til vopnakaupa, án þess að bera slíka ákvörðun undir dóm þjóðarinnar?
Forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, er skoðanabróðir utanríkisráðherra Íslands í flestum efnum. Trudeau er maður sem ráðherrar í ríkisstjórn Íslands hafa raunar sýnt sérlega vinsemd, m.a. með því að bjóða honum hingað til lands. Hér er ný upptaka af honum að hvetja til stigmögnunar stríðsátakanna í Úkraínu, þar sem hann hvetur til þess að langdrægár eldflaugar, sem framleiddar eru í NATO ríkjum, verði notaðar á skotmörk í Rússlandi. Réttlætingin er sú að Úkraína ,,verði að vinna stríðið" gegn Rússlandi. Öllum sæmilega skýrt hugsandi mönnum er ljóst að Úkraínumenn eru aldrei að fara að vinna þetta stríð. Ástæðan er sú, eins og Trudeau og Þórdís Kolbrún ættu að vita, að Rússar gætu tortímt gjörvöllu mannkyninu aðeins með því að nota brotabrot af vopnabúri sínu. Því er enginn að fara að ,,vinna stríð" gegn Rússum. Ræða Trudeaus er óráðstal óábyrgs manns sem ekki ætlar sjálfur að fórna neinu í þeim blóðsúthellingum sem hann boðar.
Á sama tíma og lægra settir pótintátar hittast á Íslandi, sitja æðstu ráðamenn Bretlands og Bandaríkjanna á fundi til að ráðslaga um hvernig unnt sé að stigmagna stríðsátökin. Hefur einhver heyrt framangreinda ,,leiðtoga" NATO ríkjanna kalla eftir friðsamlegri lausn? Væri orkunni ekki betur varið í friðarviðræður en stríðstal? Hið pólitíska vald á Vesturlöndum er komið í trölla hendur. Fáviska þeirra hefur fært alla heimsbyggðina á barm gjöreyðingarstríðs þriðju heimsstyrjaldarinnar.
Utanríkisráðherra Íslands er holdgervingur þeirrar öfugþróunar sem orðið hefur i vestrænum stjórnmálum á síðustu árum og áratugum. Í stað þess að þjóna almenningi í sínu eigin landi koma ráðamenn fram sem eins konar lénsherrar, þ.e. fulltrúar erlends yfirvalds. Eins og sannir lénsherrar ber þetta fólk meiri umhyggju fyrir yfirþjóðlegum hagsmunum en því að framkvæma vilja almennings og þjóna sínum eigin landsmönnum. Þess í stað ganga þau fram sem fulltrúar valdstjórnarinnar. Þetta er gert með því að tilkynna ákvarðanir sem búið er að taka (án lýðræðislegrar umræðu). Vilji valdhafanna er þá klæddur í búning stjórnvaldsreglna og þær svo notaðar til að skerða bæði frelsi og eignir borgaranna. Þetta veldur því að stöðugt sígur á ógæfuhliðina í stjórnarfarslegu tilliti.
Og nú hefur utanríkisráðherra tilkynnt að hún hyggist bíta höfuðið af skömminni og misvirða stjórnarskrá lýðveldisins með nýrri tilraun til að leggja fram frumvarp um bókun 35. Með frumvarpinu er grafið undan Alþingi og íslensku lýðræði, auk þess sem vegið er að réttaröryggi landsmanna því frumvarpið mun hafa þau áhrif að samþykkt lög frá Alþingi þurfa að víkja fyrir EES reglum verði árekstur þar á milli. Með frumvarpinu vefur utanríkisráðherra snöru um háls síns eigin flokks, kastar rýrð á alla sögu flokksins og pólitíska arfleifð hans, gengisfellir sjálfstæðisstefnuna og rýrir auðvitað sjálfstæði Íslands. Frumvarpið felur í sér misgerð gegn öllum þeim sjálfstæðismönnum (með stóru og litlu essi) sem fórnuðu tíma og fjármunum til að vinna að sjálfstæði Íslands á þeim góða grunni sem lagður var með Sjálfstæðisstefnunni 1929. Með því að hleypa þessu frumvarpi í gegnum þingflokksherbergið hefur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins brugðist sjálfum sér, flokknum og kjósendum. Afleiðingarnar munu birtast í næstu kosningum.
Aðrir þingflokkar hljóta glaðir að vilja lána þingmönnum Sjálfstæðisflokksins reipi í framangreinda snöru, því það er augljóslega hagur allra annarra þingflokka að Sjálfstæðisflokkurinn dingli sem lengst í gálganum sem þeir hafa sjálfir valið sér.
Ef þingmenn, ráðherrar og forseti Íslands hyggjast veita frumvarpinu brautargengi og gera þessi ólög að lögum, þá ganga bregðast þau um leið því drengskaparheiti sem þau hafa öll unnið, þ.e. að standa vörð um stjórnarskrá Íslands.
Öllu hefur verið snúið á hvolf:
We now live in a nation where doctors destroy health, lawyers destroy justice, universities destroy knowledge, governments destroy freedom, the press destroys information, religion destroys morals, and our banks destroy the economy. (Chris Hedges)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)