Prinsipplaus stjórnmál, bremsulaust vald

Ágætur samherji minn, sem stundum vill þó vera fjandvinur minn, sendi mér þau skilaboð í gær að honum þætti ég hafa ,,ákaflega þröngan og allt að því kjánalegan skilning á eðli flokkastjórnmála". Svar mitt var á þá leið að ef það ef telst ,,þröngur" og ,,allt að því kjánalegur" skilningur á stjórnmálum að halda að menn eigi að framfylgja þeim stefnumálum sem þeir hafa gefið sig út fyrir að aðhyllast ... og ef upp er runninn sá tími að flokkastjórnmál í ,,víðum skilningi" gefi mönnum heimild til að víkja frá grunnstefnumálum síns flokks og kasta öllu í hrærivélarskál til að baka klessuköku undir merkjum ,,nútímalegra stjórnmála", þá kalla ég það óheilindi, fals og svik við kjósendur. Stjórnmál sem leyfa slíkt eru þá ekki annað en sviðsetning, þar sem menn leika hlutverk til að ganga í augu kjósenda, skjóta hvern annan með púðurskotum og heyja gervi-stríð, en hlæja svo saman á bak við tjöldin og rækta þar sameiginlega hagsmuni með því að belgja út lífeyrisréttindi, setja menn í nefndir og ráð, skipa í sendiherrastöður o.fl. Kannski er þessi "víði" skilningur betur í takt við raunveruleikann, en hann er óþolandi í augum allra þeirra sem hafa séð ljótleikann á bak við tjöldin - og þeim fer ört fjölgandi. Hinn víði skilningur mun verða kallaður sínu rétta nafni áður en langt um líður.

Hinn ,,víði skilningur" hefur leitt íslensk stjórnmál út á glapstigu, þar sem prinsipp skipta ekki lengur máli, þar sem hækkun skatta er samþykkt án umræðu og án andmæla, þar sem ríkið belgist út með hverjum deginum sem líður, þar sem ríkisstarfsmönnum fjölgar en þjónustan versnar, þar sem almenningur og smærri fyrirtæki eru skattpínd, en stórfyrirtæki beita lobbýisma og lagaklækjum til skattasniðgöngu, þar sem stjórnvöld reisa varnarmúra (jafnvel í bókstaflegum skilningi) utan um stórfyrirtæki fyrir almannafé, veita grindvískum fyrirtækjum rúmar heimildir til að bjarga eignum sínum en skammta venjulegu fólki 5 mínútur undir eftirliti til að vitja um eignir sínar og heimili.

Allt framangreint má kalla ávextina af verkum núverandi vinstri stjórnar: Við þekkjum tré af ávextinum og mennina af verkum þeirra. Þegar kemur að næstu kosningum munu Íslendingar hafa val um marga vinstri flokka sem aðhyllast valdboð og stjórnlyndi. Með sama hætti munu Íslendingar geta valið milli framboðslista þar sem menn eru sammála um að jörðin sé að soðna, að karlar geti breytt sér í konur og að framtíðarhagsmunir íslensku þjóðarinnar séu best geymdir í höndum umboðslausra embættismanna í erlendum borgum. Hver sem vogar sér að efast um framangreint og vill beita gagnrýninni hugsun, verja frjálsa tjáningu, hver sem leggur til að settar verði bremsur á handhafa ríkisvalds, hver sem vill ekki að lyfjafyrirtæki stjórni því hvaða lyf við tökum, hver sem leyfir sér að halda að daglegt líf í landinu gangi betur ef almenningur ræður sinni för fremur en að lúta sérfræðingastjórn, slíkur maður er úthrópaður með öllum þeim illyrðum sem ,,einflokkurinn", fjölmiðlamenn og alþjóðlegir valdboðssinnar treysta sér til að klína á hann. 

Kæru Íslendingar, næst þegar frambjóðendur mæta okkur með gylliboðum og útprentuðum stefnuskrám, þá ættum við að staldra við, spyrja og íhuga hvað við erum í reynd að kjósa, því það er að líkindum eitthvað allt annað en lofað er. Ég get því ekki annað en ítrekað þá lýsingu að þetta séu óheilindi, fals og svik við kjósendur.

 

 


Bloggfærslur 24. nóvember 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband