Píratar sigla undir hentifána, hafa engan málstað og grafa undan réttarríkinu

Píratar spruttu fram á sjónarsvið stjórnmálanna víða um heim árið 2006, en mælast hvergi með yfir 3% fylgi í sviði landsmála, nema á Íslandi og í Tékklandi. Velgengni þeirra hér á landi er ráðgáta sem telja má verðugt verkefni fyrir stjórnmálafræðinga. Flokkurinn lagði áherslu á borgaraleg réttindi, sérstaklega friðhelgi einkalífs, gegn hvers kyns kúgunartilburðum ríkisvalds. Samhliða þessu hafa þingmenn flokksins viljað skipa sér fremst í flokk ,,siðbótarmanna" á sviði stjórnmálanna, þar sem kjörnir fulltrúar hafa átt að vera siðferðileg fyrirmynd kjósenda. Siðapredikanir Pírata koma mörgum spánskt fyrir sjónir, þar sem þeir í hinu orðinu hafa verið eindregnir afhelgunarsinnar og beitt sér af nokkurri hörku gegn hefðbundnum siðum, helgidagalöggjöf og viðteknum samfélagslegum gildum, sérstaklega kristnum gildum. Píratar hafa í framkvæmd komið fram sem afstæðishyggjumenn, þ.e. að enginn sannleikur sé til, nema reyndar sá sannleikur sem þau sjálf boða. 

Dæmin sanna að Píratar hafa reitt hátt til höggs yfir þingmönnum annarra flokka og nýtt hvert tækifæri til að láta höggin dynja á fólki úr ræðustól Alþingis með umvöndunum, vandlætingu og kröfum um afsagnir. Mögulega er það misminni, en var ekki sérstök siðanefnd Alþingis sett á fót að frumkvæði Pírata? Í starfi þeirrar nefndar sannaðist að ,,sér grefur gröf þótt grafi", því fyrsti þingmaðurinn sem nefndin taldi brotlegan við siðareglur var helsti siðapostuli Pírata sjálfra, sem kaus að taka ekkert mark á niðurstöðu nefndarinnar.

Með allt framangreint í huga og eftir að hafa fylgst með þingmönnum Pírata bæði í fjarlægð og í návígi, verður stöðugt óskýrara hvað þessi flokkur stendur fyrir. Sú mynd verður enn óskýrari þegar lesin eru eftirfarandi ummæli þingmanns Pírata sem handtekinn var um helgina, en eftirfarandi texta má finna á bls. 2 í Morgunblaði dagsins: 

Arndís þakkar lögreglunni skjót og góð vinnubrögð „þótt þeir hafi ekkert vitað hvað var í gangi og að mínu mati með öllu tilefnislaust, sem sagt það sem gerist. Ég fagna viðbrögðum lögreglunnar vegna þess að Kíkí er hinsegin staður og þarna eru einstaklingar sem eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu og það er gríðarlega mikilvægt að öryggi fólks sé tryggt og lögreglan hafi komið án þess að spyrja spurninga. Lögreglan kemur bara vegna þess að dyraverðir óska aðstoðar. Hún bara kemur, spyr engra spurninga. Lögreglan kom mjög fagmannlega fram og ég vil koma þökk um til þeirra. Þeir voru kurteisir og brugðust hratt við og allt frábært þar,“ segir Arndís.

Íslenskir kjósendur hafa á fyrri stigum séð hvernig siðbótaráherslur flokksins fjúka út um gluggann þegar Pírötum sjálfum verður á. Í tilvitnuðum ummælum má sjá hversu léttvæg borgaraleg réttindi eru í huga handtekins Pírataþingmanns sem þakkar lögreglu fyrir formálalausa og skilvirka handtöku ,,án þess að spyrja spurninga".

Þeir sem hingað til hafa viljað vona að Píratar séu málsvarar borgaralegra réttinda gagnvart sífellt aðgangsharðara eftirlits- og lögregluríki, geta nú gefið þá von frá sér. Ummæli þingmannsins, sem fagnar umyrðalausri og skjótri valdbeitingu lögreglu, eru í takt við aðra framgöngu kjörinna fulltrúa Pírata, sem í verki og framgöngu festast í smáatriðum og missa þannig sjónar á aðalatriðum, virða formreglur meira en efnisreglur og eru, greinilega, tilbúin að fórna borgaralegum réttindum á altari lögregluríkisins. 

 


mbl.is Kannast ekki við fordæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. nóvember 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband