Dauðans alvara

Nú veit ég ekki með ykkur, kæru lesendur, en allt í kringum mig er fólk nýlega búið að uppgötva að það er með "meðfæddan hjartagalla". Ég þekki nú óvenju marga sem hafa fengið hjartaáföll á besta aldri eða því miður dáið skyndilega. Bara í mínum nánasta hring get ég talið upp 7 einstaklinga á aldrinum 25-60 ára af báðum kynjum, sem hafa annað hvort dáið eða verið við dauðans dyr vegna hjartavanda. Var þetta daglegt brauð hér áður fyrr? Ég minnist þess ekki. Muna fyrri kynslóðir eftir annarri eins bylgju af líkamlegum kvillum ungs fólks? Nú er verið að auglysa hjartastuðtæki á Mbl sem mikilvægt öryggistæki á öllum vinnustöðum. Datt einhverjum slíkt í hug fyrir fáum árum? Er eitthvað hérna sem við erum ekki að sjá? Hefur eitthvað breyst? Er fólk undir meira álagi en áður? Er fólk í verra líkamlegu ásigkomulagi? Er fólk að borða óhollari mat? Eitt má ekki tiltaka í svona upptalningu, þ.e. hvort hugsast getur að allir þessir nýuppgötvuðu, meðfæddu hjartagallar og þessi hjartaáföll kunni að standa í samhengi við það að 90% þjóðarinnar lét sprauta sig með efnakokteil sem ekki hafði farið í gegnum hefðbundin öryggispróf. Og hvað með alla þessa blóðtappa sem ungt fólk er allt í einu að greinast með, jafnvel íþróttafólk á besta aldri, sem ætti að vera með bestu lungu og æðakerfi sem fyrirfinnst? Ég veit að þetta eru óþægilegar spurningar og að ekki má nefna snöru í hengds manns húsi, en við getum ekki verið mikið lengur með hausinn ofan í sandinum. Hversu lengi geta læknar haldið áfram að skýra þessi vandræði sem meðfædda galla? Er eitthvað í vatninu á Íslandi? Þetta er fyrir utan öll bráðakrabbameinin sem hafa verið að greinast á 4. stigi.

Þetta er ekki skrifað til að hræða neinn, en í frjálsu samfélagi verður fólk að fá að spyrja spurninga.  Voru sprautulyfin hættulegustu lyf sem farið hafa í almenna notkun? Birtist sambærileg þróun erlendis? Ollu lyfin mögulega meiri vanda en veiran sem þau áttu að verja okkur fyrir? Hér kemur fram að lyfjaframleiðendur hafi byrjað að framleiða lyfin árið 2019 vegna þess að þeir vissu að heimsfaraldur var á leiðinni!?

Ég vona innilega að þessar spurningar séu ástæðulausar og að allt sé slétt og fellt, því vissulega er þægilegra að hugga sig við meðfædda galla en manngert lyfjavandamál. 

vaers

jim carrey


Bloggfærslur 31. janúar 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband