Það er ekki heiglum hent að skilja stjórnmálaumræðu nútímans. Bráðabirgðaútgáfa mín er sú að best sé að skilja þetta út frá því hvort menn aðhyllast valdboð eða frelsi. Í umræðum um EES-samninginn á Alþingi síðustu daga hefur afhjúpast að langstærstur hluti þingmanna aðhyllist valdboðshyggju undir merkjum EES, þ.e. að Íslendingum BERI að sætta sig við það fyrirkomulag að ESB semji reglur og póstsendi þær hingað til athugsemdalausrar afgreiðslu, samþykktar og fullkominnar eftirfylgni, án þess að Alþingi Íslands né íslenskir dómstólar hafi nokkuð um efni reglnanna að segja - nema þá aðeins til að íþyngja Íslendingum umfram aðra.
Ef þú, kæri lesandi, vilt ekki sætta þig við þessa niðurlægjandi nýju stjórnarhætti, þá máttu eiga von á að verða kallaður ýmsum uppnefnum og ónefnum. Mest notaða uppnefnið (sem verið er að gatslíta í fjölmiðlum til þess að fæla fólk frá andmælum) er "öfga-hægri" (NB: öfga-vinstri er aldrei notað í fjölmiðlum).
"Öfga-hægrimenn" finnast nú víðsvegar á Íslandi og annars staðar - og þeim fer fjölgandi sem hræðast ekki þennan stimpil, enda er blekið í stimplinum orðið svo þunnt að það tollir ekki á mönnum. Af samtölum við slíkt "öfgafólk" sýnist mér þau eiga það sameiginlegt að vilja hugsa sjálfstætt, mynda sér sínar eigin skoðanir á sjálfstæðum forsendum og vera á móti hvers kyns hjarðhugsun. Þau eru eru á móti hvers kyns mismunum (hvort sem það er vegna húðlitar, kynhneigðar eða annars). Þau eru fylgjandi jafnrétti (og eiga ekki í vandræðum með að skilgreina hugtakið kona). Þau eru friðarsinnar, á móti ofbeldi og stríðsrekstri (nema um neyðarvörn sé að ræða), enda er lífið heilagt í þeirra huga, allt frá getnaði til dauða (sem þýðir að þau telja að ávallt skuli lagt siðferðilegt mat á fóstureyðingar og dánaraðstoð). Þau trúa á frelsi einstaklingsins og að maðurinn sé skapaður í Guðs mynd (en hafna þeirri hugmynd að skilgreina beri einstaklinginn sem hluta af þessum / hinum hópnum). Þetta hræðilega "öfgafólk" er á móti dýranýði og hvers kyns misnotkun og óréttlæti, auk þess sem þau virðast skilja vel að fyrirgefningin er besta lækningin við skaðlegri heift og reiði. Í þeirra huga eru börn heilög og þau telja það skyldu sína að verja sakleysið.
Á mælikvarðann sem nefndur var hér í upphafi er þetta (öfga)fólk þeirrar skoðunar að ríkisvaldið hafi þá frumskyldu að verja frelsi manna, en ekki að skerða það. Síðast en ekki síst telja þau þetta frelsi verða betur varið innan þjóðríkis en innan fjölþjóðlegra og yfirþjóðlegra stórvelda.
Um ástandið í stjórnmálum á Íslandi ræddi ég í gær við Gústaf Skúlason og viðtalið má sjá hér.
E.S. Lýst er eftir lýsingarorði fyrir þá sem eru hinum megin við þá línu sem RÚV o.fl. skilgreina sem hægri-öfgar, en þar er ég að vísa til þeirra sem aðhyllast valdboð og miðstýringu og vilja skerða frelsi manna og þjóða eins og kostur er.
E.E.S. Ef gagnrýnendur þínir hafa ekkert fram að færa annað en yfirborðslega stimpla og upphrópanir, þá ertu á réttri leið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)