Til samanburðar og íhugunar

Í gær var sett hér fram lýsing á því sem RÚV og aðrir "meginstraumsmiðlar" (Main Stream Media) Vesturlanda skilgreina sem stjórnmálaskoðanir utan alls velsæmis. 

Hvað telja þá "menningarvitar" nútímans vera innan velsæmis? Það er sú afstaða að hafa helst enga sjálfstæða afstöðu, heldur fylgja meginstraumnum þegjandi og hugsunarlaust, trúa öllu sem fréttastofur MSM setja fram og og kalla allt annað samsæriskenningar. Pólitísk rétthugsun viðurkennir mismunun í ýmsu formi og horfir jákvæðum augum á að menn séu dregnir í dilka út frá húðlit og kynferði, sérstaklega ef það leiðir til þess að gengið sé á rétt karla af evrópskum uppruna. Slík mismunun nefnist "jafnrétti" í kreddubókum "rétthugsunarinnar". Hugtakið kona er þar þó hvergi skilgreint og öllum því frjálst að skilgreina sig sem konu, nota kvennaklósett og valsa um naktir í búningsherbergjum kvenna. Ef þú samþykkir allt þetta ertu hluti af "góða fólkinu" en gæskan þarf þó ekki að rista sérlega djúpt, því góða fólkið styður vopnakaup og stríðsrekstur og vill stofna her undir merkjum ESB og senda syni okkar í fremstu víglínu til að deyja fyrir yfirþjóðlegt sambandsríki sem sýna ber meiri hollustu en fósturjörðinni sjálfri. Veifa má fána ESB og allra ríkja annarra en fána þinnar eigin ættjarðar. Pólitísk rétthugsun tekur því stundum á sig mynd einhvers konar dauðamenningar, þar sem ekki aðeins er hvatt til þess að ungir menn fari (og deyi) á vígvelli, heldur eru fóstureyðingar og dánaraðstoð einnig litin mjög jákvæðum augum. Hvers vegna ætti ekki svo að vera þegar einstaklingurinn er fyrst og fremst veginn og metinn út frá því hvaða hópi hann tilheyrir? Góða fólki aðhyllist enga trú nema pólitískan rétttrúnað, en getur þó umborið flest trúarbrögð önnur en kristni. Allt tal um fyrirgefningu og að bjóða hinn vangann er talið fyrirlitlegt veikleikamerki, því mestu skipti að koma fram hefndum fyrir allt óréttlæti sem framið hefur verið fyrr og síðar. Trúartal særir eyru þeirra því guð er ekki til og maðurinn er ekkert merkilegra fyrirbæri en hvert annað skriðdýr eða fluga. Einhver virðingarröð virðist þó vera til í kreddubókum rétttrúnaðarins því skriðdýr og pöddur má borða, en ekki spendýr. Börnum má telja trú um að þau séu fædd "í röngum líkama" og að kynin séu ótal mörg en ekki 2 og að kyn þeirra megi "leiðrétta" með lyfjagjöf og síðar skurðaðgerðum. Áhersla er lögð á að halda ýmiss konar kynferðislegum hugmyndum að börnum á ungum aldri, ekki síst í skólastofnunum. Meginhlutverk ríkisins, samkvæmt þessum fræðum, er að skerða frelsi fólks og afsala ríkisvaldinu til fjarlægra landa í hendur manna sem enginn hefur kosið. 

Kæri lesandi, það er þitt að ákveða hvorum megin þessarar línu þú vilt standa. Meðan þú átt þína eigin hugsun og heyrir rödd þinnar eigin samvisku áttu frjálst val um það. Það eina sem þú þarft er kjarkur til að velja og standa með sannleikanum. 

 

 


Bloggfærslur 16. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband