26.6.2025 | 08:15
Utanríkisráðherra Íslands telur Donald nú "heillandi"
Bandaríkjaforseti hefur fjölda leyniþjónustumanna á sínum snærum sem undirbúa hann fyrir fundi með ráðamönnum annarra ríkja, m.a. fyrir Nato-fundinn í Haag, sem haldinn var í þessari viku.
DT: Hvað getur þú sagt mér um fulltrúa Íslands á fundinum?
CIA: Þaðan koma 2 fulltrúar, báðar kvenkyns, enda er Ísland núna í miðri samfélagstilraun, þ.e. að verða fyrsta ríkið í sögunni (Amazon-konurnar voru aldrei til nema í grískri goðafræði) sem afhendir konum öll völd.
DT: Hvað geturðu sagt mér um þessar tvær?
CIA: Þú mátt búast við að þær tali mikið um fullveldi, sem er þeim mjög hugleikið, þ.e. fullveldi Úkraínu. Fullveldi Íslands er annað mál, helsta áherslumál þeirra er að framselja fullveldi Íslands til ESB.
DT: Ber mér að skilja þetta svo að þær vilji að Ísland sé undir verndarvæng ESB en ekki USA?
CIA: Já, þær vilja báðar að Ísland verði aðildarríki ESB og hafa á sama tíma gagnrýnt nánast allt sem þú hefur gert, bæði sem 45. og 47. forseti USA.
DT: Gott væri að fá dæmi svo ég viti hvernig þær hugsa áður en þær koma og tala við mig.
CIA: Sú hávaxna hefur líkt þér við Pútín og Erdogan, sagt að þú sért "stórhættulegur" og opinberlega efast um að Ísland geti reitt sig á vörn frá Bandaríkjunum.
DT: Erum við ekki enn með varnarsamning við Ísland?
CIA: Jú ... enda teljum við okkur hafa talsverða varnarhagsmuni þar sjálfir, m.a. til að verjast umferð rússneskra kafbáta milli Grænlands og Bretlands.
DT: Hvaða vernd telja þær sig geta fengið hjá ESB sem þær fá ekki hjá okkur? Hvers vegna vilja þær tala illa um forseta USA og fjarlægjast það ríki sem best hefur reynst Íslandi?
CIA: Ég er bara leyniþjónustumaður, ég get lesið skýrslur, túlkað ummæli, greint samhengi, raðað saman atburðum til að sjá samhengi. Okkar greining er þessi: Afstaða íslenskra stjórnvalda - undir þessari kvennastjórn - verður ekki skilin út frá rökrænum forsendum. Afstaða þeirra byggir á kreddu og þráhyggju, sem aðeins mun verða leiðrétt með hreinni valdapólitík. Eina leiðin fyrir USA til að draga Ísland nær sér á ný er að sýna styrk og vald. Ef þú gerir það á þessum fundi máttu búast við að þær vilji leggja sig fram um að vera kurteisari, brosa til þín, vilja jafnvel fá að vera með þér á mynd. Ef vel tekst til munu þær byrja að leiðrétta kúrsinn. Ef a.m.k. önnur þeirra mun tala fallega um þig eftir fundinn, þá er það til marks um að þú hefur náð árangri og að forherðing andstæðinga þinna er ekki óhagganleg.
Viðbótarathugasemd: Eftir fundinn í Haag lét utanríkisráðherra Íslands hafa eftir sér jákvæð ummæli um DT, sennilega þau fyrstu á sínum embættisferli: "Hann er nú heillandi, karlinn."
![]() |
Kristrún: Sterkasta varnarbandalag í heiminum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)