8.6.2025 | 10:33
Vinsamlegast deilið til allra þingmanna sem undirbúa nú drottinsvik
Margar vondar ræður hafa verið fluttar á Alþingi síðustu ár. Þingið sem nú er að ljúka störfum er engin undantekning. Af öllu því sem þar hefur verið sagt síðustu vikuna skera tvær ræður sig úr því þar má finna samansúrruð öfugmæli og í bland við hreina afneitun. Hér er ég að vísa til þess sem formaður og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sögðu um frumvarp Þorgerðar Katrínar um bókun 35. Ræðurnar eru dapurlegur vitnisburður um það hvernig flokkurinn hefur flosnað upp af rótum sínum. Í stað þess að tala því máli að hér búi frjáls og sjálfstæð þjóð í frjálsu og fullvalda ríki, hefur flokkurinn gert EES samninginn að einhvers konar helgidómi sem beri að tilbiðja og færa fórnir. Nú gengur þetta svo langt að stjórnarskrá lýðveldisins skal gerð að sláturfórn.
Það er huggun harmi gegn að lesa eftirfarandi greiningu Jóns Steinars Gunnlaugssonar, sem hann birti fyrr í dag.
Nú er deilt á Alþingi um lögleiðingu á bókun 35, sem felur í sér breytingu á lögum nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið. Texti frumvarpsins um lögleiðinguna hljóðar svo:
"Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum ef þau eru ósamrýmanleg öðrum stjórnvaldsfyrirmælum."
Í þessu felast fyrirmæli um að eldri reglur skv. EES-samningnum skuli ganga fyrir yngri lögum sem Alþingi setur ef ekki er efnislegt samræmi á milli. Þetta felur það í sér að löggjafarvald Alþingis er takmarkað, því að ný sett lög á Alþingi víkja auðvitað ævinlega til hliðar eða fella niður eldri lagareglur ef efnislegt ósamræmi er til staðar. Í reynd er því lagasetningarvald Alþingis takmarkað að þessu leyti án þess að stjórnarskráin heimili slíkt.
Ekki verður annað séð en að sú skipan sem felst í þessu frumvarpi standist ekki nema stjórnarskránni sé fyrst breytt og í hana sett ákvæði sem heimilar þetta. Alþingismönnum er skylt að haga störfum sínum að lagasetningu samkvæmt þeim heimildum sem stjórnarskráin veitir. Þess vegna hefur Alþingi ekki stjórnskipulega heimild til að lögfesta þetta frumvarp.
Kæru lesendur, ég skora á ykkur að framsenda greiningu JSG til allra þingmanna sem búa sig nú undir að fremja drottinsvik með samþykki þessa frumvarps.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)