22.7.2025 | 09:26
Hefur þessi frétt birst í íslenskum fjölmiðlum?
Núverandi ríkisstjórnarflokkar stefna að því bæði leynt og ljóst að stýra þjóðarskútunni upp að að meginlandi Evrópu þar sem ólýðræðislegt stjórnarfar ESB, með tilheyrandi valdboði og miðstýringu kalla efnahagslega og pólitíska hnignun yfir allan almenning. Undir þessari ríkisstjórn okkar hrannast óveðursskýin upp, en vonandi fer almenningur að vakna til vitundar og til varnar eigin frelsi og innlendu lýðræði. Hér er mikið í húfi og því duga engin vettlingatök, því hér er ekki aðeins við innlenda stjórnmálastétt að etja, heldur einnig erlent og innlent skrifstofuveldi. Yfir öllu þessu svífur ósýnilegt vald samansúrraðra hagsmuna auðugasta fólks í heimi sem í gegnum samtök eins og WEF og grjótharðan lobbýisma í Brussel og víðar þvingar ríkisstjórnir til að stökkva um borð hjá þeim sem með óttastjórn / heimsendaspám vilja komast með krumlurnar í ríkissjóði (skattfé almennings) með vopnasölu / sölu á lyfjakokteilum o.fl. Þetta er fólkið sem flýgur heimshorna á milli og lifir lúxuslífi en vill krefjast þess af almenningi að við hættum að nota einkabíla, borðum minna kjöt o.s.frv.
Við Íslendingar erum ekki vitlausari en aðrar þjóðir en okkur er vorkunn því við búum við einsleitt ríkisstyrkt fjölmiðlaumhverfi og höfum þ.a.l. þrengra sjónsvið á stjórnmálin en flestar aðrar þjóðir. Sem nýtt dæmi er hér frétt úr Daily Telegraph síðan í gær, sem þið hafið væntanlega ekki lesið í íslenskum fjölmiðlum: Klaus og félagar hjá WEF virðast hafa "hagrætt tölfræðinni" til að láta Brexit líta verr út í augum almennings, því sjálfstæði ríkja er eitur í beinum þeirra sem vilja efla miðstýringu og auka á stjórnlyndi.
![]() |
„Aldrei minnst á þetta við mig“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)