Frjáls manneskja leggur frjálst mat á það sem hún sér og heyrir

Fyrir rétt rúmu ári síðan, í árslok 2021, stóð ég í ströngu sem lögmaður frjálsra félagasamtaka sem vildu vara við fyrirhugaðri lyfjaherferð gegn börnum. Sent var erindi til skólastjórnenda, kennara, lækna, hjúkrunarfræðinga o.m.fl. Í niðurlagi bréfsins sagði m.a.

Við stöndum á krossgötum sem samfélag. Vilt þú skipa þér í flokk með þeim sem hyggjast beita lyfjafræðilegum inngripum gagnvart börnum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum eða viltu gæta varúðar og bíða meðan minnsti efi er til staðar? Valdmörkum ríkisins gagnvart borgurunum verður að setja ströng mörk. Sjálfsákvörðunarrétt borgaranna yfir líkama sínum ber að verja í lengstu lög. Börnin okkar eru framtíð þjóðarinnar. Það umhverfi sem þau alast upp í og þær ákvarðanir sem þau snerta munu fylgja okkur um ókomna tíð. Okkur ber að vernda börnin og tryggja að þau komist heil í gegnum þá óvissu sem nú gætir. Á fundi velferðarnefndar Alþingis í dag, 29. desember, kom m.a. fram hjá fulltrúum heilbrigðisyfirvalda að óvissu gæti um gagnsemi og áhættu af umræddri lyfjagjöf og fjölda sprauta. Meðan vafi leikur á því hvort umrædd lyf/efni geri meira gagn en ógagn er varlegast að bíða átekta.

Ýmsir kusu að fyllast vandlætingu við móttöku þessa bréfs og töldu ekki við hæfi að reifaðar væru nokkrar efasemdir um fyrirhugaðar aðgerðir. Sumir gengu svo langt að samsama mig sem lögmann með skjólstæðingum mínum. Þetta er rifjað upp nú vegna þess að á síðustu 12 mánuðum hafa leitað til mín allmargir einstaklingar sem telja sig hafa orðið fyrir líkamstjóni vegna umræddrar lyfjagjafar. Þetta er einnig rifjað upp vegna þess að nú á árinu 2023 líður vart sá dagur að ekki komi fram nýjar vísbendingar um skaðsemi þeirra lyfja sem almenningur var sprautaður með vegna „veirunnar skæðu“. Nú síðast í dag gerðist það að virtur prófessor við MIT háskólann, Retsef Levi, sérfræðingur í lyfjaöryggi, birti sláandi skýra viðvörun á twitter þar sem hann kallar eftir því að öllum mRNA bólusetningarherferðum verði hætt, þar sem þetta séu ,,misheppnuðustu lyf allra tíma". Notkun þeirra beri að hætta ,,þar sem þau valdi fordæmalausu tjóni, þar á meðal dauða barna og ungmenna", sjá Stop! 

Það skal hér upplýst að ég vinn nú að höfðun dómsmála þar sem m.a. verður á því byggt að notkun umræddra lyfja hér á landi hafi verið leyfð án nægilegs eftirlits og að lyf þessi hafi valdið hættu sem er meiri en hættan af veirunni sem lyfjunum var ætlað að vernda gegn. Í málunum verður því haldið fram að yfirvöld hafi brugðist embættisskyldum sínum, þar á meðal því frumhlutverki sínu að vernda og verja heilsu íslensks almennings. Yfirvöldum hérlendis beri að koma í veg fyrir að leyfð sé notkun lyfja hérlendis sem standast ekki ítrustu kröfur um öryggi og ósannað er að teljist skilvirk / áhrifarík í lyfjafræðilegum og læknisfræðilegum skilningi. Á því verður væntanlega byggt að innlendir embættismenn hafi brotið alvarlega gegn lagalegum, faglegum og siðferðilegum skyldum sínum með því að hafa stutt við notkun umræddra efna gagnvart öllum almenningi hérlendis, þ.m.t. ungum börnum. Þetta hafi verið gert þrátt fyrir að á þessum tíma hafi þegar verið komin fram viðvörunarmerki á alþjóðlegum vettvangi, sem hefðu átt að hvetja til varúðar. Staða íslenskra yfirvalda er í þessu sambandi jafnvel enn alvarlegri en margra annarra þar sem ég hafði sem lögmaður sent rökstudd bréf, m.a. til Lyfjastofnunar með skýrum skírskotunum til þeirra hættumerkja sem fram voru komin í árslok 2021 og snemma árs 2022. Þrátt fyrir allt framangreint og án þess að vara almenning við áhættunni af því að þiggja sprauturnar leyfðu yfirvöld sér að heimila notkun bóluefna gegn 5-11 ára börnum, þótt ljóst væri að þeim aldurshópi stafaði engin tölfræðileg hætta af SARS-CoV-2 og sprauturnar því algjörlega ónauðsynlegar börnum. Síðastnefnd ákvörðun er enn alvarlegri í ljósi þeirra vísbendinga sem komnar voru fram síðla árs 2021 um alvarlegar aukaverkanir sprautanna, þar á meðal um fjölgun fósturláta, burðarmálsdauða, minnkaðrar frjósemi, hækkaðrar tíðni hjartavöðvabólgu o.fl., auk þess sem fyrir liggur að svonefnd mRNA bóluefni tengjast mun fleiri tilkynningum um aukaverkanir en önnur bóluefni, þar á meðal bóluefni gegn inflúensu.

Ég læt þetta nægja að sinni, en fróðlegt verður að sjá viðbrögð lesenda og hvort menn eru enn jafn sprautuglaðir og þeir voru í árslok 2021 og beri enn jafn óskorað traust til lyfjarisanna. Góðar stundir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sprautuglöð er ég ekki, fara átti varlega. Láta börnin njóta vafans í þessum málaflokki. Tel sjálf að ekki hefði þurft að sprauta æsku þessa lands. 

Ég vildi óska að slíkur hópur, frjáls félagasamtök, liti dagsins ljós til að berjast gegn translestinni sem leggur allt í sölurnar til fá sem flest börn til liðs við sig. Gerist í gegnum samfélagsmiðla, í vinahópi og TikTok. Komið í leikskóla landsins, veggspjal og fræðsla/innræting kennara.

Umræðu um transmálaflokkinn er stýrt af hagsmunaaðilum rétt eins og með sprauturnar. Aðrir komast ekki að, hvað þá á síður fjölmiðla. Þeir hafa lokað. Fólk sem vill upplýsta umræðu er sakað um fordóma, fóbíu og eitthvað verra. Sorglegast er að sjá margar kennara fara þar fremstir í flokki. Minnir á margt um covid- umræðuna. Stjórna upplýsingaflæðinu og afmarkaður hópur ræður málflutningi.

Gætum við ekki að hér á landi getur þróunin orðið sú saman og á öðrum vestrænum löndum´i transmálefnum. Í Danmörku her aukningin um 4700% orðið í hópi unglingsstúlkna. Hver passar upp á þessi börn? Það sama gerist í þessum málaflokki og með sprauturnar, múgsefjun. Fólki er talið trú um að þetta sé allt eðlilegt.

Áhugaverð skrif (á dönsku) og tölur. Transkøn – Det med småt … – Vil du vide mere om den massive markedsføring af transideologien fra transkønsorganisationer og transkønsindustrien – især rettet mod børn og unge – om at man kan fødes med det forkerte køn? Så læs med her. (transkoen.dk)

Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2023 kl. 10:15

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Við hjónin tókum ákvörðun strax í uppafi Covid geðveikinnar að fara ekki í sprautur ásamt

börnum og barnabörnum. Þrýstingurinn var gríðarlegur, svo ég tali nú ekki um skólanna.

Við vorum kölluð geðveik, vitleysingar, sama um náungan og sjálfselsk og meira að segja

af okkar nánustu vinum og vandamönnum. Enginn þeirra í dag nefnir þetta á nafn lengur

og flestir farnir að sjá í gegnum þenna mesta áróður heimsögunar.

Í ávarpi forseta Íslands til Alþingis í Nóvember 2021 sagði hann eftirfarandi,

Öfgar og ýkjur geta fylgt frjálsum skoðanaskiptum en við höfum borið gæfu til þess, íbúar þessa lands, að standa að mestu saman andspænis sameiginlegri vá. Sú eining hefur byggst á almennri skynsemi, almennri umræðu, almennri þekkingu og almennu trausti.

Eigum við ekki að klappa fyrir þessu sem margreyndum að koma okkar skoðunum á framfæri en vorum kölluð

öllum þeim illu nöfnum sem hugsast getur og allt gert til að kæfa umræðuna..??

Einnig minntis hann á í annari ræðu að frelsi fárra til neitunar á sprautum væri ÖFUG SNÚNN réttur.

Ekki beðið afsökunar á því og á ekki von á.

Gleymum svo ekki sótta, sem marg snérist í öllum sem hanna sagði, svipað og Ragnar Reykás forðum

og fékk fálkaorðu fyrir.

Vona að þér gangi vel með málaferlin, en þú getur bókað það, að allt verður nú reynt til að þagga

niður það sem var gert og reynt að beina athygli almúgans að einhverju öðru en sannleikanum.

Sigurður Kristján Hjaltested, 31.1.2023 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband