Taumlaus innleiðing afhjúpar glópshátt og flónsku

Í þessari frétt kemur fram að virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun hafi fallið ,,á lög­um um vatna­mál frá 2011. Þar er mjög skýrt að ástandi straum­vatna má ekki raska. Þetta er sam­kvæmt vatna­til­skip­un Evr­ópu­sam­bands­ins.“ Svo segir: „Orku­stofn­un rann­sakaði ekki þann þátt af neinu viti áður en hún gaf út leyfið. Lands­virkj­un sótti um und­anþágu frá þess­ari meg­in­reglu, en hún er ófrá­víkj­an­leg sam­kvæmt dóma­for­dæm­um er­lend­is frá, og er í sam­tali við Um­hverf­is­stofn­un löngu síðar um það mál. Þetta er stjórn­sýsla sem geng­ur ekki upp. Á þessu er málið fellt.“

Undirritaður hefur á síðustu árum gagnrýnt taumlausa og fyrirhyggjulausa innleiðingarstarfsemi Alþingis á EES reglum. Sömuleiðis hef ég varað sterklega við því að flóðgáttirnar verði opnaðar með samþykki frumvarps utanríkisráðherra um bókun 35. Þessi frétt er til marks um alvarleikann þegar vandinn raungerist. En kannski þurfa Íslendingar að upplifa beinan raforkuskort til að koma auga á vandann? 

Af þessu tilefni er vert að rifja upp eftirfarandi orð sem birt voru í grein í Þjóðmálum haustið 2021: 

,,Þegar íslenska ríkið gerðist aðili að EES-samningnum og Mannréttindasáttmála Evrópu voru settir skýrir fyrirvarar af hálfu Íslendinga um neitunarvald að EES-rétti samkvæmt 102. gr. EES-samningsins, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið [...]

Á undanförnum árum [...] hafa mál þróast með þeim hætti að ætla mætti að lagalegir fyrirvarar Íslands við samninga þá sem hér um ræðir hefðu verið settir til hliðar. Samhliða því hefur almennri umræðu verið hagað eins og ekkert sé athugavert við að erlendir embættismenn geti sýnt íslenskum stjórnvöldum ráðríki og farið sínu fram án þess að æðstu stofnanir lýðveldisins Íslands, sbr. stjórnarskrána nr. 33/1944, fái rönd við reist. Hefur þetta m.a. birst í því að þingheimur hefur í seinni tíð ekki sýnt vilja til að veita tilhlýðilegt viðnám á grundvelli gildandi samnings- og lagaákvæða, þótt Alþingi hafi heldur aldrei formlega vikið frá skýrum forsendum umræddra ákvæða og aldrei samþykkt að veita alþjóðlegum stofnunum vald til að binda hendur íslenskra yfirvalda. Með vísan til þeirra atburða sem hér um ræðir getur hvorki þing né þjóð flotið sofandi að feigðarósi í þessum efnum án þess að bjóða heim raunverulegri hættu á ofríki.

Undirritaður, sem skipaður hefur verið í dómaraembætti og á sem slíkur að dæma einungis eftir lögunum samkvæmt 61. gr. stjórnarskrárinnar, hefur lýst áhyggjum af því ef „lögin“ í þessum nýja skilningi teljast, í reynd og að stórum hluta, sett af erlendum embættismönnum, án undangenginnar umræðu hér á landi, en einnig án möguleika á breytingum eða endurskoðun. Þar með væri höggvið stórt skarð í lýðræðislega rót laganna. Meðan enginn hreyfir andmælum og meðan menn samþykkja umyrðalaust að erlendar stofnanir seilist til valda og áhrifa hérlendis án skýrra lagaheimilda er ekki við öðru að búast en að umbylting verði á öllum valdastrúktúr á Íslandi. Hömlulaus innleiðing erlendra reglna er sjálfsagt skýrasta viðvörunarmerkið um þá þróun en íhlutun Mannréttindadómstóls Evrópu í íslensk stjórnarmálefni er sömuleiðis sjálfstætt íhugunarefni.

Ef horft er á undirbúning þeirrar löggjafar sem fyrr var nefnd og þá varnagla sem slegnir voru af hálfu íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindu verður ekki séð að sú umbreyting sem birtist nú við sjónarrönd íslenskrar lögfræði byggist á undangenginni lýðræðislegri umræðu sem borin hefur verið undir dóm kjósenda.

Framangreind þróun hefur að mínu mati haft í för með sér að allir þættir íslensks ríkisvalds hafa verið stórlega veiktir. Innleiðing erlendra réttarreglna á grundvelli EES-samningsins og áhrifaleysi Íslands á þeim vettvangi hefur verulega rýrt hlut íslensks framkvæmdar- og löggjafarvalds í landsstjórninni. [...]

Fyrir utan þau augljósu atriði sem nefnd voru hér að framan hljóta menn að staldra í þessu sambandi við það sem telja má til undirstöðuatriða í sérhverju réttarríki og kenna má við fyrirsjáanleika laga. Varla hefur verið rætt um það í aðdraganda EES að samningurinn myndi hafa þau áhrif að Ísland yrði að einhvers konar leppríki EB (nú ESB)? Sömuleiðis má velta fyrir sér hvort sú þróun sem hér um ræðir hafi þau áhrif að veikja þau völd sem stjórnarskrá lýðveldisins gerir ráð fyrir að handhafar íslensks ríkisvalds, þ.e. framkvæmdar-, löggjafar- og dómsvalds, fari með.

Með allt framangreint í huga set ég þessar línur á blað í þeim tilgangi að hvetja lesandann til að íhuga afleiðingar þess að tengslarof verði milli kjósenda og þeirra sem setja okkur lagareglur. Er ásættanlegt að á milli valdhafa og borgara sé engin gagnvirkni, engin endurgjöf, engin gagnrýni, engin tengsl hvað ábyrgð varðar? Er ekki með þessu vegið að öllu hefðbundnu, lífrænu stjórnmálaferli, þ.m.t. lýðræði og lagasetningu? Ef það stjórnarfyrirkomulag sem hér var lýst felur í sér breyttan valdastrúktúr, hvernig eru þá misheppnaðar reglur endurskoðaðar, hvernig eru mistök leiðrétt, hvernig eru vond lög færð til betri vegar? Hver er staða íslensks almennings í slíku valdakerfi? Eiga borgararnir ekki annan valkost en að reiða sig á velvild stjórnvalda í þeirra garð og treysta þeim í blindni er þeir handsala vald og ákvarðanatöku úr landi? Erum við þá dæmd til að hlýða án aðhalds, án andófs og án hugsunar?

Í stuttu máli tel ég ástæðu til að vekja máls á því að við Íslendingar erum samkvæmt framansögðu mögulega komin á allt aðra vegferð en lagt var af stað í á árunum 1993 og 1994. Eða er ekki alveg öruggt að við gengum í EES á grundvelli efnahagslegs samstarfs, en ekki á þeim forsendum að við værum að ganga í stjórnmálabandalag? Í þessu samhengi má auðvitað ekki gleyma því að gagnaðili Íslands og annarra EFTA-ríkja í EES, þ.e. Efnahagsbandalag Evrópu, hefur stökkbreyst í átt til sambandsríkis, sbr. sérstaklega þau áhrif sem leiddu af Maastricht-sáttmálanum (sem tók gildi 1. nóvember 1993) og Lissabon-sáttmálanum (sem gekk í gildi 1. desember 2009). Er staðan nú sú að ríkisstjórn Íslands stjórnar landinu í umboði erlends valds?"


mbl.is Virkjunarleyfi fellt úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband