Myndir sem segja meira en þúsund orð

Hér eru tvær ljósmyndir úr Mogganum í dag til að minna lesendur á mikilvægi þess að taka öllu með fyrirvara og láta ekki blekkjast eða leiðast í villu án þess að hugsa og leggja sjálfstætt mat á stóru myndina sem býr að baki leiktjöldunum. 

Mynd 1: Kafarar á bökkum Hrútu eru ekki að fara að bjarga / afstýra / lágmarka það tjón sem orðið er. Vitað er að þúsundir eldislaxa sluppu úr sjókvíum og ganga nú upp í ár um allt land. Myndin væri hlægileg ef heildarsamhengið væri ekki svona alvarlegt.Kafarar 2023

Mynd 2: Þegar bókstaflega allir eru hættir að ganga með grímur fyrir andlitinu birtist mynd af tveimur prófessorum í slíkum búningi. Myndin vakti sérstaka eftirtekt mína því síðast í gær hitti ég mann frá Kaliforníu sem sagði að sjúkrahúsin þar hefðu nýverið reynt að setja á grímuskyldu að nýju en þurft að hörfa undan eindregnum andmælum almennings þar sem þó lét bjóða sér býsna margt í kófinu. Eina leiðin til að skilja það að prófessorar á hátindi síns starfsferils feli andlit sín er sú að þau óttist eftirmálin, enda hefur annað þeirra, Drew Wessmann, sjálf vakið athygli á að aukaverkanir mRNA lyfjanna séu ,,ekki smávægilegar" (e. non trivial). Fleiri aðvörunarbjöllur hringja daglega, sjá t.d. hérhér og hér. Myndin væri hlægileg ef heildarsamhengið væri ekki svona alvarlegt.nóbel


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ég tek eftir að Nóbelsverðlaunahafarnir, sem eiga að vita betur, eru með grímur sem þau tvö vita vel að virka ekki, til að vernda þá fyrir sjúkdómi sem þau eru að fá verðlaun fyrir að hafa fundið lækningu við.

Það eru svo mörg lög af rugli í gangi þarna.

Kannski er þetta eins og þú segir, bara þau að fela andlit sín.

Ásgrímur Hartmannsson, 3.10.2023 kl. 16:21

2 identicon

Ég fékk aula hroll við fyrirsögn moggans um "bóluefnið" það orð eitt og sér er í eðli sýnu rangt, því ekki var um bóluefni að ræða, heldur tilraunalyf. Það er ekkert að marka Nóbelinn lengur, ekki síðan Obama fékk hann eftir að hafa setið í Hvítahúsinu í sex mánuði 🤣 það dugði að hann væri fyrsti svarti forsetinn. Ferill hans sem Forseta BNA er blóði drifin eins og margra sem á undan honum komu. það er í raun leiðinlegt að sjá fjölmiðla fara með fréttir  í dag. Fari fólk að leita út fyrir íslenska fjölmiðla, opnast augu margra því einhliða fréttaflutningur getur aldrei fullnægt þörfinni fyrir sannleikanum. 

Ruth (IP-tala skráð) 3.10.2023 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband