(Ó)stjórnmál ársins 2023

Þegar fylgst er með fréttum af ófriði, valkvæðri blindu og öfugri forgangsröðun koma eftirfarandi orð George Bernard Shaw upp í hugann: ,,Því lengur sem ég lifi, þeim mun sannfærðari verð ég um að þessi hnöttur er notaður af öðrum plánetum sem geðveikrahæli." 

Dæmi:

  • Í vikunni barst neyðarkall frá ungum bændum. Landbúnaður er undirstöðuatvinnugrein og forsenda þess að unnt sé að tala um matvælaöryggi og sjálfbærni íslenskrar þjóðar. Frammi fyrir vanda landbúnaðar mátti heyra stjórnmálamenn tala um mikilvægi aðhalds, ráðdeildar og sparnaðar og að ekki megi hleypa verðbólgunni lengra.
  • Fólk úr sömu flokkum og þeir sem þannig tala virðist þó enn vera að gæla við áætlanir um 300 milljarða (?) borgarlínu. Sömu stjórnvöld keyptu dýrasta skrifstofuhúsnæði landsins undir utanríkisráðuneytið fyrir 6 milljarða og byggja rúmlega 6000 fermetra skrifstofuhúsnæði fyrir Alþingi. Sömu stjórnvöld stunduðu stjórnlausa peningaprentun í kófinu og ýttu þar með undir verðbólguna sem nú er glímt við. Sömu stjórnvöld setja meira en 15 milljarða til hælisleitenda. Lesendur gæta bætt við þennan lista ýmsum öðrum málaflokkum þar sem fjármunir leka stjórnlaust úr ríkiskassanum.
  • Sem betur fer hafa Sjálfstæðismenn verið að vakna til lífsins um að vitleysan og óráðsían hafi gengið of langt og vonandi tekst þeim að leiðrétta stefnuna á síðari hluta kjörtímabilsins og hafa betri hemil á marxistunum sem þeir hafa valið sem sína nánustu samstarfsmenn í ríkisstjórn.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Arnar þú talar um vanda ungbænda. Það skiptir miklu máli að taka á því dæmi.  Þú skrifar Frammi fyrir vanda landbúnaðar mátti heyra stjórnmálamenn tala um mikilvægi aðhalds, ráðdeildar og sparnaðar og að ekki megi hleypa verðbólgunni lengra. Er þetta nú ekki dálítið populísk framsetning?

Sigurður Þorsteinsson, 28.10.2023 kl. 09:47

2 Smámynd: Arnar Þór Jónsson

Sæll Sigurður. Þetta orð, popúlismi, er notað til að gengisfella margt í pólitískri umræðu, sem ekki er þó alltaf ástæða til, sérstaklega ekki ef verið er að kalla eftir því að stjórnmálamenn þjóni fólkinu / kjosendum fremur en kerfinu. Það er ekki dyggð i stjórnmálum að beina meiri orku og fjármunum í að hlaða undir báknið og umgjörð þess fremur en fólkið í landinu.

Arnar Þór Jónsson, 28.10.2023 kl. 13:46

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Landbúnaður hefur verið ein helsta grunnstoð atvinnulífs hér á landi frá landnámi. Þó svo að landbúnaður sé ekki helsta grunnstoð atvinnulífsins í dag þá er hann helsta fæðuöryggi sem við búum við ásamt sjávarútvegi. Sjálfs okkar vegna megum við ekki fórna þessum atvinnugreinum á altari auðjöfra og heimselítunnar sem vilja að við lifum á pöddum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 28.10.2023 kl. 17:00

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ríkið er rót alls vanda.

Vandinn verður ekki leystur með ví að auka hann, en fyrir því er samt alltaf barist.

Ásgrímur Hartmannsson, 28.10.2023 kl. 19:35

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Einmitt Tómas sjálfra okkar vegna; skítt með heimselítuna enda er hún þegar búin að blanda pöddum í hveitið hermi ég úr fréttum (sem raunar ljúga all oft). Unga fólkið hefur kennt okkur eldri að hætta bakstur 10 til 13 sorta smákaka fyrir jólin.

Helga Kristjánsdóttir, 28.10.2023 kl. 22:14

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þgf.bakstri!

Helga Kristjánsdóttir, 29.10.2023 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband