21.5.2024 | 14:45
Öllu frelsi fylgir ábyrgð, líka tjáningarfrelsinu
Í mörg ár hef ég ritað greinar í blöð og tímarit til varnar frelsinu, þ.m.t. tjáningarfrelsinu. Þar hef ég alltaf lagt ríka áherslu á að öllu frelsi fylgir ábyrgð. Þannig hef ég verið talsmaður þess að menn noti tjáningarfrelsið til að eiga málefnalegar rökræður, en ekki til að ráðast að persónum annarra með ómálefnalegum hætti. Ég er á móti því að tjáningarfrelsið sé notað til að grafa undan stoðum lýðræðisins, t.d. með því að skrumskæla aðra að ósekju.
Stuðningur við tjáningarfrelsið kemur ekki í veg fyrir að við veitum viðnám þeim sem fara yfir velsæmismörk í sinni tjáningu, ala á fordómum eða ganga fram af siðleysi, óbilgirni eða fyrirlitningu. Frelsi til að tjá hugsun sína er hluti af borgaralegum réttindum, en þann rétt má ekki slíta úr samhengi við borgaralegar skyldur. Sérfræðingar og fagstéttir, þ.m.t. blaðamenn, hafa sett sér siðareglur og bera sérlega ríkar siðferðilegar og samfélagslegar skyldur þegar kemur að ábyrgri tjáningu.
Í frjálsu og borgaralegu samfélagi svara menn sjálfir til ábyrgðar fyrir orð sín og gjörðir. Með því að ala á fjandskap og fordæmingu í garð annarra er höggvið á þau samfélagslegu bönd sem tengja fólk hvert við annað. Vilji menn búa í samfélagi sem einkennist af kurteisi og umburðarlyndi þá þurfum við að gæta mjög vandlega að því hvernig við tjáum hug okkar og skoðanir.
Tjáningarfrelsið lýtur almennum siðrænum takmörkunum um virðingu og náungakærleik. Hér sem annars staðar er Gullna reglan til leiðbeiningar: Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra. Yfirgangur og vanvirðing rúmast ekki innan þessa ramma. Frelsi til athafna skyldar okkur um leið til að virða helgi annarra. Lýðræðið krefst þess í raun og veru að við sýnum hvert öðru mannúð. Vonandi getum við sameinast um það að bæta íslenska umræðu, bæði í máli og myndum, og sett okkur það markmið að sýna hvert öðru hlýju, skilning og kærleika.
Greinin birtist fyrst á www.visir.is
Athugasemdir
Það er bara tvennt sem er ritskoðað: sannleikurinn og klám.
Ásgrímur Hartmannsson, 21.5.2024 kl. 20:12
Heill og sæll Arnar Þór Jónsson.
Yndisleg orð þín snerta hjörtu fólks. Fjöldi fólks mun styðja þig og vera með þér í þinni baráttu. Réttlætið mun sigra. Haltu áfram á þeirri braut sem þú hefur verið á. Það er besti kompásinn í lífinu.
Jóhann Páll Símonarson
Jóhann Páll Símonarson, 21.5.2024 kl. 23:05
Hverju orði sannara og vel að orði komist Arnar Þór.
Það eru mikið fleiri sem styðja þig en haldið er fram á skoðana-mótunar-miðlunum en vélabrögð þeirra eru orðin vel sýnileg.
Ágúst Kárason, 22.5.2024 kl. 13:10
Hræðsluáróðrinum stjórnar valdaklíkan. Útvaldir taka þátt í skoðanakönnunum áróðursmeistaranna sem sumir hverjir amk. virðast vera á mála hjá öðrum frambjóðendum. Ég trúi því að þú eigir talsvert meira fylgi en skoðanakannanir sýna. Vonandi vaknar svo hjörðin sem haldin er krónískum hjarðhegðunarkvilla þegar nær dregur kjördegi. En ef ekki þá eigum við sem þjóð kannski bara skilið þá spillingu sem gegnsýrir allt samfélag okkar. Það er víst ekkert sem bannar fólki að vera heimskt.
Örn Gunnlaugsson, 22.5.2024 kl. 13:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.