Breytingar á lögum um leigubílaakstur voru mistök sem verður að leiðrétta.

Endurteknar neikvæðar fréttir af leigubílaakstri virðast allar tengjast breytingum sem gerðar voru á lögum um þennan málaflokk að vanhugsuðu máli og gegn andmælum örfárra þingmanna, þar á meðal undirritaðs. Í tilefni af þessari frétt á mbl.is leyfi ég mér að endurbirta hér fyrri grein mína um leigubílamálið, sem birt var í desember 2022, nokkrum dögum eftir að Alþingi hafði látið hrekja sig til að samþykkja frumvarpið. 

Sýndarmennska elur af sér gervisamfélag. Gervisamfélag leiðir fram gervistjórnmál.

Við lifum á öld eftirlíkingarinnar. Öld uppgerðar. Öld sýndarmennsku. Við eigum fáa sanna vini í raunheimum en þúsundir „vina“ í netheimum. Samfélagsmiðlar eru andfélagslegur vettvangur, sem málsvarar lýðræðis hafa á síðustu árum notað til að grafa undan málfrelsi.

Menntastofnanir vanrækja gagnrýna hugsun. Þeir sem mest flagga eigin góðmennsku vilja að ríkið axli ábyrgð á allri góðvildinni. Skattfé er sólundað í nafni umhyggju. Undir merkjum manngæsku er velferðarkerfið smám saman sligað, þar til það að lokum mun hrynja undan eigin þunga. Undir yfirskini trúleysis gera menn vísindin að átrúnaði og fræðimenn að prestum. Uggvænleg reynsla síðustu ára bendir til að frelsisákvæði í stjórnarskrá og lögum séu í reynd marklaus, samanber það hvernig stjórnvöldum leyfðist að kippa borgaralegum réttindum úr sambandi að vild.

Gervisamfélag elur af sér gervistjórnmál, þar sem almannatenglar hanna skoðanir og stjórnmálamenn fylgja skoðanakönnunum. Hagsmunaaðilar stýra fjölmiðlum og þyrla upp ryki sem yfirskyggir upplýsingarhlutverkið. Í heimi gervistjórnmálanna skrifa aðstoðarmenn ræður og greinar fyrir þá sem leika hlutverk þingmanna og ráðherra. Sérfræðingar móta lagafrumvörp. Þingmenn greiða atkvæði eftir flokkslínum og forðast þannig persónulega ábyrgð. Íslenska ríkið er á stöðugu (en duldu) undanhaldi innan EES. Lagasetning Alþingis líkist í auknum mæli leikriti. Á bak við tjöldin fer fram hægfara – og ólýðræðisleg – aðlögun Íslands að ESB.

Þeir sem efast um framangreinda lýsingu mega íhuga eftirfarandi dæmi:

Í nafni lýðræðislegra stjórnarhátta innleiða Íslendingar erlendar reglur umræðulaust . Í nafni alþjóðasamvinnu eru Íslendingar þvingaðir til að breyta löggjöf sinni. Frammi fyrir hótun ESA um málshöfðun fyrir EFTA-dómstólnum „ákveður“ íslenska ríkið að breyta lögum sínum, nú síðast lögum um leigubifreiðaakstur. Undir oki slíks utanaðkomandi helsis er málið kynnt í þinginu sem „frelsismál“ . Til að draga úr óbragðinu samþykkti meirihluti alþingismanna lögin 16.12. 2022 með því fororði að þau „skuli sæta endurskoðun“ eigi síðar en 1.1. 2025 „með tilliti til reynslu“ af lagabreytingunum.

Samantekt

Lög á ekki að setja að nauðsynjalausu og alls ekki að illa athuguðu máli. Hafi löggjafinn sjálfur efasemdir um réttmæti eða gagnsemi lagafrumvarps mæla öll varfærnissjónarmið gegn lögfestingu þess. Af síðastnefndum ástæðum greiddi ég atkvæði gegn lögfestingu frumvarps um leigubifreiðaakstur. Ég er ekki andvígur því að lagareglur um þetta efni séu teknar til endurskoðunar, en hefði viljað að sú endurskoðun færi þá fram að betur athuguðu máli, án utanaðkomandi þrýstings og án pínlegra afbötunarákvæða um endurskoðun þeirra reglna sem verið er að setja. Lagasetning er of alvarlegt inngrip í daglegt líf almennings til að unnt sé að réttlæta að henni sé beitt í einhvers konar tilraunaskyni.

 

[1] Áður birt í Morgunblaðinu 22. desember 2022.


mbl.is Orðrómurinn farinn að fæla fólk frá landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Engvu við þetta að bæta.

Innviðarráðherra ásamt allri ríkisstjórninni hafa sýnt það

og sannað að öll þeirra vinna er ekki fyrir hagsmuni lands og þjóðar

og ber því að víkja hið fyrsta.

Sigurður Kristján Hjaltested, 10.7.2024 kl. 09:40

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hvernig fáum við ríkisstjórnina til að víkja? Mér heyrist að það sé ekki vegur nema gegnum Alþingi,þótt einn ráðherra sé ber að Stjórnarskrábroti.

Helga Kristjánsdóttir, 10.7.2024 kl. 15:32

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Tilfinning mín er að flest lög hér á landi hafi verið sett bara til þess að setja lög.

Þess vegna mætti að skaðlausu (jafmvel, og mjög líklega heldur til hagsbóta) fella þau flest niður.

Ásgrímur Hartmannsson, 10.7.2024 kl. 17:08

4 identicon

Sæll Arnar

Lögin eru sérstakur kapítuli. Annar er að lögin eru gullhúðuð. Og sá þriðji og mikilvægasti að lögin hafa verið þverbrotin. Hundruð ógildra leyfa sem með réttu ætti að afturkalla hafa verið gefin út. Lögreglan sem hefur eftirlit með lögunum ásamt Samgöngustofu hefur, að virðist, betra við tímann að gera.

EINAR S HÁLFDÁNARSON (IP-tala skráð) 10.7.2024 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband