Samantekt um ,,Forystusætið" á RÚV í gærkvöldi

 
Frambjóðendur annarra stjórnmálaflokka tala tungum tveim og sitt með hvorri af því þeir vilja vera ATVINNUSTJÓRNMÁLAMENN. Þau hafa gleymt því að stjórnmálin eiga ekki að snúast um þá sem eru í stjórnmálum, heldur um FÓLKIÐ Í LANDINU.
Málflutningur frambjóðenda XL grundvallast á því að hér búi frjáls þjóð í frjálsu landi. Við viljum verja það sem er satt, gott og fagurt. Ég skora á fólk að kjósa með hjartanu. Ef fólk vill breytingar, þá verður það að kjósa breytingar. Lýðræðisflokkurinn hefur ekki svikið kjósendur.
 
P.S. Umhugsunarefni fyrir Íslendinga: Þáttastjórnandi setti fram lýsingu á Eldi Smára sem AÞJ kannaðist ekki við, enda mun sú lýsing ekki eiga stoð í raunveruleikanum: Eldur hefur aldrei verið handtekinn, aldrei fjarlægður af lögreglu, aldrei ráðist persónulega að fólki og ekki einu sinni fengið stöðumælasekt! Má ríkisfjölmiðill setja fram órökstuddar ásakanir með þessum hætti og vega þannig að mannorði þeirra sem ekki eru viðstaddir til að andmæla?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Mér fannst stríðið að þú bentir ekki a að það þyrfti fyrst að breyta stjórnarskránni áður en kosið verði um aðildarumsókn í ESB. Annað væri brót á  stjórnarskrá 

Eggert Guðmundsson, 27.11.2024 kl. 09:57

2 Smámynd: Arnar Þór Jónsson

Takk, Eggert, þetta er rétt hjá þér og ég hef raunar bent á það í öðrum viðtölum. Góð kveðja, ARnar.

Arnar Þór Jónsson, 27.11.2024 kl. 10:05

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Boðflennan er tvisvar rekin frá og skal milda orðin um okkar kriststrú og óska Íslandi til hamingju með kosninguna frá innstu hjartarótum...guð blessi ísland!

Helga Kristjánsdóttir, 28.11.2024 kl. 01:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband