Eyðimerkurgangan

Bandaríkjamenn eru u.þ.b. þúsund sinnum fleiri en Íslendingar. Það þýðir að gera megi ráð fyrir að þar búi þúsund sinnum fleiri vitleysingar en hér, en líka þúsund sinnum fleiri vitringar - og allt þar á milli. Þetta er þó sett fram með þeim fyrirvara að ekki er víst að ég og t.d. "sérfræðingar" RÚV værum sammála um hvernig raðað yrði í þessa flokka. Dæmi: RÚV kallar Robert F. Kennedy "rugludall" á meðan ég myndi kalla hann réttsýnan, hugrakkan baráttumann fyrir því sem er satt og rétt, göfugt, dygðugt og lofsvert. 

Þetta er nefnt hér eftir að hafa horft á viðtal við RFK þar sem hann fjallar um mikilvægi þess, fyrir okkar andlega þroska og vonandi uppljómun, að menn fari í gegnum einhvers konar eyðimerkurgöngu. Vitnar hann í því samhengi til Móse, Jesú, Búdda o.fl. Frammi fyrir þessu hvarflaði hugurinn til þeirrar spurningar hversu margir Íslendingar tali á þessum nótum um tilveru sína í samhengi við málefni líðandi stundar. Leitt er frá því að segja að ýmsir þeir sem vildu gefa mér ráð á síðasta ári réðu mér frá því að ræða viðfangsefni líðandi stundar í sögulegu, trúarlegu eða heimspekilegu ljósi. "Íslendingar hafa ekki áhuga á neinu slíku" / "Íslendingar þekkja þetta ekki og fá minnimáttarkennd" / "Þetta skiptir engu máli, Íslendingar vilja bara heyra umfjöllun um það eina sem er sannarlega mikilvægt, þ.e. efnahagsmál". 

Í minni eigin eyðimerkurgöngu, þar sem vinna þarf úr reynslu síðasta árs, er þetta einna erfiðast að melta: Að þjóð mín sé ekki meðvituð um það að við erum í grunninn andlegar verur, sálir í dauðlegum líkömum, og að hlutverk okkar hér sé að leita ljóss og sannleika, en ekki að keppa við hvert annað í myrkrinu um peninga og veraldleg völd. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vel sagt Arnar Þór.

Það er ein bók ofar öllum sem opnaði mína gátt á hinum andlega þætti í lífinu en það er bókin Sumarlandið eftir Guðmund Kristinsson. Eftir þann lestur breyttist mín ásýnd á lífið og hvað gerist eftir það. Ég lánaði þessa bók fyrir mörgum árum og fékk aldrei aftur en hef leitað af nýju eintaki undafarna mánuði en ekki fundið enda er bókin alltaf uppseld strax og hún er endur gefin út. Þessi bók er biblían mín og þið sem ekki hafið lesið hana þurfið að finna ykkar eintak. Get lofað ykkur að margt breytist eftir lesturinn og þið sjáið lífið í öðru ljósi.

Trausti (IP-tala skráð) 19.1.2025 kl. 10:59

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Mjög góður pistill. Þótt þú hafir ekki náð að komast á þing eða að verða forseti, þá get ég sagt það að mér finnst þú orðinn einn af beztu pistlahöfundunum hér. Réttlæti heimsins er ekki fyrir að fara alltaf í pólitík eða slíkum sviðum. Vesturlönd eru á sinni eigin göngu og þar eru tízkutrendin allsráðandi en ekki það sem hefur sannazt að hjálpar þjóðum mest í gegnum söguna, eins og vizka og þroski eða andleg sannindi.

En ég tek eftir ákveðinni þróun í íslenzkum og vestrænum samfélögum, sem kannski tekur mjög langan tíma - eða að minnsta kosti 20 ár í viðbót. Sú þróun speglast bezt í því að flokkar eins og Píratar og Vinstri grænir þurrkuðust út við síðustu kosningar. Það er óhætt að segja að það voru frábærar fréttir. Annar flokkurinn bar ábyrgð á fækkun Íslendinga og hinn óbeint með stuðningi við það mál. 

Ekki svo að segja að fólkið sé vont í þessum flokkum, en það þarf þroska til að stjórna landi og setja lög. Það er nóg til af þrýstihópum og bergmálshellum, en það eru aðeins lágværar raddir sem sumir telja "þjóðina alla" - ("þið eruð ekki þjóðin" sagði einhver pólitíkus í Hruninu.

Almenningur fær ógeð á vitleysum og dillum - fyrst VG og Píratar hurfu, en hefur ekki dómgreind, kýs einhverja aðra vitleysu inn í staðinn fyrir þá vitleysu sem er hafnað.

Þannig er nú nýjasta trendið:Skyldi það vera málið að fara í ESB og láta Viðreisn leiða þjóðina?

Donald Trump kosinn í annað sinn, það segir sitt. Hann er ekki fullkominn, langt frá því, en það sýnir vestrænt þjóðfélag sem er í gerjun, og leitar út fyrir box sem jafnaðarmenn settu fólk í fyrir nokkrum áratugum. Box sem ekki passa lengur, skaða, hjálpa ekki.

Ingólfur Sigurðsson, 20.1.2025 kl. 02:37

3 identicon

Já og það er merkilegt að þegar fólk hefur ekki sett sig vel inn í hvað eru eðlileg þroskuð gildi þjóðar og þroskaðar aðgerðir til að viðhalda þeim gildum í nútíma. Þroski þjóðar eftir fyrri baraáttu ættfeðra og ættmæðra okkar. Þroski þjóðar eftir harða baráttu þeirra í landi íss, elda og eldgosa ásamt hafs sem tekið hefur svo mörg líf. Má bara henda mörgu af því sem skiptir þjóð máli? Ef ekki hefði verið rætt um heimspeki af grískum heimspekingum og skilning á því hvað þjóð er, sem eflast færri hafa kynnt sér og lesið um, þá mætti halda að þjóðin sjálf finni sér alltaf farveg út úr því verðmæta hugtaki "Þjóð", aðeins fyrir sjálfa sig og óendanlega kaldan veruleika á ólgandi sjó alþjóðahyggju, þar sem þjóðin fjarlægist sig sjálfa, lengra frá landi en fyrr og er haldið að alþjóðaisma þar sem þjóðin hverfur í fjöldan og þynnist út ásamt tungumáli, trúfesti og góðum gildum á sálarferðalagi í gegnum lífið sjálft. Það hallar á hana! Af hverju má ekki halda í reipin og stýra skipinu eins vel og forfeður gerðu, þegar þau öll fundu leið til að finna lýðræðinu sess aftur 17. júní, 1944.

Til að viðhalda þjóð og réttlátum gildum fyrir hana, var Lýðræðisflokkurinn stofnaður og mun halda í þau reipi, áfram allri þjóðinni til heilla. Hver dagur er aðeins leið að því markmiði. Arnar Þór sér leiðina og það er það sem við eigum að standa vörð um inn í framtíð íslensku þjóðarinnar í næstu kosningum. Takk Arnar Þór fyrir frábæra grein.

Sólveig Dagmar,  

Sólveig Dagmar Þórisdóttir (IP-tala skráð) 21.1.2025 kl. 12:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband