29.1.2025 | 12:42
"Eru Íslendingar heimskari en aðrar þjóðir?"
Þetta er raunveruleg spurning sem ég fékk í gær hér í Bandaríkjunum. Tilefnið var umræða um afstöðu Íslendinga til forsetaframbjóðenda í USA, sbr. kannanir sem bentu til að 96% Íslendinga hefðu kosið Biden frekar en Trump (2020) og að 91% Íslendinga hefðu kosið K. Harris fremur en Trump (2025). Viðmælandi minn var hvumsa yfir einsleitninni og velti fyrir sér hvort Íslendingar hlytu þá ekki að vera mest "woke" þjóð í heimi og þar með haldnir sjálfsfyrirlitningu á háu stigi.
Mér vafðist tunga um höfuð, minnugur þess hvernig Íslendingar fyrri alda, m.a. Arngrímur Jónsson lærði, skrifuðu varnarrit til að hrekja tröllasögur um Íslendinga í erlendum ritum. Varnarrit Arngríms bar heitið Crymogæa og þar var m.a. vísað til þess að Íslendingar væru flestir læsir og að á Íslandi hefði blómstrað merkileg bókmenntahefð sem m.a. hefði varðveitt menningararf Norðurlanda. Með orðum Jóns Helgasonar átti íslensk þjóð löngum "ekki í sig brauð en einatt bar þó reisn í fátækt sinni".
En hvað er hægt að segja? Íslendingar eru ekki heimskari en aðrar þjóðir, en við höfum mögulega orðið forheimskun að bráð. Yngri kynslóðir eru illa læsar. Eldri kynslóðir leyfa RÚV að mata sig á óhollu fóðri með "fréttum" hvern einasta dag, þar til vitsmunaleg umræða nær sjaldan að rísa ofar en um persónur og hvort hlutaðeigandi sé skemmtilegur / leiðinlegur, með blítt andlit / strangur. Á Íslandi er það höfuðdyggð stjórnmálamanns að vera eindreginn stuðningsmaður fóstureyðinga, helst fram að fæðingu.
Visir.is og mbl.is eru mest lesnu fréttavefir landsins og báðir þessir vefir hallast mjög til vinstri, því Morgunblaðsvefurinn virðist aldrei hafa verið undir sömu ritstjórn og blaðið sjálft. Þá sjaldan að ég horfi á fréttatíma RÚV finn ég greindarvísitölu mína lækka, sem er mikill skaði fyrir mann sem þarf á öllu sínu litla viti að halda. Sem dæmi má nefna þessa "fréttaumfjöllun" RÚV 26. janúar sl., sem er ekki hlægileg heldur nöturlegur vitnisburður um þær ógöngur sem "þjóðmálaumræða" á Íslandi getur ratað í undir "leiðsögn" þessarar fréttastofu, sem sogar til sín þúsundir milljóna króna á ári fyrir svona "þjónustu" undir formerkjum "menningarhlutverks" RÚV sem í seinni tíð er fremur ómenningarhlutverk, því þar er woke-þráhyggjunni útvarpað og sjónvarpað alla daga.
Í hvaða skilningi eru Íslendingar nú "bókmenntaþjóð" og hvar sést bókmenntaarfurinn ræktaður í framkvæmd annars staðar en í reifurum, sem Íslendingar hafa tekið ástfóstri við? Á jólum les þjóðin sennilega minna um boðskap jólanna um ljós og mannkærleika, en velur sér heldur myrkur og morð til aflestrar.
Í þessum höfuðstað neysluhyggjunnar, Bandaríkjunum, sé ég færri í ofþyngd en heima. Ég sé færri hér með blátt hár og hring í nefinu. Færri með sjáanleg tattú. En auðvitað má ekki draga of miklar ályktanir af ytri ásýnd.
Á sama tíma og verið er að sópa sali valdsins hér í USA, lofta út og hefja endurskoðun á mörgu því sem aflaga hefur farið í stjórnsýslunni, þá hafa Íslendingar valið tvo "vitringa" af þeim þremur sem stjórnuðu landinu í "kófinu" inn á Alþingi og gert fyrrum landlækni að heilbrigðisráðherra! Á Íslandi halda stjórnmálamenn áfram að skammta sér fé úr ríkissjóði. Vilji menn ræða nánar um "Fól flokksins" [sic] og Ingu Sæland þá er gripið til varnar sem hvergi myndi duga nema mögulega í landi heimskustu þjóðar í heimi, þ.e. að það sé "einelti".
"I rest my case" og læt Jón Helgason eiga síðustu orðin:
Sú þjóð sem löngum átti ekki í sig brauð
en einatt bar þó reisn í fátækt sinni,
skal efnum búin orðin þvílíkt gauð
er öðrum bjóði sig að fótaskinni.+
Sú þjóð sem horuð ærið afhroð galt
af ofurheitri trú á frelsið dýra,
hún býður lostug sama frelsi falt
með fitustokkinn belg og galtarsvíra.
Sú þjóð sem veit sér ekkert æðra mark
en aurasníkjur, sukk og fleðulæti,
mun hljóta notuð herra sinna spark
og heykjast lágt í verðgangsmanna sæti.
Sú þjóð sem dottar dáðlaus, viljasljó,
og dillar þeim er ljúga, blekkja, svíkja,
skal fyrr en varir hremmd í harða kló.
Hægt er að festast, bágt mun úr að víkja!
(Jón Helgason, 1951)
Inga Sæland keypti tvær fasteignir með stuttu millibili | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég vil votta þér samúð fyrir þau áföll sem þú hefur orðið fyrir og missi. Einnig vil ég segja að ég hljóp svolítið á mig nýlega þegar ég stóð með Ingu Sæland og taldi alla gagnrýni á hana ranga. Þessar fréttir og aðrar sýna að í hana er kominn hroki og þetta er ekki til eftirbreytni með hana.
Það mun koma í ljós þegar og ef þú kemst til valda í ríkisstjórn hvort þau orð mín hafi verið rétt í pistli mínum nýlega að þú sért ekki skárri en Inga Sæland og aðrir sem hafa orðið spilltir, en þau orð voru kannski ekki alveg skrifuð í fullu jafnvægi, þar sem ég taldi hana yfir spillinguna hafna og vildi ekki trúa því að hún væri eins. Sannleikanum er hver sárreiðastur og það á við mig eins og aðra.
En fólk getur verið bæði gott og vont á sama tíma, og það getur verið spillt en reynt að gera eitthvað rétt samt. Það er ljóst af ýmsu í fréttum að Inga Sæland er breytt manneskja. Samt vonandi ekki búin að gleyma ýmsu sem hún vill gott gera.
Ég tek hér algjörlega undir gagnrýni á RÚV.
Ég vil taka það aftur sem ég skrifaði að ég telji útilokað að ég kjósi þig í framtíðinni, það tel ég rangt. Það verð ég að meta seinna. Þau orð voru skrifuð út frá röngu mati á Ingu Sæland og að því er mér fannst eineltis í hennar garð, sem mér fannst vera.
En hitt er þó rétt í fréttum RÚV og víða, að brotalamir eru á regluverkinu og því ríkisstjórnin öll í vanda og svo mistök gerð af fyrri ríkisstjórn, Inga Sæland ekki ein sek eða hennar flokkur um þessi mistök.
Inga Sæland hefur verið dýrkuð. Hennar dýrðarljómi féll á mig líka. Eitthvað er farið að minnka dýrðarljóminn.
Barátta þín fyrir heilsu Íslendinga er dýrmæt, að láta ekki glepjast af risalyfjafyrirtækjunum.
Vonandi að þú takir það sem uppbyggilega gagnrýni, þegar fólk er ósammála þér. Með rökfestu sannfærir þú mig og aðra.
En ég hef ekki misst alla virðingu fyrir Ingu Sæland, ég vona að ríkisstjórnin standi þetta af sér, og eigi eftir að hjálpa fólkinu í landinu.
Beztu kveðjur.
Ingólfur Sigurðsson, 30.1.2025 kl. 03:33
Heill og sæll Ingólfur.
Vitur maður skiptir um skoðun, en heimskinginn aldrei. Það er þroskamerki og gáfumerki að geta endurskoðað fyrri afstöðu og fyrir það vil ég hrósa þér. Gangi þér allt í haginn. Góð kveðja, Arnar.
Arnar Þór Jónsson, 30.1.2025 kl. 10:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning