Kæri Íslendingur, þú býrð í "költi".

Þegar maður fer út af sínu hefðbundna tímabelti er varla hægt að tala um andvökur þótt menn vakni fyrir allar aldir í fjarlægu landi, hugsi í myrkrinu um heimalandið og bregði ljósi á aðstæður frá nýju sjónarhorni. 

En samt var ég andvaka yfir eftirfarandi setningu í frétt sem vísað var til á þessum stað í gær: "Aðeins 9% segj­ast myndu kjósa Don­ald Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta og for­setafram­bjóðanda re­públi­kana. Kon­ur eru lík­legri en karl­ar til að kjósa Harris. Þannig lýsa 96% kvenna stuðningi við vara­for­set­ann sam­an­borið við 85% karla. Þá myndu 15% karla kjósa Trump en aðeins 4% kvenna." Ég treysti mér til að fullyrða að öfugt við marga aðra minnihlutahópa telja þessar fáu konur sig ekki þurfa neina vernd frá stjórnvöldum, því þær eru viljasterkar, sjálfsöruggar og sjálfstæðar. En svo laust þessari hugsun í kollinn á mér eins og eldingu: Þær eru svo fáar að ég hlýt að þekkja þær allar ... með nafni! Við þetta stökk ég á fætur og hugsaði: "Hvers konar land er Ísland? Í hvers konar landi hef ég eiginlega búið?". Til að hrista af mér þá tilfinningu að Ísland væri óbyggilegt þeim sem vilja hugsa sjálfstætt spurði ég sjálfan mig og svo gervigreindina: Hver er skilgreiningin á "költi" (e. cult)?

Svarið var á þá leið gð "cult" væri:

Hópur sem er mjög helgaður leiðtoga, hugmyndafræði eða trúarkerfi, oft á öfgafullan og stjórnandi hátt. Þó að orðið hafi upphaflega átt við trúarhópa, hefur það nú tekið til alls konar hópa – stjórnmálalegra, félagslegra, viðskiptalegra eða hugmyndafræðilegra – sem sýna ákveðna stjórntæka eða kúgandi hegðun.

Gervigreindin telur að jafnvel lýðræðisríki geti sýnt tilhneigingu í þá átt að fara að hegða sér eins og "költ" eða sértrúarsöfnuður, sérstaklega þegar:

  • Leiðtogar krefjast algjörrar hollustu og líta á sig sem „eina sanna lausnina“.
  • Stjórnarandstaða er útmáluð sem „óvinir þjóðarinnar“.
  • Fjölmiðlar eru stjórnaðir til að þrýsta fram einni samþykktri skoðun.
  • Borgarar verða of hollir leiðtoga eða hugmyndafræði á kostnað lýðræðislegra gilda.

Lýðræðisríki hafi þó varnarkerfi, eins og frjálsa fjölmiðla, kosningar og borgararéttindi, en þessi kerfi geta veikst ef borgarar leyfa leiðtogum að stjórna án gagnrýni.

Mér varð hugsað til "þríeykisins" góða sem barðist svo "frækilega" við "veiruna skæðu" og reynslu síðustu ára, þar sem allt þjóðfélagið gekk af göflunum með innilokunum, grímum, 2m reglu, almennri taugaveiklun og óttastjórnun. Á þessum tímabili, þegar ég var í harðasta andófinu, var ég einu sinni spurður hvort eitthvað hefði "komið fyrir" mig, því ég hefði áður alltaf verið svo "næs" og góður. Eftir á að hyggja tel ég að nærtækara væri að spyrja hvort eitthvað hafi komið fyrir samfélagið. Hvað gæti það hafa verið? Gervigreindin svarar:  

Helstu einkenni költs / sértrúarsafnaðar

  1. Hörð eða einræðisleg forysta

    • Leiðtogi (eða lítill valdakjarni) er dýrkaður og talinn óskeikull.
    • Vald hans er algjört og ekki má efast um það.
  2. „Við gegn hinum“ hugsunarháttur

    • Hópurinn trúir því að hann hafi eina sanna sannleikann, en aðrir séu afvega leiddir, hættulegir eða vondir.
    • Meðlimum er sagt að vantreysta eða slíta tengsl við utanaðkomandi aðila.
  3. Hugstýring og hugsanamótun

    • Hópurinn stjórnar upplýsingaflæði og dregur úr gagnrýninni hugsun.
    • Andóf er bælt niður, og meðlimum er þrýst í átt að algjöru hlýðni.
    • Einstök orðræða er notuð til að stjórna hugsun (t.d. eru efasemdamenn kallaðir "svikarar" eða "óverðugir"). [Innskot AÞJ: Eða "samsæriskenningamenn"].
  4. Misnotkun (fjárhagsleg, tilfinningaleg eða líkamleg)

    • Meðlimum er þrýst til að gefa peninga, vinnuafl eða fullkomna hollustu til hópsins.
    • Fórnir eru taldar vera „sönnun“ á tryggð.
    • Yfirstjórnendur njóta góðs á meðan almennir meðlimir þjást.
  5. Einangrun og stjórn

    • Meðlimir eru oft skildir frá fjölskyldu, vinum eða öðrum upplýsingalindum.
    • Strangar reglur gilda um hegðun, klæðnað, sambönd og jafnvel hugsanir.
  6. Ótti, sektarkennd og refsingar

    • Meðlimir eru haldnir í hlýðni með ótta við refsingu, skömm eða hræðslu við að yfirgefa hópinn.
    • Sumir sértrúarsöfnuðir nota hótanir, opinbera niðurlægingu eða brottrekstur til að stjórna hegðun.
  7. Erfitt eða hættulegt að yfirgefa hópinn

    • Að yfirgefa hópinn er talið vera svik og getur leitt til útskúfunar, hótana eða ofbeldis.
    • Sumir fyrrverandi meðlimir upplifa alvarlegan andlegan vanda eftir að þeir fara, vegna áralangrar mótunar.

Er þetta hjálplegt til að skilja hegðun íslensku þjóðarinnar síðustu ár? Er þetta ein leið til að skilja hvernig sú staða getur komið upp í yfirlýstu lýðræðisríki að yfir 90% fólks sé á einum og sama (leyfilega) skoðanavagninum? Er gott að búa í þannig samfélagi? Er það frjálst samfélag? 

Í leit að svörum úr mínu persónulega lífi, staldra ég við nokkra tímapunkta. Hvenær vissi ég fyrst að eittvað mikið væri að / að við værum farin a ritskoða okkur sjálf / að hugur fólks væri orðinn ófrjáls? Svar: Árið (2019) sat ég við árbakka á fallegum sumardegi ásamt tveimur góðum vinum. Hópur af æðarfuglum svömluðu í hylnum fyrir neðan okkur. Ég orðaði þá hugsun að æðarfuglinn hefði ekki fengið minnisblaðið frá hinu opinbera um að nú væru kynin ekki lengur 2 heldur 73. Þetta var óviðeigandi athugasemd. Ég sá það þá og sé það enn betur nú. Það er tímabært að ég biðjist afsökunar. Þegar menn búa í "költi" þá eru engir hugsanaglæpir leyfðir, ekki einu sinni í fámenni við árbakka á björtum sumardegi má brosa að slíkum villum. Þegar svo er komið, þá er eitthvað mikið að ... og hugsanaglæpamenn (eins og ég og 4% íslensku kvenþjóðarinnar!) mega teljast heppnir meðan þeir eru ekki tilkynntir til æðstu presta rétttrúnaðarins. En auðvitað hef ég löngu verið klagaður þangað ... og kannski best að halda sig sem lengst í burtu meðan hópurinn æðir áfram í blindri fullvissu um að sannleikurinn hafi verið höndlaður af útnefndum sérfræðingum stjórnvalda og að hlutverk almennings sé að sitja / standa / æða áfram í þá átt sem leiðtogarnir / menningarvitarnir / æðstu réttrúnaðarprestarnir / fréttamennirnir vísa til á hverjum tíma. 

Takmörkuð persónuleg greind mín og gervi-greind Chatgpt segir að heil þjóð geti vissulega sýnt einkenni "költs" eða sértrúarsafnaðar og að það gerist þegar stjórnvöld nota hugmyndafræðilega kúgun, áróður og félagslega pressu til að móta skoðanir og hegðun borgaranna. Í slíku ríki drottnar tiltekin hugmyndafræði yfir samfélaginu (á okkar tímum aggressífur woke-ismi. Slíkt ríki lýtur heildreænni hugmyndafræðilegri stjórn: 

Ríkisstjórnin framfylgir einni samþykktri hugmyndafræði og útilokar allar aðrar skoðanir. Mótsagnarkenndar hugmyndir eru taldar vera hættulegar eða svik við þjóðina. Borgarar eru stöðugt minntir á ytri óvini til að réttlæta harðar aðgerðir. Almenningur er undir stöðugu eftirliti með njósnum, leynilögreglu eða svikum innan samfélagsins. Borgarar eru hvattir eða þvingaðir til að tilkynna hver annan. Opinberar hátíðir, hollustueiðar og fjöldasamkomur eru skyldubundnar. Að mæta ekki getur leitt til tortryggni eða refsingar. Stjórn á menntun og upplýsingum. Skólar kenna aðeins ríkisleyfð fræði. Frjáls fjölmiðlun er bönnuð eða ritskoðuð. 

En kæru skoðanakúguðu, óttaslegnu Íslendingar: Þessu myrka tímabili mun brátt ljúka. Brátt rennur aftur upp sá tími að heimilt verði að segja óviðeigandi og lélega brandara í góðra vina hópi í frjálsri náttúru. Ástæður þessarar frelsunar eru tvíþættar:

1.Óumdeilt forysturíki Vesturlanda hefur hafnað woke-vitleysunni í lýðræðislegum kosningum. 

2. Gamla fjölmiðlaumhverfið er að hrynja. Meginstraumsmiðlar eru búnir að missa trúverðugleikann sem þeir höfðu áður. Elon Musk hefur sprengt þetta í tætlur með því að kaupa Twitter, sjá x.com Auðsjáanlega er mikið um rusl / óþarfa / bull þarna, en inn á milli finna menn þarna sjónarmið / fréttir / upptökur sem meginstraumsmiðlarnir þegja um, en almenningur verður samt að vita af. Á slíkum frjálsum vettvangi ber margt ljótt og óþægilegt fyrir sjónir, en við þurfum enga Fjölmiðlanefnd til að vernda okkur fyrir því. Afleiðingin er sú að óþægilegt dagsljós er þegar farið að beinast að innviðum vestrænna samfélaga á nýjan leik. Sólarljós er besta sótthreinsun sem völ er á. 

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Mikið rétt. Íslendingar hafa valið költ-fyrirkomulegið. Í því var Trump álitinn kjáni sém átti peninga. Mikið af peningum, nóg til að kaupa sér völd. Ríkur rugludallur. Þetta viðhorf mátti heyra fyrstu dagana eftir að hann náði kjöri. Nú er afstaðan að mildast og eins og þú segir "sólarljós" er tekið að skína á kúgunina sem umlukið hefur okkur allt síðan í Hruninu.

það merkilega við hina nýju fjölmiðlun er að stærstu leikendur á sviðinu eru flóttamenn frá demokrataflokknum. Ekki bara Elon Musk heldur líka Joe Rogan, Glenn Greenwald og Mátt Taibi. Fólk sem fengið hafði nóg af hermanginu, vælumenningunni og anti-anti-racismanum. Tucker Carlson var reyndar alltaf hægra megin en flaut með straumnum, þótt nú hafi hann náð landi. Þessar raddir hafa gríðarleg áhrif í BNA og eins og þú nefnir, þá hefur forysturíki Vesturlanda breytt kúrs. Samanlagt munum við eflaust fyrr en seinna sveiflast í hina áttina. Sem er heldur ekki gott því gagnrýnin hugsun gerir kröfu um viðfang. Vonandi verður þú þar áfram.

Ragnhildur Kolka, 30.1.2025 kl. 13:14

2 Smámynd: Arnar Þór Jónsson

Sæl Ragnhildur, takk fyrir athugasemdina. Það er rétt sem þú segir að það þarf líka að veita viðnám með gagnrýninni hugsun ef / þegar pendúllinn sveiflast af ógnarkrafti í hina áttina. Siðfræði mótmælenda gerir þá kröfu til okkar að við höldum sjó í sveiflukenndu umhverfi. Í kosningabaráttunni var þetta notað gegn mér og ég sakaður um að vera "einstrengingslegur", en í raun snýst afstaða mótmælandans um að viðhafa hugarfar réttmætra efasemda, spyrja gagnrýninna spurninga og halda fast í sín föstu viðmið. Það heitir eindrægni en ekki einstrengingsháttur. Þú hefur verið ljós í myrkri síðustu ára. Takk fyrir að vera þú.

Arnar Þór Jónsson, 30.1.2025 kl. 13:25

3 identicon

Lýsingarnar á költi passa alveg einstaklega vel við Trump/MAGA, og það áberandi mikið betur í öllum atriðum en nokkuð annað sem AÞJ vill flokka sem költ.

Glúmm (IP-tala skráð) 30.1.2025 kl. 17:04

4 Smámynd: Arnar Þór Jónsson

Gloom, RFK jr. er dæmi um mann sem yfirgaf "költið" þitt og er hataður þar fyrir vikið. Í gær fór hann fyrir þingnefnd í fulltrúadeildinni og viti menn: Skýr tenging virðist vera milli þess hve harkalega þingmenn réðust á hann og fjárhæð þeirra styrkja sem viðkomandi hafa þegið frá lyfjaframleiðendum. Sjá: https://x.com/elonmusk/status/1884952334284812579

Þetta er líka gott til umhugsunar: https://x.com/sabback/status/1884974368268099739

Og þetta er líka gott: https://x.com/moneysavvyminds/status/1884952748828794967

Arnar Þór Jónsson, 30.1.2025 kl. 17:24

5 identicon

Og hvað??? Er RFK jr. ófær um að svara spurningum heiðarlega ef spyrillinn er ágengur og lætur hann ekki komast undan með útúrsnúningum?

Allir þingmenn beggja flokka hafa þegið framlög frá ýmsum hagsmunaaðilum og gengið erinda þeirra, RFK jr. er þar engin undantekning.

Í gær fór RFK jr. fyrir þingnefnd í fulltrúadeildinni og viti menn: Ógn og skelfing, ekki var um drottningarviðtal að ræða og hann þurfti að svara alvöru spurningum. Hvað er athugavert við spyrla sem taka starf sitt alvarlega? Átti bara að ræða um veður, tísku og Eurovision?

Glúmm (IP-tala skráð) 30.1.2025 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og þrettán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband