31.1.2025 | 12:09
Dauðans alvara
Nú veit ég ekki með ykkur, kæru lesendur, en allt í kringum mig er fólk nýlega búið að uppgötva að það er með "meðfæddan hjartagalla". Ég þekki nú óvenju marga sem hafa fengið hjartaáföll á besta aldri eða því miður dáið skyndilega. Bara í mínum nánasta hring get ég talið upp 7 einstaklinga á aldrinum 25-60 ára af báðum kynjum, sem hafa annað hvort dáið eða verið við dauðans dyr vegna hjartavanda. Var þetta daglegt brauð hér áður fyrr? Ég minnist þess ekki. Muna fyrri kynslóðir eftir annarri eins bylgju af líkamlegum kvillum ungs fólks? Nú er verið að auglysa hjartastuðtæki á Mbl sem mikilvægt öryggistæki á öllum vinnustöðum. Datt einhverjum slíkt í hug fyrir fáum árum? Er eitthvað hérna sem við erum ekki að sjá? Hefur eitthvað breyst? Er fólk undir meira álagi en áður? Er fólk í verra líkamlegu ásigkomulagi? Er fólk að borða óhollari mat? Eitt má ekki tiltaka í svona upptalningu, þ.e. hvort hugsast getur að allir þessir nýuppgötvuðu, meðfæddu hjartagallar og þessi hjartaáföll kunni að standa í samhengi við það að 90% þjóðarinnar lét sprauta sig með efnakokteil sem ekki hafði farið í gegnum hefðbundin öryggispróf. Og hvað með alla þessa blóðtappa sem ungt fólk er allt í einu að greinast með, jafnvel íþróttafólk á besta aldri, sem ætti að vera með bestu lungu og æðakerfi sem fyrirfinnst? Ég veit að þetta eru óþægilegar spurningar og að ekki má nefna snöru í hengds manns húsi, en við getum ekki verið mikið lengur með hausinn ofan í sandinum. Hversu lengi geta læknar haldið áfram að skýra þessi vandræði sem meðfædda galla? Er eitthvað í vatninu á Íslandi? Þetta er fyrir utan öll bráðakrabbameinin sem hafa verið að greinast á 4. stigi.
Þetta er ekki skrifað til að hræða neinn, en í frjálsu samfélagi verður fólk að fá að spyrja spurninga. Voru sprautulyfin hættulegustu lyf sem farið hafa í almenna notkun? Birtist sambærileg þróun erlendis? Ollu lyfin mögulega meiri vanda en veiran sem þau áttu að verja okkur fyrir? Hér kemur fram að lyfjaframleiðendur hafi byrjað að framleiða lyfin árið 2019 vegna þess að þeir vissu að heimsfaraldur var á leiðinni!?
Ég vona innilega að þessar spurningar séu ástæðulausar og að allt sé slétt og fellt, því vissulega er þægilegra að hugga sig við meðfædda galla en manngert lyfjavandamál.
Athugasemdir
Það fylgir því að eldast að kunningjahópurinn eldist einnig og upp koma kvillar sem maður vissi varla að væru til. Og svo er minnið ekki betra en svo að manni finnst til dæmis veturnir hafi verið snjókarlar og sleðaferðir meðan sumrin voru sólbruni og flugdrekar. Það rigndi aldrei í minningunni. Voru til lægðir og rigning fyrir 1980? Það er ekki nema það rifjist upp fyrir manni atvik eða umræða sem passar ekki inn í tilfinninguna. Eins og umræða stuttu eftir aldamót um íþróttafólk, mikið fótboltaiðkendur, sem fengu hjartaáföll í leik og nokkur banvæn krabbamein í fjölskyldunni nokkrum árum fyrr. Tölur sýndu enga fjölgun og ekkert óeðlilegt en tilfinningin var önnur og umræðan meiri.
Glúmm (IP-tala skráð) 31.1.2025 kl. 14:37
Gloom, já minnið getur verið brigðult hjá okkur öllum og því er best að skoða þetta tölfræðilega. Tölfræðin fyrir og eftir 2021 er ekki falleg: https://x.com/DrKellyVictory/status/1610375529865293825
Arnar Þór Jónsson, 31.1.2025 kl. 15:04
Tölfræði hópsins Evrópska "fyrir" er vissulega ekki falleg. En tölfræðin á X fyrir "eftir 2021" tekur með öll heilsutengd neyðartilvik hjá öllum aldurshópum íþróttaiðkenda um allan heim. Því er ekki um sambærilega hópa að ræða og ekki sambærilegar tölur.
"The researchers cited a number from a blog that lists news stories about recent deaths and medical emergencies among people of all ages, from all over the world — some of which were attributed to other causes, such as cancer. The previous figure, meanwhile, is from a 2006 study that specifically reviewed literature for reports of sudden cardiac deaths among athletes under age 35. Comparing the two sources, with different methodologies, is not scientifically sound, experts told The Associated Press."
https://apnews.com/article/fact-check-covid-vaccines-athlete-deaths-1500-989195878254
https://www.factcheck.org/2023/01/scicheck-no-surge-in-athlete-deaths-contrary-to-widespread-anti-vaccine-claims/
Glúmm (IP-tala skráð) 31.1.2025 kl. 17:01
Sem sagt, allt í himnalagi, séð úr myrkrinu hjá þér Gloom, þrátt fyrir að framleiðendurnir sjálfir virðist hafa verið meðvitaðir um alls konar mögulegar aukaverkanir, sem okkur hefur reyndar ekki verið sagt frá: https://x.com/DiedSuddenly_/status/1883344623264743708
Arnar Þór Jónsson, 31.1.2025 kl. 17:43
P.S. Kæri Gloom. Gagnlegt væri og gott að heyra frá þér, sem ert svo sanntrúaður um að góð heilsa sé best tryggð með sprautukokteilum, hversu margar covid-sprautur þú hefur þegar fengið og hvað þú sjáir fyrir þér að fá margar í viðbót áður en yfir lýkur? Fróðlegt væri líka að heyra hvort þú hvetur börn og barnabörn þín enn í þessar sprautur. Með ósk um gæfu og góða heilsu.
Arnar Þór Jónsson, 31.1.2025 kl. 18:00
Heldur þú virkilega að einhver hafi haldið að nú væri komið fyrsta bóluefni sögunnar með engar mögulegar aukaverkanir?
Það var reyndar FDA en ekki Pfizer sem gat ekki sleppt skjölunum strax og það eru 75 ár sem þeir gefa sér í að yfirfara og sleppa 500 blaðsíðum á mánuði. Það eru meðal annars einhverskonar persónuverndarlög í Bandaríkjunum sem gera þeim, FDA, að gera gögnin ópersónugreinanleg áður en þau eru opinberuð. Ýmiskonar einkaleyfi og framleiðsluleyndarmál þarf víst einnig að fjarlægja af þessum nærri hálfri milljón blaðsíðum.
Glúmm (IP-tala skráð) 31.1.2025 kl. 18:55
Þannig að þú veist sem sagt ekki ennþá að aukaverkanir vegna þessara lyfja eru margfalt algengari en vegna fyrri bóluefna? Ef þú ert enn svo óupplýstur, þá get ég ekki hjálpað þér.
Arnar Þór Jónsson, 31.1.2025 kl. 19:05
P.S. Kæri Arnar. Fyrst þú vilt vera á persónulegu nótunum. Notar þú smokk þegar þú heldur framhjá? Það væri gagnlegt fyrir þjóðina að vita. Heldur þú að bólfélagar þínir hafi kosið þig í einhverri kosningu síðasta árs? Þér kemur ekkert við minn bóluefnastatus, barna eða barnabarna. Með ósk um gæfu og góða heilsu og laus undan upplýsingaóreiðu og málfrelsiseyðandi algoritma x.com.
Glúmm (IP-tala skráð) 31.1.2025 kl. 19:19
Þú veist það Glúmm að dómarinn hafnaði beiðni FDA með þessi 75 ár sem þú ert að tala um.
Trausti (IP-tala skráð) 31.1.2025 kl. 19:26
Aukaverkanir vegna þessara lyfja eru ekki margfalt algengari en vegna fyrri bóluefna. Þú heldur víst ennþá að opna VAERS söfnunargáttin (sem er svipuð netkosningu á Útvarpi Sögu) sé eitthvað sem gáfulegt sé að taka mark á og vitna í.
Glúmm (IP-tala skráð) 31.1.2025 kl. 19:29
Þú veist það Trausti að ég var að benda á að það var FDA en ekki Pfizer sem taldi sig ekki geta sleppt skjölunum strax. En það virðist ekki passa inn í kenningua um að lyfjafyrirtækið væri að reyna að fela eitthvað, og þess vegna nota margir, gegn betri vitund en allt fyrir málstaðinn, Phizer þar sem ætti að standa FDA.
Glúmm (IP-tala skráð) 31.1.2025 kl. 19:45
Ekki margfalt algengari? Sjá hér: https://x.com/VigilantFox/status/1686399995354693633 og hér: https://x.com/veritas__vox/status/1679812555743821824
Arnar Þór Jónsson, 31.1.2025 kl. 19:45
https://fullfact.org/health/john-campbell-youtube-singapore-children/
Glúmm (IP-tala skráð) 31.1.2025 kl. 19:49
https://x.com/toobaffled/status/1850401346207330814
"Something has gone terribly wrong in highly vaccinated Singapore.
Since the rollout of the Covid vaccines 2020 to 2023;
Live births are down 13%
Stillbirths are up 115%
Deaths are up 22%
Infant Mortality rates up 22% What could possibly be the cause ?" Sjá: https://x.com/craigkellyXXX/status/1822199920025022635
Singapore vaccinated their entire adult population before their first significant covid wave, but deaths accelerated in 2021 anyway. In 2022, they boosted everyone - and deaths accelerated even further. Does this look this safe and effective, to you?
Arnar Þór Jónsson, 1.2.2025 kl. 00:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.