1.2.2025 | 12:15
Höfum við mannskap á þingi og í ríkisstjórn sem getur siglt þjóðarskútunni í heila höfn?
Í Aþenu til forna, þar sem lýðræðið er talið hafa fæðst, notuðu menn myndlíkingu um siglingu til að útskýra markmið pólitískra kosninga, þ.e. að velja hæfasta fólkið. Enginn í ríkinu (skipinu) er betur settur ef æðstu ráðamenn (skipstjórnendur) þekkja ekki lögmálin sem allir menn verða að virða ef ekki á illa að fara. Froðusnakkarar geta litið vel út við stýrið, en engin áhöfn er örugg í slíkum höndum þegar stormar fara að blása og öldur að rísa.
Mennirnir eru ljósverur í þeim skilningi að þeir þrá sannleika, birtu, hlýju og kærleika. Til eru lífverur á jörðinni sem þrífast vel í myrkri og stunda þar blóðuga lífsbaráttu, en maðurinn er ekki þannig gerður, sbr. ótal dæmi úr sögunni um að menn (konur eru líka menn) hafi fórnað lífi sínu, eignum, heilsu, stöðu og öryggi sínu til að verja það sem þau töldu gott, fagurt og satt.
Vegna útbreiddrar spillingar á Íslandi, vegna mistaka í vali á æðstu stjórnendum, vegna þess að menn hafa misst sjónar á þeim ljósum sem lýst hafa mannkyninu leið í gegnum dimmustu kafla sögunnar, þá er íslensk þjóð á rangri braut, sem mun enda með árekstri / strandi ef ekkert verður að gert. Við höfum fallið í þá gryfju að kalla hið illa gott og hið góða illt. Við höfum reynt að gera myrkur að ljósi og ljós að myrkri, hið ramma sætt og hið sæta rammt. Þessar röngu áherslur endurspeglast í menntamálum þjóðarinnar, pólitískum ræðum og daglegum fréttaflutningi.
Ísland er frábært land og hefur verið góður staður til að búa á, þangað til nýlega. Við bjuggum í öruggu, samheldnu, frjálsu samfélagi og þrátt fyrir mismunandi pólitískar skoðanir gátum við verið sammála um það sem mestu skiptir, þ.a. hvað teldist gott og illt. Nú hefur þessi samstaða raskast og afleiðingarnar birtast í margvíslegum neikvæðum myndum. Það versta er þó að Íslendingar vilja ekki færa umræðuna upp á æðra plan, vilja ekki heyra minnst á helstu ljósbera mannkynsins, svo sem Jesú Krist, Sókrates eða aðra síðari tíma menn. Nei, þeir halda að stjórnmál eigi bara að snúast um peninga, um það hvernig við getum klórað augun úr hvert öðru, þjónað valdinu (en ekki sannleikanum / Guði) og viðhaldið örlítið lengur þeirri ímynd að allt sé í góðu lagi. En þjóð án áttavita, án siglingafræðinga, án góðra skipstjórnenda getur ekki átt farsæla siglingu.
Af þessari ástæðu deili ég hér 50 atriða lista sem veitir yfirlit yfir grundvallaratriði klassískrar, vestrænnar, heimspekilegrar, guðfræðilegrar, kristinnar hugsunar, sem unninn hefur verið upp úr skrifum Aristótelesar, heilags Ágústínusar og Tómasar frá Akvínó.
Athugasemdir
Þegar stórt er spurt er oftast lítið um svör. Margir rótgrónir þingmenn virðast hafa tekið föstum rótum á alþingi vorrar þjóðar sem mætti líkja við krabbamein. Þegar maður heldur að það sé farið poppar það aftur upp á öðrum stöðum og erfitt getur reynst að eyða því. Eitt af þessum meinum vill upplýsa þjóðina nú hvað skal gera ef á skellur WWIII!
Vinur minn hefur reynt að fá mig með sér í kirkju á sunnudögum í þó nokkurn tíma og virðist ekki ætla að gefast upp á mér. Maður horfir aðeins yfir heims líkanið og sér alla þessa stjórnamálamenn blása í herlúðurinn eins og einhvern sjálfsagðan hlut og maður finnur geðveikina opinberast með brosi eins og úr myndinni Smile þá getur maður ekki annað en staldrað við og spurt: " Eru þetta virkilega endalokin? ".
Veit ekki með aðra en ég held að það sé komin tími til að ég taki boði vinar minns og fari í kirkju. Það er komin tími til að sjá eitthvað ljós í þessari myrkraveröld okkar.
Trausti (IP-tala skráð) 2.2.2025 kl. 09:28
Íslenska þjóðkirkjan, eins og aðrar kristnar kirkjur, stendur á besta grunni sem nokkur stofnun getur staðið á, en hún hefur stigið svo langt út í woke-isma að hún gæti misst fótanna ef lengra er haldið í þá átt. Í klassískum skilningi er kirkjan kyndilberi þeirrar hefðar sem listinn hér að ofan endurspeglar. Þar eru sem betur fer ennþá nokkrir prestar sem standa fastir á grunninum. Ef þið félagarnir finnið þessa presta, þá er ég viss um að þetta verða mjög góðir sunnudagsmorgnar hjá ykkur.
Arnar Þór Jónsson, 2.2.2025 kl. 10:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.