Í hnotskurn

Eins hræðilega sorglegt og þetta mál er, þá færir það okkur heimi sanninn um aðra sorglega staðreynd: Íslenska ríkið er ofvaxið og dýrt bákn, þar sem fólk fer með alls konar boð- og bannvald, en enginn ber ábyrgð. Sagan sýnir að slíkt valdakerfi leiðir fyrr en síðar til alls kyns spillingar og misnotkunar á valdi. Ríkinu munar ekki um að innheimta hér einhverja hæstu skatta í heimi, krefjast stöðugt meiri upplýsinga um borgarana, ganga stöðugt lengra í eftirliti, setja sífellt fleiri reglur, búa til sífellt fleiri stöður o.s.frv. Nei, ríkið sölsar undir sig sífellt meiri völd á kostnað þess frelsis sem stjórnarskráin var sett til að verja. 

Nú er staðan sú að um 30% fólks á íslenskum vinnumarkaði mun starfa í þjónustu ríkis og sveitarfélaga. Sú tala er í raun orðin of há tli þess að unnt sé að kjósa þetta kerfi í burtu, þar sem meirihluti kjósenda á í raun afkomu sína undir því að kerfið haldi áfram í óbreyttri mynd. Í BNA munu um 6% vinnandi fólks hafa starfað hjá hinu opinbera og þótti meirihluta Bandaríkjamanna þá nóg komið og nú er verið að segja upp þúsundum þar í landi, þ.e. þúsundum sem ekki gátu sýnt fram á að þau væru að skila gagnlegu dagsverki. 

Ábyrgð er grundvallarforsenda þess að menn skili góðu dagsverki. Ef ekki verður tekið á þessum vanda mun hann að lokum leiða íslenska ríkið í þrot. Munu núverandi þingmenn og ráðherrar leiða ganga á undan með góðu fordæmi? Er það líklegt í ljósi þess hvernig þau umgangast reglur um fjármögnun flokka, greiðslu biðlauna o.fl.? 

Svona frétt stráir salti í sár aðstandenda og allra sem eiga um sárt að binda vegna þessara voðaverka. Þeim er hér með vottuð innileg samúð. Þau - og við öll - eigum betra skilið en að þurfa að fóðra hér ríkisvald sem heimtar völd en víkur sér undan ábyrgð. 


mbl.is Enginn ber ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörvar O Jensson

BER ENGINN ÁBYRGÐ ?

AUÐVITAÐ bera þeir ábyrgð sem útskrifuðu fársjúkan mann örskömmu eftir nauðungarinnlögn sem öllum sem að komu hlaut að vera ljóst að gæti orðið hættulegur bæði sér sjálfum og öðrum.

Ég vona svo innilega að aðstandandendur hinna látnu hafi til þess þrek að ráða sér öflugan lögmann til að sækja bæði miska-og skaðabætur á hendur Landspítalanum og íslenska ríkinu.

Aðstandendum þeirra Rósu og Björgvins svo og fjölskyldunni á Skorrastað votta ég innilega samúð og hluttekningu á sfar krefjandi og erfiðum tímum.

Guð veiti ykkur öllum styrk.

Hjörvar O Jensson, 27.2.2025 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og tólf?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband