19.3.2025 | 16:46
Hvað á að verja með íslensku vopnavaldi sem Íslendingar nenna ekki að verja með lögum?
Morgunblaðið birtir þessa dagana greinaflokk eftir lagaprófessor sem vill að stofnaður verði íslenskur her. Því fleiri sem greinarnar verða og því meira sem hugsað er um málefnið verður betur ljóst að hugmyndin er glórulaus. Þeirri ábendingu ætti ég auðvitað að koma á framfæri í Morgunblaðinu sjálfu, en ég missti húmorinn fyrir að skrifa í Moggann þegar fyrir lá að þetta gamalgróna dagblað, sem kallast vill borgaralegt og hægri sinnað vildi styðja konu í æðsta embætti þjóðarinnar sem lýst hefur því yfir að hún vilji leyfa fóstureyðingar fram að fæðingu.
Málflutningur um íslenskan her getur hljómað eins og falleg músík í eyrum stjórnmálamanna og -rótgróinna stjórnmálaflokka, sem (eins og Morgunblaðið) hafa slitnað af rótum sínum og dunda sér löngum stundum við að halda á lofti klikkuðum (woke) hugmyndum í stað þess að verja hugsjónir sínar og stefnumið í þágu íslensks almennings. Hernaðarhyggja er nýtt eftirlæti allra áhugamanna um woke-isma, hvort sem þeir aðhyllast vinstristefnu eða hnattvæðingarstefnu, en mörkin þarna á milli verða sífellt óljósari. Þeir sem tala gegn vígbúnaðarkapphlaupi, hatri og hervæðingu mega vænta þess að vera kallaðir harðlínumenn eða jafnvel öfgamenn, og þessir stimplar verða breiðari með hverjum deginum og ná nú yfir þá Íslendinga sem aðhyllast enn hina klassísku sjálfstæðisstefnu, Bandaríkjamenn sem studdu stefnu Demókrata fyrir ca. 15 árum og Breta sem sakna gamla, góða Íhaldsflokksins. Málflutningur um íslenskan her hentar vel Sjálfstæðisflokki 21. aldar, sem misst hefur tengsl við venjulegt fólk, því hinn svokallaði Sjálfstæðisflokkur nútímans gæti séð í þessu tækifæri til að fá að tala um mikilvægi sjálfstæðis og grafa um leið undan því í verki (eins og XD hefur gert með ítrekuðum stuðningi við frumvarpið um bókun 35). Stofnun íslensks hers gæti líkað opnað tækifæri fyrir alla þingflokka til að vinna saman (undir merkjum pólitísks rétttrúnaðar) að því að hlaða undir flokksgæðinga sína í alls kyns nefndum og ráðum og stjórnum. Hér skapast auðvitað líka tækifæri (fyrir réttu mennina) til að stofna fyrirtæki um vopnainnflutning sem fengju opinn aðgang að fjárhirslum ríkisins. Ef ná má þessum markmiðum með skrautyrðum og hástemmdu tali úr ræðustól Alþingis skiptir engu máli þótt kjarnafylgi flokkanna haldi áfram að fjarlægjast þá, því enn má sækja peninga úr ríkissjóði og jafnvel hækka greiðslur með því að uppfæra lög um stjórnmálaflokka.
En hvað á íslenskur her að verja? M.ö.o. hver eru þau verðmæti sem íslenskur almenningur gæti talið svo dýrmæt að verja beri þau með byssum og blóði? Er það landið sem kjörnir fulltrúar okkar í sveitarstjórnum ætla, án andmæla frá almenningi, að afhenda erlendum fjárfestum undir vindorkuver um leið og kjörnir fulltrúar okkar á Alþingi hafa opnað þær flóðgáttir með innleiðingu regluverks frá ESB? Er það tungumálið okkar sem stjórnvöld vinna að því að jaðarsetja, án andmæla frá almenningi? Er það kvenfrelsið og jafnréttið sem (án andmæla frá almenningi) mun fyrirsjáanlega eyðast samhliða vexti trúarbragða sem kenna að konur séu réttlægri körlum?
Hvað á að verja með vopnum sem Íslendingar vilja ekki verja með lögum?
Sem fámenn örþjóð í stóru landi hafa Íslendingar ekki haft tök á að verjast með vopnum. Lögin hafa verið vopn okkar, sbr. m.a. sjálfstæðisbaráttu 19. aldar, þorskastríðin, útfærslu efnahagslögsögunnar, Ice-save málin og neyðarlögin eftir fjármálahrunið.
Firring ráðamanna, flokka og ríkisstyrktra fjölmiðla er orðin algjör ef gefa á þeirri hugmynd undir fótinn að örþjóð eins og Íslendingar geti varist með innlendum her, á sama tíma og eina vopn þjóðarinnar, íslensk lög, er slegið úr höndum hennar með lagasetningu um bókun 35 og síðar beinni aðild að ESB, allt í þeim tilgangi að gera erlend lög rétthærri almennum lögum frá Alþingi.
Höfundur er lögmaður sem gerði tvær úrslitatilraunir árið 2024 til að vekja Íslendinga af værum svefni.
[Greinin birtist fyrst á visir.is 19.3.2025].
![]() |
Átti mjög gott spjall við Selenskí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Blessaður Arnar.
Það er ekki oft sem maður les setningu sem er tær klassísk. Enda flestar slíkar skrifaðar á hinu klassíska tímabili Grikkja og Rómverja.
Þessi tilvitnaða setning hér að neðan segir allt, hún rammar inn kjarna, er í raun heil ritgerð.
"Hvað á að verja með vopnum sem Íslendingar vilja ekki verja með lögum?".
Já, hvað ætla menn að verja sem þeir treysta sér ekki til að verja með lögum??
Megi hún fara sem víðast, fólki til skilnings og gagns.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 19.3.2025 kl. 17:07
Heill og sæll Ómar og takk fyrir þessa athugasemd. Já, þessi setning kom til mín milli svefns og vöku ... og kjarnar sennilega margt af því sem ég hef sagt í löngu máli síðastliðin ár. Hvað (ef nokkuð) ætla Íslendingar að verja? Erum við alveg hirðulaus um landið okkar, auðlindir þess og framtíðarhagsmuni barna og barnabarna? Hér má rifja upp orð Jóns Helgasonar:
Sú þjóð sem löngum átti ‘ ekki‘ í sig brauð
en einatt bar þó reisn í fátækt sinni,
skal efnum búin orðin þvílíkt gauð
er öðrum bjóði sig að fótaskinni.+
Sú þjóð sem horuð ærið afhroð galt
af ofurheitri trú á frelsið dýra,
hún býður lostug sama frelsi falt
með fitustokkinn belg og galtarsvíra.
Sú þjóð sem veit sér ekkert æðra mark
en aurasníkjur, sukk og fleðulæti,
mun hljóta notuð herra sinna spark
og heykjast lágt í verðgangsmanna sæti.
Sú þjóð sem dottar dáðlaus, viljasljó,
og dillar þeim er ljúga, blekkja, svíkja,
skal fyrr en varir hremmd í harða kló.
Hægt er að festast, bágt mun úr að víkja!
(Jón Helgason, 1951)
Arnar Þór Jónsson, 19.3.2025 kl. 17:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning