Sjúklingur settur í fangaklefa

Vonandi er niðurstaðan, sem vísað er til í þessari frétt Mbl, til marks um að hjarðsturlunarástandið sem greip þjóðina (og yfirvöld) á árunum 2020-2023 sé runnið af mannskapnum. Til upprifjunar má lesa þessa þriggja ára gömlu frétt sem ég fékk senda í gær. Sturlunin af verri en Covid-19 því hún hafði verri afleiðingar: Hún leiddi til efnahagskreppu, félagslegrar einangrunar, ofneyslu áfengis og lyfja, olli sálrænu tjóni (kvíða, þunglyndi, einmanaleika) og birti einhvers konar siðrof þar sem samband borgaranna við yfirvöld gerbreyttist og stjórnarskráin var tekin úr sambandi. Allt var þetta verra en veiran sjálf og allt þetta tjón var af mannavöldum. Hverjir báru þar þyngsta ábyrgð? Jú, þetta var allt framkvæmt af sérfræðingum (sem hafa menntast til þröngsýni) og ráðamönnum (sem höfðu engin ráð önnur en óráð).

covid sjúklingur

Fyrri áætlunum, sem áður höfðu gilt og snerust allar um að verja frjálst samfélag (með áherslu á að verja og styðja þá sem yrðu veikir) var öllum hent í ruslið þegar C19 birtist. Grímuskylda, bólusetningar, lokanir fyrirtækja, fjarlægðarmörk, samkomutakmarkanir, plastskilrúm ... allt til að svipta fólk réttindum og frelsi. Valdboð og harðræði var innleitt undir yfirskini lýðheilsu. 

Ísland, eins og önnur vestræn ríki, er með stjórnarskrá sem verndar frelsi einstaklingsins. En þegar C19 skall á var stjórnarskráin sett í frysti. Dæmi: Fólki var smalað á sóttvarnahótel (sett í stofufangelsi) samkvæmt ákvörðun sóttvarnalæknis (sem fór með nokkurs konar alræðisvald). Þvert gegn lögum beitti sóttvarnalæknir valdi gegn fólki sem ekkert lá fyrir um að hefði smitast af veirunni, en samkvæmt sóttvarnalögum mátti aðeins takmarka athafnafrelsi þeirra "sem grunur leikur á að hafi verið útsettir fyrir smiti". Skyndilega bjuggum við í ríki þar sem allir lágu undir grun og þar sem einn maður mátti skerða frelsi fólks (ferðafrelsi, fundafrelsi o.fl.) með ákvörðun sem ekki var unnt að fá skriflega og ekki unnt að bera undir dóm.

Í tilviki "covid-sjúklingsins" sem vísað er til í fréttinni frá 2022 sér maður fyrir sér frelsissviptan vesalings mann í stofufangelsi á hótelherbergi sem hugsanlega hefur farið aðeins of oft í mini-barinn og svo laumast út til að reykja ... og var þá handtekinn af lögreglu! Ef maðurinn var í raun "sjúklingur" hefði þá ekki farið betur á að vista hann á sjúkrahúsi? "Sjúklingurinn" virðist ekki hafa verið veikari en svo að hann þótti best geymdur í fangaklefa. Lesendur geta svo ímyndað sér hvernig slíkur "sjúkraflutningur" fór fram í lögreglubílnum og hvernig hann samræmdist sóttvarnareglum. 

Allt þetta tímabil sem hér um ræðir gerðu stjórnvöld aðför að persónufrelsi almennings og mannréttindum. Í raun fólu aðgerðirnar í sér aðför að stjórnarskránni. Í stað réttarríkis vöknuðu Íslendingar upp við að þeir bjuggu í sóttvarnaríki þar sem allt var valdhöfum leyfilegt í nafni ætlaðs "öryggis". Í nafni "öryggis" tók fjölmiðlanefnd þátt í viðamiklli alþjóðlegri ritskoðun með þeim "árangri" að þúsundir myndbanda með "röngum upplýsingum" voru "fjarlægð" af netinu. Í nafni "öryggis" var skólum og vinnustöðum lokað, samkomustöðum var sömuleiðis lokað, fundir voru bannaðir, mótmælendur skrumskældir, óvísindaleg fjarlægðartakmörk sett á. Öllum má vera ljóst að frelsissvipting á hótelherbergi samræmist illa kröfum stjórnarskrár um réttláta málsmeðferð og að viðamikið eftirlit lögreglu gekk yfir mörk friðhelgis einkalífs, auk þess sem framganga stjórnvalda braut margvíslega gegn því grunnviðmiði að í frjálsu samfélagi gildi enn meginreglan "Minn líkami, mitt val".

Allt var þetta gert vegna órökrétts ótta við C19 (IFR 0,3%), í blindri hollustu við fyrirmæli "þríeykisins", í þjónkun við hagsmuni lyfjaframleiðenda og til að framfylgja öllu þessu var hræðsluáróðri beitt til að tryggja hlýðni almennings. 

Eftir sitjum við með skaða á réttarríkinu, þar sem stjórnvöldum leyfðist að fótum troða ákvæði stjórnarskrár um borgaralegt frelsi og innleiða hér ritskoðun. Frammi fyrir þessu ber okkur að íhuga og kalla eftir umræðu um hver muni koma frelsi okkar til varnar þegar næsta ógn birtist við sjóndeildarhringinn. Er líklegt að embættismennirnir komi okkur þá til varnar? Stjórnmálamennirnir? Dómararnir? Fjölmiðlarnir? Háskólamennirnir? Eða getur verið að við verðum sjálf að fara að taka ábyrgð á frelsi okkar og framtíð? 

Allt ætti þetta að vera okkur dýrmæt lexía: Næst þegar þetta gerist þá hljótum við að geta gert betur, því við höfum einfaldlega ekki efni á því að fara svona illa að ráði okkar aftur, en auk þess er lífið of dýrmætt, hver stund, hvert andartak er gjöf sem okkur ber að nýta vel. Tilvera okkar hér snýst um að heiðra lífið. Við megum ekki vera í svo miklum ótta við dauðann að við hættum að lifa.  

[Grein þessi birtist fyrst á visir.is 30.4.]


mbl.is Covid-máli á frystitogara lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Arnar Þór,

Þessi hræðsluáróður var reyndar svo mikill, að heilbrigðisyfirvöld hér á landi vildu ekki fæla (eða fræða) fólk frá þessari
 bólusetningu gegn Covid, heldur ákváðu yfirvöld að gefa EKKI út eitt einasta blað varðandi innihaldsefni og hugsanlegar aukaverkanir, alvarlega aukaverkanir og/eða dauðsföll eftir bólusetningu.

Þannig að almenningur fékk EKKI eitt einasta blað, bækling eða eitt eða neitt um bóluefnið áður, þrátt fyrir að hafa spurði um það sérstaklega aftur og aftur.

Þá hafa yfiryfirvöld séð sérstaklega vel til þess að fórnarlömb og aðrir fái alls EKKI að sjá þessa leynilegu bóluefnakaupssamninga yfir svokölluðu Covid bóluefnin.   

Það bara verður að segja það eins og er, að heilbrigðisyfirvöld hér á landi eru frekar léleg, eða ekki eins og aðrar þjóðir í þessu sambandi með að gefa út bæklinga og annað yfir bóluefnin á prentuðu formi. Ég ætla samt að vona að heilbrigðisyfirvöld taki upp á því, að gefa þessar upplýsingar út á prenti varðandi innihaldsefni og alvarlegar aukaverkanir og/eða dauðsföllin er geta komið upp eftir bólusetningu, en ég á ekki von á að heilbrigðisyfirvöld hér fari að sinna þessari upplýsingarskildu.
KV. Þorsteinn.

May be an illustration of ‎2 people and ‎text that says '‎18.13 16.58 35% 迎可三4%生 LTE 川4%f GOVERNMENT THEN AND NOW 2021 2023 TAKE THE SHOT OR WE WILL FIRE γου, STARVE γου, TAKE YOUR CHILDREN PUT γου IN CAMPS AND LEAVE γου DIE WITHOUT MEDICAL TREATMENT NOBODY
   
     

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 1.5.2025 kl. 00:25

2 Smámynd: Arnar Þór Jónsson

Sæll Þorsteinn og takk fyrir athugasemdina. Það er rétt sem þú segir, aðrar þjóðir fengu betri upplýsingar en Íslendingar, sem létu fara með sig eins og búfénað. Írar fengu t.d. upplýsingablað áður en þeir voru sprautaðir. En Íslendingar þurftu ekkert slíkt, þar dugði að fá góðan plötusnúð í Laugardalshöllina og "ná upp stemningu" því Íslendingar eru stemningsfólk: Allir með og enginn vill vera útundan þegar góð lyf eru í boði - eða hvað?

Arnar Þór Jónsson, 1.5.2025 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband