Þótt Ísland sé herlaust smáríki með alls konar auðlindir, þá erum við að sligast undan heimatilbúnum og innfluttum vandamálum. Ný ríkisstjórn, eins og hinar fyrri, vill svara þessu með innheimta hærri gjöld og meiri skatta, því nú (sem fyrr) á að leysa öll mál með því að þenja út ríkisbáknið og auka völd þess. Íslendingar, í sinni félagshyggju og hjarðhegðun, eru fangar kreddunnar sem svífur hér yfir öllum vötnum, því hvort sem menn kalla sig sósíalista, jafnaðarmenn, krata, kommúnista, samvinnufólk eða sósíaldemókrata, þá leiðir þetta allt að sömu niðurstöðu, þar sem RÍKIÐ er gert að upphafi og endi allra mála. Þessi útsparkaða braut félagshyggjunnar, sem enn sogar allt þjóðlífið til sín, er svo forug og hál að ekki er gott að sjá hvernig unnt er að bremsa áður en endastöðinni er náð, þ.e. þjóðfélagsástandi þar sem hið opinbera hefur eftirlit með öllu, afskipti af öllu og stýrir öllu, allt frá fæðingu til dauða. Hin rökrétta niðurstaða félagshyggjunnar er m.ö.o. alræði þar sem stjórnvöld fara með ótakmarkað vald og flest svið mannlífsins lúta miðstýringu valdhafa sem telja sig vera fulltrúa einhuga þjóðarvilja. Þessi lýsing ætti að hljóma kunnuglega í eyrum allra þeirra sem flett hafa kennslubókum í mannkynssögu, því kommúnismi, fasismi og nasismi miða að alræðishyggju: Kommúnistar vilja alþjóðlegan sósíalisma en nasistar þjóðernis-sósíalisma. Frammi fyrir þessu blasir við hve villandi er að stilla þessum stefnum upp sem andstæðum (öfga vinstri / öfga hægri). Í stað þess að láta blekkjast af ólíkum fánum, orðum og merkjum, verðum við geta séð að þetta er allt angi af einni og sömu alræðisrótinni sem nærist á öfund, beiskju og óvild - og krefst blindrar hollustu, undirgefni og haturs á þeim sem tilgreindir hafa verið sem "óvinir hópsins" eða "óvinir stéttarinnar".
Gegnsýrðir af ruglandi fréttaflutningi ríkisstyrktra og ríkisrekinna innlendra fjölmiðla þurfa Íslendingar að afrugla sig sjálfir til að sjá að stjórnmálin verða ekki best skilin út frá lóðréttum ás (eða skeifu) sem liggur frá hægri til vinstri (frá stjórnleysi / óstjórn til alræðis / ofstjórnar). Nei, stjórnmálin verða betur skilin sem hringur, þar sem skeifuendarnir hafa verið tengdir saman. Land sem er stjórnlaust mun fyrr en síðar verða ofríkismönnum að bráð, þ.e. þeim sem beita mestu ofbeldi og best eru vopnaðir. Allir geta séð að frá slíkri óstjórn til ofstjórnar (alræðis) er aðeins örstutt skref, því á báðum stöðum er öryggi borgaranna lítið sem ekkert.
Eini staðurinn í hringnum sem hugsandi (afruglaðir) menn geta staðsett sig á er lengst frá fyrrnefndum ystu (samtengdu) skeifuendunum, því aðeins þar er áherslan á einstaklinginn (en ekki hópinn). Aðeins þar er viðurkennt að hver og einn maður sé dýrmætur - og að ekki einum einasta manni megi fórna í samfélagslegum tilgangi (e. for the greater good). Aðeins þar er borin er virðing fyrir frelsi fólks út frá þeim ramma sem stjórnarskráin hefur skilgreint. Aðeins þar er unnið úr frá því að gera ríkisvaldið eins fyrirferðarlítið, afskiptalaust og valdalaust og nauðsyn krefur m.t.t. öryggis borgaranna og lífsafkomu í stað kæfandi félagshyggju. Aðeins þar er lagt til grundvallar að sú ríkisstjórn er best sem minnst afskipti hefur af borgurunum.
Þessu hef ég viljað miðla til Íslendinga, því meðan hugarfar almennings er óbreytt þokast þjóðfélagsástandið í átt til öngþveitis, óreiðu og óstjórnar, sem valdagírugir aðilar munu bjóðast til að leysa, nú sem fyrr, með ofstjórn og valdboði. Um þessar mundir eru liðin fjögur ár síðan ég lagði í þá vegferð að reyna að vekja Íslendinga til umræðu um það hvert stefnir og til að taka ábyrgð á landinu sínu áður en óefni verður komið. Ég lagði í þessa vegferð því mér er umhugað um að börnin okkar geti átt hér farsæla framtíð í landinu sem formæður okkar og forfeður færðu okkur að gjöf. Eftir fjögurra ára viðleitni blasir við sú niðurstaða að Alþingi mun á næstu dögum lögleiða frumvarp um bókun 35 sem gengisfellir ekki aðeins Alþingi og Hæstarétt Íslands, heldur færir Ísland skrefi nær ólýðræðislegu ofstjórnarvaldi 400 milljón manna ríkjasambands sem kaffærir fólk og fyrirtæki í reglugerðum og tekur daglega á sig skýrari mynd sambandsríkis (ESB). Þótt kalla mætti þessa niðurstöðu lógíska afleiðingu þess félagshyggju- og ríkisvæðingarblætis sem hér hefur verið til umræðu, þá er þessi niðurstaða svo nöturleg og svo dapurleg að tímabært er að viðurkenna að mistekist hafi að vekja landsmenn til vitundar um stöðuna - og hvers er að vænta. Á því vil ég biðjast afsökunar.
[Grein þessi birtist fyrst á Visir.is 9. maí 2025]
![]() |
Ríkissaksóknari hugi að stöðu sinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning