31.5.2025 | 08:55
Stjórnmál eru ekki grín
"Ég þarf ekki að búa til neina brandara. Ég bara fylgist með ríkisstjórninni og segi frá staðreyndum". Will Rogers (1879-1935)
Í síðustu viku var ég spurður að því a.m.k. tvisvar sinnum hvað ég hefði lært af pólitískri þátttöku. Án þess að vilja vera of neikvæður sagðist ég hafa stigið út í marga drullupolla um dagana, en engan eins ógeðfelldan og þann pólitíska, þar sem hnífarnir koma fljúgandi úr öllum áttum, hugsjónir eru gerðar að gluggaskrauti og sá nær bestum árangri sem best kann að segja ósatt / fá fólk til að trúa óraunsæjum loforðum.
Fyrir stuttu skrifaði ég hér á bloggið að VG og XD greiði nú fyrir framgöngu sína síðustu árin, þ.e. fyrir að hafa fórnað hugsjónum sínum fyrir völd. Flokkar sem hafa skorið sig af sinni hugmyndafræðilegu rót eru einskis virði. Falleg orð á landsfundum bjarga þeim ekki þegar allt annað blasir við í framkvæmd. Um Framsóknarflokkinn þarf ekki að tala, því hann er hentistefnuflokkur. Núverandi ríkisstjórnarflokkar náðu góðum árangri í kosningunum með því að lofa öllu fögru (m.a. að hækka bætur en ekki skatta), tala fallega um frið og um það hvernig þeir vildu framkvæma vilja kjósenda. Eftir kosningar hafa þeir snúið sér að því að hækka skatta, framkvæma vilja erlendra búrókrata með því að vinna að því að koma ríkisstjórn Íslands undir erlenda stjórn (ESB), auk þess að vilja efla hernaðarþátttöku Íslands (með 70 milljörðum úr tómum ríkissjóði) á sama tíma og horft er fram hjá því að mesta ógnin við öryggi Íslendinga kemur nú innan frá en ekki utan frá, þ.e. frá skipulögðum glæpasamtökum sem hér starfa án verulegra afskipta frá fjársveltri lögreglu.
Sem lýðræðissinni vil ég auðvitað ekki fæla fólk frá þátttöku í stjórnmálum, en við þurfum þó að vera raunsæ og horfast í augu við að flest (ekki öll) þeirra sem sitja nú á þingi vilja vera á framabraut í stjórnmálunum (innan flokksins, innan alþjoðastofnana) og þá er hætt við að hagsmunir lands og þjóðar lendi í öðru sæti.
Athugasemdir
Sæll Arnar og takk fyrir góðan pistil
Staðreyndin er bara sú að það eru mörg ár
síðan hagsmunir lands og þjóðar voru sett í annað
sæti ef ekki þriðja. Ekkert af þessu fólki á þingi fer eftir
þingmannaeiðnum þó hann sé svarin við setningu alþingis
og svo hlegið af honum í kaffinu á eftir.
Þetta er bara staðreynd.
Sigurður Kristján Hjaltested, 31.5.2025 kl. 13:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning