"Er ekki bara best" að treysta sérfræðingunum ... og fjölmiðlunum?

Á Bylgjunni í gær benti ég á að kennivaldspostular nútímans eru ekki minna forstokkaðir í valdhroka sínum en þeir voru á tíma Galileos: Stofnanaveldið getur ekki viðurkennt mistök. 

Þegar rykið sest lítur margt öðru vísi út en fullyrt var áður: 

Margt er hægt að læra af þeim mistökum sem gerð voru. Einn lærdómurinn ætti að vera sá að treysta ekki yfirvöldum (og fjölmiðlum) í blindni ... og sperra eyrun þegar valdastofnanir tala um mikilvægi þess að berja niður gagnrýna hugsun

Traust almennings var misnotað: Læknar o.fl. stéttir hafa glatað trausti og þurfa að endurvinna það.

Vanþakklátasta hlutverk sögunnar er að reyna að fá aðra til að hugsa. Mun auðveldara er að gera fólk vitstola. Síðarnefnda leiðin færir völd og áhrif þeim sem kunna að hagnýta sér ótta og fávisku almennings. Sjálfur hef ég of lengi barið hausnum í steininn í (vonlausri) tilraun til að fá fólk til að hugsa / ná áttum / koma aftur til sjálfs sín. Ég þakka þeim sem hlustuðu. Góðar stundir.  

 

 

-


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Hérna er BÆN sem beðin var spámanninum Elía, fyrir þjóð Guðs c.a. 860 f. Kr. Hann taldi þá að öll þjóðin hefði fallið frá lifanda Guði.

Nú finnst mér BÆNIN eiga við í munni þér. Enda tel ég þig vera spámann Guðs fyrir Íslensku þjóðina, sem næstum öll hefur yfirgefið fyrirheitin frá 1944, og hundsað Guð síns lands.

Þá gekk Elía spámaður fram og mælti:

Drottinn, Guð Abrahams, Ísaks og Ísraels! Lát í dag kunnugt verða, að þú ert Guð í Ísrael (Íslendinga) og ég (Arnar Þór Jónsson) þjónn þinn og að ég hefi gjört alla þessa hluti að þínu boði.

Bænheyr mig, Drottinn!

Bænheyr mig, að lýður þessi (Íslensk þjóð) megi komast að raun um, að þú, Drottinn, ert hinn sanni Guð, og að þú snýrð aftur hjörtum þeirra. (1. Kon. 18:36-37).

Guðmundur Örn Ragnarsson, 3.6.2025 kl. 20:53

2 Smámynd: Dominus Sanctus.

AMEN; Á EFTIR EFNINU.

Dominus Sanctus., 3.6.2025 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og núlli?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband