5.6.2025 | 08:19
Kennslustund í "stjórnmálaskólanum"
Þótt ég hafi aldrei gengið í stjórnmálaskóla hjá stjórnmálaflokkunum, þá sýnist mér að meginlexían þar hljóti að vera eftirfarandi:
- Ekki tala við fólk eins og það sé viti borið. Talaðu heldur við það eins og þau séu prinsipplausir fávitar og treystu því að þau muni trúa öllu sem þú segir (sætar lygar ganga betur ofan í fólk en beiskur sannleikur) og að þau muni treysta þér í blindni (ef þú lofar að leysa þau undan ábyrgð) og vera fús til að afhenda þér völd (ef þú lofar að hugsa fyrir þau).
- Gæði stjórnmálamanns eru ekki mæld í því hvort hlutaðeigandi segir satt / varar við hættumerkjum / tjáir sig út frá bestu samvisku / talar út frá innri sannfæringu / kemur heiðarlega fram / elskar landið sitt / ber umhyggju fyrir þjóð sinni. Nei, stjórnmálamaður telst aðeins nothæfur ef honum gengur vel að gefa út loforð sem fá fólk til að mæta á kjörstað og kjósa hann. Ekkert annað skiptir máli. Spurningin er bara hvað þú treystir þér til að segja og gera - samvisku þinnar vegna. [Stjórnmál eru ekki hentugur vettvangur fólks sem vill hafa hreina samvisku].
- Til þess að veiða atkvæði þarftu að vera tilbúinn að gefa loforð sem þú veist að aldrei verður unnt að efna. Dæmi: Lofa lægri sköttum, hærri bótum, styttri vinnuviku, meiri frítíma, fullkomnu jafnrétti, útrýma öllu óréttlæti o.s.frv.
- Síðast en ekki síst þarftu að muna: Að brosa blíðlega, vera smart í tauinu, styðja fóstureyðingar (án minnstu fyrirvara), vera tilbúinn til að gera góðverk þín á annarra manna kostnað.
Athugasemdir
Svo er skóli Alberts Guðmundssonar, ekki gleyma Albert sem sannaði að ofangreint er ekki lögmál.
Guðjón E. Hreinberg, 5.6.2025 kl. 08:59
Já en skóli Alberts Guðmundssonar er svipaður og skóli Trumps. Persónutöfrar, heiðarleiki, að tala máli fólks. Það virkar ekki á öllum tímum eða öllum samfélögum. Bandaríska samfélagið er bara á þeim stað á slíkur heiðarleiki virkar núna. Sjáum á stríðinu á milli Trumps og Musks að slíkt ástand er eldfimt og varir sjaldan lengi - því lygin hefur meiri þunga, studd. Eins og í Rússlandi, margar ógnir, mikið mannfall.
Vil bæta því við pistil Arnars, að við erum á óheppilegum stað einmitt núna. Okkar þjóð er að færast nær ESB aðild vegna þess að síðustu tvær ríkisstjórnir voru í sjálfsmorðsleiðangri. VG og XD voru í sama leik og Gullgerðarlistin á miðöldum, að búa til "gull" úr tveimur andstæðum. Það gull er glópagull Viðreisnar og Samfylkingar, en almenningur vill trúa því til að forðast það sem sérfræðingar kallað lýðskrum hægriöfga. Ekki er talað um lýðskrum vinstriöfga, enda Sósíalistar, Píratar og VG í kuldanum.
Að láta af stefnumálum fyrir andstæð öfl endar í gullgerðarlist - útrýmingu.
Það eru mjög miklar líkur á að þjóðin fari í ESB ef stjórnin fellur ekki, sem getur gerzt. En hröð þróun erlendis getur ýmsu breytt. Trump stjórnin getur fallið. Hrun í Rússlandi gæti líka valdið hruni í Evrópu eins ólíklega og það hljómar. Það er margt á suðupunkti í Evrópu. Þegar jafnvægi riðlast í einu landi getur andstætt afl styrkzt á hinum ólíklegasta stað.
Niðurstaðan er að jafnvægið innan Evrópu getur riðlazt á ólíklegasta tíma og öfgaöfl einnig þar náð völdum.
Það er búið að svíkja almenning svo mikið og lengi, og jafnvægið í náttúrunni svo úr skorðum farið vegna mengunar, að margt gerist ólíklegt.
En að halda sig við prinsipp það hefur gildi. Fólk hefur þörf fyrir slíkt, en kannski ekki núna á Íslandi.
Ingólfur Sigurðsson, 6.6.2025 kl. 03:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning