14.6.2025 | 08:32
"Þetta er ekki lýðræði. Þetta er valdflutningur."
Árum saman hafa atvinnustjórnmálamenn Íslands misvirt stjórnarskrá lýðveldisins með hömlulausri innleiðingu erlendra reglna sem þeir sjálfir viðurkenna að hafa ekki lesið, auk þess að viðurkenna að eftirliti og aðhaldi með þessu regluverki sé ábótavant. Bæði núverandi og fyrrverandi ríkisstjórn Íslands hafa blandað Íslandi í bein hernaðarátök með vopnakaupum og stríðshvatningu. Og nú á að bíta höfuðið af skömminni með því að reyna að keyra í gegn frumvarpið um bókun 35 sem vegur bæði að íslensku dómsvaldi og Alþingi sem æðsta löggjafa okkar. Þegar þverpólitískur hópur almennra borgara sprettur upp úr grasrótinni til að andmæla kallar fyrrum utanríkisráðherra það "árás á lýðveldið" hafandi sjálf grafið undan lýðveldinu með sinni pólitísku framgöngu, sbr. það sem fyrr greinir.
Villi Ólafsson (sem ég þekki því miður ekki) segir um þetta á X: "Fyrrum utanríkisráðherra talar um Árás á [lýðveldið] Með Bókun 35 er vald yfir íslenskum lögum fært til erlendra stofnana sem Íslendingar hvorki kjósa í né geta haft áhrif á. Þetta er ekki lýðræði. Þetta er valdflutningur".
Villi skilur samhengi hlutanna betur en margur þingmaðurinn.
E.S. Til nánari fróðleiks má hlusta á þessi tvö útvarpsviðtöl við AÞJ síðan í gær, hér og hér.
Athugasemdir
Til frelsis frelsaði Kristur oss. Standið því stöðugir og látið ekki aftur leggja á yður ánauðarok. (Gal. 5:1).
Guðmundur Örn Ragnarsson, 14.6.2025 kl. 19:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning