Ef gagnrýnendur þínir hafa engin rök, en bara stimpla, þá ertu á réttri leið.

Það er ekki heiglum hent að skilja stjórnmálaumræðu nútímans. Bráðabirgðaútgáfa mín er sú að best sé að skilja þetta út frá því hvort menn aðhyllast valdboð eða frelsi. Í umræðum um EES-samninginn á Alþingi síðustu daga hefur afhjúpast að langstærstur hluti þingmanna aðhyllist valdboðshyggju undir merkjum EES, þ.e. að Íslendingum BERI að sætta sig við það fyrirkomulag að ESB semji reglur og póstsendi þær hingað til athugsemdalausrar afgreiðslu, samþykktar og fullkominnar eftirfylgni, án þess að Alþingi Íslands né íslenskir dómstólar hafi nokkuð um efni reglnanna að segja - nema þá aðeins til að íþyngja Íslendingum umfram aðra. 

Ef þú, kæri lesandi, vilt ekki sætta þig við þessa niðurlægjandi nýju stjórnarhætti, þá máttu eiga von á að verða kallaður ýmsum uppnefnum og ónefnum. Mest notaða uppnefnið (sem verið er að gatslíta í fjölmiðlum til þess að fæla fólk frá andmælum) er "öfga-hægri" (NB: öfga-vinstri er aldrei notað í fjölmiðlum). 

"Öfga-hægrimenn" finnast nú víðsvegar á Íslandi og annars staðar - og þeim fer fjölgandi sem hræðast ekki þennan stimpil, enda er blekið í stimplinum orðið svo þunnt að það tollir ekki á mönnum. Af samtölum við slíkt "öfgafólk" sýnist mér þau eiga það sameiginlegt að vilja hugsa sjálfstætt, mynda sér sínar eigin skoðanir á sjálfstæðum forsendum og vera á móti hvers kyns hjarðhugsun. Þau eru eru á móti hvers kyns mismunum (hvort sem það er vegna húðlitar, kynhneigðar eða annars). Þau eru fylgjandi jafnrétti (og eiga ekki í vandræðum með að skilgreina hugtakið kona). Þau eru friðarsinnar, á móti ofbeldi og stríðsrekstri (nema um neyðarvörn sé að ræða), enda er lífið heilagt í þeirra huga, allt frá getnaði til dauða (sem þýðir að þau telja að ávallt skuli lagt siðferðilegt mat á fóstureyðingar og dánaraðstoð). Þau trúa á frelsi einstaklingsins og að maðurinn sé skapaður í Guðs mynd (en hafna þeirri hugmynd að skilgreina beri einstaklinginn sem hluta af þessum / hinum hópnum). Þetta hræðilega "öfgafólk" er á móti dýranýði og hvers kyns misnotkun og óréttlæti, auk þess sem þau virðast skilja vel að fyrirgefningin er besta lækningin við skaðlegri heift og reiði. Í þeirra huga eru börn heilög og þau telja það skyldu sína að verja sakleysið. 

Á mælikvarðann sem nefndur var hér í upphafi er þetta (öfga)fólk þeirrar skoðunar að ríkisvaldið hafi þá frumskyldu að verja frelsi manna, en ekki að skerða það. Síðast en ekki síst telja þau þetta frelsi verða betur varið innan þjóðríkis en innan fjölþjóðlegra og yfirþjóðlegra stórvelda.

Um ástandið í stjórnmálum á Íslandi ræddi ég í gær við Gústaf Skúlason og viðtalið má sjá hér

E.S. Lýst er eftir lýsingarorði fyrir þá sem eru hinum megin við þá línu sem RÚV o.fl. skilgreina sem hægri-öfgar, en þar er ég að vísa til þeirra sem aðhyllast valdboð og miðstýringu og vilja skerða frelsi manna og þjóða eins og kostur er. 

E.E.S. Ef gagnrýnendur þínir hafa ekkert fram að færa annað en yfirborðslega stimpla og upphrópanir, þá ertu á réttri leið. 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Blessaður Arnar, -reglurnar eru ekki póstsendar, þær halda uppi flugleiðinni flugleiðinni KEF-BRU.

Það er fjöldi hátt launaðra íslenskra ríkisborgara við að flytja óskapnaðinn hingað til lands, láttu þig ekki dreyma um að það sé gert með því að kaupa frímerki.

Það má teljast aldeilis stórfurðulegt að enn hafi engin málsmetandi maður bent á það að EES samningurinn er fíllinn í stofunni og við hann þurfi að losna.

Bestu kveðjur.

Magnús Sigurðsson, 15.6.2025 kl. 12:56

2 Smámynd: Arnar Þór Jónsson

Sæll Magnús og takk fyrir öll þin skynsamlegu og skemmtilegu skrif. Ég er að komast á sömu skoðun og þú. Eins og EES hefur þróast þá er ekki hægt að kalla þetta "samstarf" heldur er þetta orðin einstefna frá Brussel til Reykjavíkur. Engin þjóð sem hefur sæmilega sjálfsvirðingu getur þolað til lengdar að láta fara með sig eins og tuskubrúðu. Menn hafa vissulega á öllum tímum verið tilbúnir til að niðurlægja sig fyrir einn baunadisk, en vítin eru til að varast þau og ég vil ekki trúa því að Íslendingar séu svo smáir í hugsun að þeir þoli þessa niðurlægingu öllu lengur.

Arnar Þór Jónsson, 15.6.2025 kl. 13:05

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þakka þér fyrir svarið Arnar, -ég þykist vita að margir viti af fílnum stofunni, en þyki ekki skinsamlegt að gagnrýna hann beint.

Ég hafði fyrir því á sínum tíma að lesa EES samningin. Þann sem hægt var að panta íslenskaðan úr utanríkisráðuneytinu fyrir samþykkt EES, -þann sem Jón Baldvin kallaði allt fyrir ekkert.

Mér varð ljóst við lesturinn, -sem er sá leiðinlegasti sem ég hef lagt á mig á minni ævi, -að allt fyrir ekkert var algerlega undir þeim komið sem fór með valdið.

Sem landbyggðarmaður veit ég að EES hefur sem slíkur verið til stórtjóns, fyrir flesta aðra en þá sem nú vinna fjarvinnu á ferðalagi eða hjá hinu opinbera, enda er meira en þriðjungur þjóðarinnar komin á þann stað.

Þetta vita margir fleiri en ég, en flestir hafa hvorki tíma né nennu til að setja sig inn í lagalegar flækjur endalausra orkupakka og 35 bókana. Hvað þá áhuga á að setja atvinnuöryggi sitt í uppnám.

Þess vegna þýtur hvert reglugerðafarganið af öðru í gegn um alþingi við þögn þjóðarinnar sem er að stórum hluta á móti ESB sem hún er að ganga í smátt og smátt.

Þess vegna vil ég meina að það þurfi að koma fram ákveðið ákall um að segja sig frá EES óskapnaðinum og útskýra hvernig það verði gert.

Því það er alveg ljóst að landráðaliðið láði ekki máls á að kjósa um EES á sínum tíma, og mun ekki gera það með ESB fyrr en það telur sig öruggt með úrslitin.

Magnús Sigurðsson, 15.6.2025 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og sextán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband