Köllum hlutina réttum nöfnum

ESB er ekki formlegt sambandsríki og hefur enga stjórnarskrá (henni var hafnað af aðildarríkjum 2005). Því er ekki unnt að tala um ESB sem fullvalda ríki. Engu að síður krefst ESB þess að reglur þess séu æðri landslögum aðildarríkja, þ.m.t. EES ríkja á þeim (sífellt fleiri) sviðum sem EES samningurinn tekur til. Verði frumvarpið um bókun 35 samþykkt á Alþingi þýðir það að Alþingi geti ekki sett lög sem ganga gegn EES. Þetta þýðir einnig að EES réttur yfirtrompar íslensk lög, jafnvel þótt þau lög hafi verið sett áður en EES kom til sögunnar og einnig íslensk lög sem sett verða héðan í frá! Þetta þýðir að ESB (og stofnanir þess) geta valtað yfir íslenskan rétt (og stjórnarskrána) með nýjum reglum sem Íslendingum ber að innleiða (eins og Íslendingar hafa niðurlægt sig með að gera andvaralaust og andmælalaust í rúm 30 ár). 

Frumvarpið um bókun 35 miðar auk þess að því að íslenskir dómstólar hafi ekkert túlkunarvald um þær ótal reglur EES réttar sem frumvarpið vísar til. Með þessu er verið að binda hendur íslenskra dómstóla og í raun framselja dómsvald úr landi

Með því að samþykkja frumvarpið um bókun 35 væri Alþingi gengisfella sjálft sig og setja sig í hlutverk valdalauss áhorfanda við lagasetningu, sem getur ekkert gert annað en að samþykkja það sem berst frá Brussel (og í mesta lagi blýhúða reglurnar). Um leið eru íslenskir kjósendur gerðir áhrifalausir og höggvið í þá lífæð lýðræðis sem gerir löggjafann ábyrgan gagnvart almenningi

Frumvarpið um bókun 35 snýst því ekki fyrst og fremst um "réttaröryggi" (eins og þingmenn hafa ranglega fullyrt), heldur um flutning valds frá Íslandi til Brussel

Stjórnarskrá Íslands geymir ekkert ákvæði sem heimilar framsal ríkisvalds til erlendra stofnana. Framsal eins og það sem hér um ræðir verður heldur ekki réttlætt með vísan til óskráðrar venju, því hér er ekki um að ræða afmarkað og vel skilgreint framsal, heldur verulega framsal sem telst verulega íþyngjandi. Auk þess myndi afturköllun og síðari viðleitni til að takmarka valdaframsal þetta kalla yfir Ísland samningsbrotamál og líklegast skaðabótamál.

 

Frumvarpið stenst ekki stjórnarskrá:

Á rúmlega 30 árum hefur verið gengið mun lengra í framsali ríkisvalds en nokkur maður gat ímyndað sér þá. Hefði þetta legið á borðinu þá hefði EES samningurinn aldrei verið samþykktur. Með frumvarpinu um bókun 35 er höggvið svo nærri fullveldi Íslands og valdi íslensku þjóðarinnar að það brýtur gegn stjórnarskránni. Ef Alþingi hyggst fara þessa leið, þ.e. að gera rétt ESB æðri íslenskum lögum, þá verður að gera þetta í réttri röð, þ.e. að fara fyrst í að breyta stjórnarskránni. Hin leiðin er sú að segja að EES samningurinn sé orðinn allt annar samningur nú en í upphafi og tímabært sé orðið fyrir Íslendinga að segja honum upp og taka upp fríverslun við ESB - og allan heiminn - á frjálsum forsendum, sem sjálfstæð og fullvalda þjóð.

 

 


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og tuttugu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband