11.7.2025 | 08:49
Án áttavita getur enginn ratað heim
Stærsta vandamál þeirrar kynslóðar sem nú heldur um valdatauma á Íslandi er að henni er ekkert heilagt. Stjórnarmeirihlutinn, sem sjálfur styður stjórnarskrárbrot sbr. frumvarpið um bókun 35, greip fegins hendi tækifærið til að fyllast vandlætingu vegna yfirsjónar 5. varaforseta þingsins, sem fyrrum formaður Samfylkingar segir þó að hafi ekki verið neitt brot! Þingvetur sem hófst sem harmleikur endar að sumri sem farsi.
Þessari kynslóð er ekkert heilagt. Í kófinu létu allir Alþingismenn það yfir sig ganga að stjórnarskráin væri tekin úr sambandi, þingið sent heim, völdin afhent (misvitru) þríeyki og að landinu væri stjórnað af framkvæmdavaldinu með tilskipunum. Á sama tíma - og enn í dag - veigruðu nánast allir lögfræðingar landsins sér við því að ræða með gagnrýnum hætti um það hvernig stjórnarskráin var gerð óvirk og borgaralegt frelsi misvirt vegna "neyðarástands" sem öllum mátti þó snemma vera ljóst að var alls ekkert neyðarástand. Ný forysta Sjálfstæðisflokksins leggur 100 ára sögu hans og stefnuskrá á bálið með beinum og óbeinum stuðningi við frumvarpið um bókun 35 sem felur í sér að Alþingi afhendi löggjafarvald til Brussel, án umboðs frá íslensku þjóðinni. Ný forysta Þjóðkirkjunnar leggur þrenningarjátninguna á fórnaraltari woke-ismans. Foreldrar sætta sig andmælalaust við að hugur og hjarta barna þeirra séu sóðuð út með "fræðsluefni" um kynvitund og kynhegðun. Fjölmiðlar hampa yfirborðsmennsku og hégóma, en hæðast að þeim sem aðhyllast klassísk trúarleg og þjóðleg gildi. Ef ekkert af þessu er heilagt, hvað þá með landið og náttúruna? Jú, þessi kynslóð ráðamanna hefur sýnt stuðning við að eiturefnum sé dælt hér niður í grunnvatnið, að erlendum úrgangi sé dælt í hafið og að hálendið verði tætt í sundur og mengað með vindmyllugörðum. Öllu því sem fyrri kynslóðir töldu fagurt, gott og satt er verið að snúa á hvolf. Gamla fólkið sjálft stendur frammi fyrir því að erlendir aðkomumenn fleyti rjómann ofan af því félagslega kerfi sem fyrri kynslóðir byggðu hér upp með sínum eigin verkum. Þjóðvitund og ættjarðarást er reynt að úthrópa sem "öfgar" á meðan ráðherrar Íslands ferðast um heiminn til að verja fullveldi annarra þjóða (Úkraínu) með herskáu tali og vopnakaupum.
Hvaða fólk er þetta eiginlega? Horfa menn á fréttir og þekkja þar sjálfa sig / sína eigin þjóð? Við verðum að snúa af rangri braut og finna aftur okkar sögulegu, menningarlegu, trúarlegu, lagalegu rætur. Við höfum ekki annað val. Áttavitalaus getur engin þjóð verið til lengdar.
![]() |
Össur segir Hildi ekki hafa brotið neinar reglur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvaða fólk er þetta eiginlega? -er nema von að þú spyrjir.
Magnús Sigurðsson, 11.7.2025 kl. 09:13
Reis þér vörður! Set þér vegamerki! Haf athygli á brautinni, veginum, sem þú fórst!
Hverf heim. (Jer. 31:21).
Nemið staðar við vegina og litist um og spyrjið um gömlu göturnar, hver sé hamingjuleiðin, og farið hana, svo að þér finnið sálum yðar hvíld. (Jer. 6:16).
Herra, vér vitum ekki, hvert þú ferð, hvernig getum vér þá þekkt veginn? Jesús segir við hann: Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. (Jóh. 14:5-6).
Guðmundur Örn Ragnarsson, 11.7.2025 kl. 12:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning