Fullreynt í fjórða sinn?

Mér telst til að nú sé verið að ljúka þingstörfum í fjórða sinn án þess að sitjandi ríkisstjórn takist að knýja í gegn frumvarpið um bókun 35, sem felur í sér beina tilraun til að gengisfella og óvirða Alþingi Íslendinga. 

Rökstuðningur: Samkvæmt 47. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands ber hverjum einasta nýjum þingmanni skylda til að vinna drengskaparheit að stjórnarskránni þegar kosning hans er tekin gild. - Þetta stendur í stjórnarskrá til að árétta og undirstrika að enginn má fara með löggjafarvald á Íslandi án þess að hafa lýst hollustu við lýðveldið og stjórnarskrá þess. Þetta er hreint og klárt skilyrði þess að þingmaður haldi sæti sínu. 

Eftir ævintýralegt rugl og uppákomur á Alþingi nú síðustu daga og vikur má öllum landsmönnum vera orðið ljóst að þingmenn ráða ekki allir vel við hlutverk sitt og hafa ófullburða skilning á skyldum sínum og inntaki þingræðisins. En að þeim skuli hafa dottið í hug að þeim geti leyfst að afhenda óþekktum starfsmönnum ESB löggjafarvald á Íslandi - og að reglur frá þessum mönnum eigi að njóta almenns forgangs fram yfir íslensk lög frá Alþingi - án þess að hlutaðeigandi hafi lýst nokkurri hollustu við Ísland, lýðveldið, stjórnarskrána eða íslenska þjóð, er til marks um að sömu þingmenn eru óhæfir til að gegna þingmennsku. 

Landvættir Íslands hafa í fjórða sinn varið lýðveldið fyrir þessari aðför. Vonandi láta óþjóðhollir alþingismenn hér staðar numið. 


mbl.is Rýr uppskera ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Valsson

Frumvörp Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur um innleiðingu Bókunar 35 við EES samninginn eru lýsandi dæmi um það virðingarleysi sem þessir fyrrverandi og núverandi utanríkisráðherra Íslands sýna stjórnarskrá og lögum landsins. Hér er um að ræða einbeittan brotavilja til að fremja landráð gegn íslensku þjóðinni, þjóð sem verður grípa til allra tiltækra ráða til að koma í veg fyrr svo alvarlegan glæp og niðurlægingu af hendi þessarra ráðherra sem kosnir voru til að standa vörð um stjórnarskrána og landslög. 

Júlíus Valsson, 14.7.2025 kl. 09:10

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og ellefu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband