18.1.2025 | 10:09
Stórfrétt ... sem ekki ratar í fréttirnar.
Tilgangur menntunar er að opna huga fólks, ekki loka honum. Íslendingar búa við enn meiri fábreytni í menntun og fjölmiðlun en aðrar þjóðir. Við förum fyrst í gegnum miðstýrt, einsleitt menntakerfi sem stuðlar að hjarðhegðun, hlýðni og hjarðhugsun, en hvetur ekki í nægilegum mæli til sjálfstæðrar hugsunar. Allt frá grunnskóla og upp í háskóla er okkur innrætt hvernig við eigum að hugsa og hvaða skoðanir við megum hafa / eigum að hafa: Í pólitík, á loftslaginu o.fl.
Þegar skólakerfið sleppir loks höndunum af okkur taka fjölmiðlarnir við. Ef yngri kynslóðir hafa fengið stranga innrætingu í skólagöngu sinni, þá þiggja eldri kynslóðir sína innrætingu ennþá í ótrúlega miklum mæli frá Ríkisútvarpinu og öðrum ríkisstyrktum fjölmiðlum sem velja hvað er á dagskrá og þar með hvað er í umræðunni. Með félagsþrýstingi má svo stýra hegðun fólks í stærstu málum. Ef menn vilja dæmi má m.a. benda á valdbeitingu ríkisins í "kófinu" og hjarðhegðun almennings sem lét smala sér í hjarðir, andmælalaust.
Sem fámenn örþjóð á útjaðri áhrifasvæða Bandaríkjanna og ESB eru Íslendingar þjakaðir af minnimáttarkennd og sýna ríka tilhneigingu til að leita skjóls í hóp, hjörð eða undir verndarvæng stærri ríkja. Aldalöng kúgun gæti hafa mótað andlegt líf þjóðarinnar að þessu leyti. Í framkvæmd birtist þetta m.a. í því að menn veigra sér við að tjá hugsun sína, gagnrýna valdhafa hvers tíma, veita aðhald o.s.frv. Afleiðingin er m.a. sú að skrifræðið verður of valdamikið og ákvarðanir færast í reynd frá kjörnum fulltrúum til tæknimanna. Þeir sem styðja það fyrirkomulag eru ekki lýðræðissinnar heldur skrifræðissinnar sem styðja tilurð tækniveldis, sem leysir lýðveldið af hólmi. Tækniveldi eru hættuleg almenningi, því þar er valdið samþjappað og ekki dreift. Í tækniveldi hefur almenningur engin áhrif á meðferð valdsins og afleiðingin verður að lokum sú að valdi er misbeitt.
Þegar valdi er misbeitt, ýmist með því að valdhafar horfa fram hjá alvarlegu misferli sumra en beita valdi gegn öðrum; þegar ríkisvaldið er farið að þjóna tiltekinni hugmyndafræði; þegar vildarvinir eru settir á ríkisjötuna; þegar fjölmiðlar og stjórnmálaflokkar eru orðnir háðir ríkisstyrkjum; þegar stjórnkerfin eru farin að endurnýjast innanfrá; þegar ákvarðanir eru teknar af ósýnilegu fólki sem svarar ekki til ábyrgðar gagnvart þeim sem búa við ákvarðanirnar; þá er orðið til það sem á ensku er nefnt "failed state". Í nýju viðtali gerir Liz Truss, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands þetta að umfjöllunarefni. Hún segir Breta vera að vakna til vitundar um að þeir búi í "failed state". Í sömu andrá segir hún frá því hvernig skuggastjórnendur tóku fram fyrir hendur hennar og komu í veg fyrir að hún hrynti hugmyndum sínum í framkvæmd. Aðspurð segir Truss að hún sé með þessu að lýsa því sem kalla verði djúpríki (e. deep state). Yfirlýsingar Truss eru afhjúpandi og ættu að vera í heimsfréttum, þ.e. ef fréttamiðlar væru að þjóna almenningi en ekki eigendum sínum.
En djúpríkið er ekki til á Íslandi. Um það eru háskólakennarar og fjölmiðlamenn sammála, enda er Ísland svo lítið, saklaust og krúttlegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2025 | 07:38
Alþingi eða Davos?
Í síðari tíma sögu hafa Bretland og Bandaríkin verið í sérstöku vinfengi (e. special relationship), en nú bregður svo við að Starmer, forsætisráðherra Bretlands, er ekki boðið til innsetningarathafnar nýs Bandaríkjaforseta 20.1. nk. Ástæðan er nokkuð augljós: Bretland undir stjórn Starmers stefnir í allt aðra átt en Bandaríkin undir stjórn Trumps. Starmer er óvinur málfrelsis, vill hærri skatta, harðari baráttu gegn loftslagi, hann telur það merki um öfgahyggju ef menn haa áhyggjur af skipulögðum glæpahópum sem stunda nauðganir á barnungum stúlkum. Síðast en ekki síst hefur Starmer meiri trú á Davos en breska þinginu.
Þótt Starmer muni ekki eiga vísan stuðning í Hvíta húsinu getur hann huggað sig við að forsætisráherra Íslands er einlægur stuðningsmaður hans. Svo einlæg er Kristrún í stuðningi við Starmer að hún gekk í hús í Bretlandi til að styðja Starmer og Verkamannaflokkinn. Eins og forsætisráðherra Bretlands hlakkar Reeves, fjármálaráherrann, til þess að fara til DAvos nú á næstu dögum, til að hitta m.a. fulltrúa alræðisríkja og milljarðamæringa.
Ef menn vilja skilja þá öfugþróun stjórnmálanna sem Guðni Ágústsson lýsti í Morgunblaðsgrein í gær, þá er þetta góður staður til að byrja á: Þjóðþingin hafa verið gengisfelld á sama tíma sem Davos hefur orðið samkomustaður áhrifafólks sem telur réttmætt að færa ákvarðanatöku fjær almenningi í þjóðríkjunum og koma á nokkurs konar alheimsstjórn undir forystu manna sem enginn hefur kosið til slíkra áhrifa.
Íslendingar eiga heimtingu á að vita hvort og þá hver af ráðherrum í nýrri ríkisstjórn mun sækja fundi í Davos, sem hefjast eiga eftir nokkra daga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2025 | 12:20
Guðni Ágústsson sér hvert stefnir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2025 | 08:27
Öfug forgangsröðun
Ástæða er til að hafa áhyggjur af væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að ESB, því Íslendingar virðast hafa svo sérstakan áhuga á að vera "international". Óvísindaleg kenning mín er sú að þessi áhugi eigi sér rót í minnimáttarkennd (meðvitaðri og ómeðvitaðri) yfir því að þessi þjóð bjó þar til nýlega í moldarkofum, auralaus og valdalaus. Til að fjarlægjast þessa myrku fortíð aldalangrar niðurlægingar sækja Íslendingar mjög í allar nýjungar, falla fyrstir fyrir erlendum tískubylgjum, vanrækja sína eigin sögu, gildi, hefðir o.fl. Ein alvarlegasta myndbirting þessa flótta birtist í vanhirðu um eigið tungumál, sem með sama framhaldi verður ekki annað en hilluskraut eftir tvær kynslóðir.
Þótt hin fræga vísindaskáldsaga Aldous Huxley hafi hvorki verið skemmtileg né spennandi ásækir hún mig í vöku og draumi. Huxley lýsti því hvernig almúginn var lyfjaður, leiðitamur (e. docile) og deyfður með innihaldslausri afþreyingu. Allt þetta hugsaði ég í stuttri bílferð í gær þar sem ég hlustaði á samtal í útvarpinu um lítt þekkta kvikmyndastjörnu og myndir sem hún hefur leikið í. Allur heimsins tími var til ráðstöfunar fyrir þetta samtal. Ekkert lá á, öfugt við það þegar frambjóðendur koma í stúdíóið til að ræða um landsins gagn og nauðsynjar undir stöðugum frammíköllum. Er þetta ekki til marks um einkennilega forgangsröðun? Einn af þeim sem fann upp sjónvarpið sagðist hafa verið gráti nær þegar hann sá hvernig tæknin, sem hann ætlaði að yrði notuð til menntunar, var misnotuð til að afmennta fólk og forheimska það. Enda er forgangsröðunin víða skrýtin, því þegar ég skipti loks yfir á aðra stöð heyrði ég viðmælanda Gunnars Smára Egilssonar segja (sennilega réttilega) að þeir sem bjóða sig fram undir merkjum friðar og heiðarleika eigi ekki séns hjá kjósendum, því fólk falli fyrir "aggressífum" frambjóðendum.
En hvaða sögu segir þetta allt um íslenska kjósendur? Sennilega að mikil hætta er á að þeir muni fylgja að málum þeim sem halda á lofti fánum ESB og NATO, þeim sem vilja framselja vald úr landi, auka enn í vopnakaup og gera Ísland meira "international" jafnvel þótt það þýði að við sitjum eftir með minni völd og minni auð, því ljóst er að Ísland verður aldrei annað en útkjálki í ríkjasambandi sem er á hraðri efnahagslegri niðurleið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.1.2025 | 10:44
Burt með fjölmiðlanefnd
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2025 | 09:59
Maður eða mús?
Þetta eru stórmerkilegir tímar sem við lifum nú. Einu tímabili er að ljúka og annað er að hefjast. Horft verður til baka og nýtt mat lagt á það sem sagt var og gert síðustu ár. Ef menn hafa ennþá efasemdir um að vindáttin sé að breytast, þá er nóg að horfa á þetta viðtal Joe Rogan við Sykurberg þar sem sá síðarnefndi viðurkennir að fyrirtæki hans hafi stundað ritskoðun að kröfu Bandaríkjastjórnar. Þetta vissum við reyndar fyrir löngu, þótt Fjölmiðlanefnd, Landlæknisembættið o.fl. geti enn ekki viðurkennt að hafa tekið þátt í að þrengja að umræðu og berja niður heilbrigða sannleiksleit í samstarfi við Fésbók.
Við verðum bæði sem einstaklingar og sem samfélag - að draga lærdóm af því sem gerst hefur á síðustu árum. Einn helsti lærdómurinn er sá að við verðum að beita gagnrýninni hugsun og leyfa okkur (og öðrum) að nálgast mál með opinn huga. Hin leiðin er sú að láta aðra velja fyrir sig og feta ríkisleiðina og samþykkja allt sem valdhafar segja okkur að gera. Þegar samviskan nagar okkur að innan er svarið ekki að leggja á flótta og segja t.d. að við viljum alls ekki ræða um bóluefnin. Þetta þarf að ræða og margt annað. Almennir borgarar þurfa að draga lærdóm af því sem gerðist, en líka embættismennirnir sem viku sér undan skyldum sínum við sannleikann og fóru að þjóna valdinu. Fátt er einfalt í lífinu en eitt er þó nokkuð ljóst að lífið krefur okkur um að þora að standa í fæturna þótt aðrir / flestir / allir séu með aðra skoðun. Ef þú vilt standa undir nafni sem maður verður þú að standa með því sem þú telur rétt. Í því felst þó ekki að þú hafir rétt til að kæfa aðra með þínum sannleika. Í frjálsu samfélagi gefur enginn þér umboð til að tala fyrir allan almenning. Í frjálsu samfélagi gerir þú engum gagn með því að segja bara það sem allir vilja heyra. Þitt hlutverk er að birta þitt sjónarhorn, án meðvirkni, og vinna með öðrum með opnum huga í leit að ljósi og sannleika.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2025 | 09:04
Róm þá, Ísland nú?
Tvær meginskýringar á falli Rómaveldis eru taldar þessar: 1. Stöðugur stríðsrekstur á ytri landamærum. 2. Of margir voru komnir á ríkisjötuna.
Margt hefur vissulega breyst síðan í fornöld, en lögmál tilverunnar eru óbreytt. Ef enn má leggja til grundvallar að höfuð fisksins úldni fyrst, þá gefa fyrstu verk nýrra ráðherra ekki sérlega góð fyrirheit. 1. Nýr utanríkisráðherra settist upp í flugvél og flaug alla leið til Úkraínu til að lýsa stuðningi við áframhaldandi stríðsrekstur með tilheyrandi fjárframlögum úr tómum ríkissjóði. 2. Nýr samgönguráðherra skráir lögheimili sitt á eyðibýli úti á landi og hækkar þar með mánaðarlaun sín um tæplega 200 þúsund. Þetta sama fólk talaði fjálglega um aðhald í ríkisrekstri fyrir kosningar, en hér sem oftar fara orð og athafnir ekki saman.
En íslenskir kjósendur láta allt yfir sig ganga, því þeir vilja trúa því að íslenskir ráðamenn séu velviljaðir og að stjórnarfarið á Íslandi sé tiltölulega óspillt. Ef lesendur hafa efasemdir um þessa afstöðu Íslendinga má rifja hér upp að brátt verða liðin 5 ár frá því þjóðin var tekin á taugum og í framhaldi smalað í stórum hjörðum inn í íþróttahús til að þiggja fleiri en eina - og fleiri en tvær og þrjár - sprautur af lyfi sem lyfjaframleiðendur tóku enga ábyrgð á, en bannað var að efast um. Umræðuhöftin slógu ekki á trúgirni landsmanna. Og enn í dag vilja fæstir Íslendingar efast um réttmæti aðgerðanna sem stjórnvöld réðust í til að vinna bug á "veirunni skæðu" með plastskilrúmum (!), grímuskyldu (þegar fólk stóð upprétt!) og gagnslausum lyfjum.
Einhvern daginn munu Íslendingar fara að skoða samhengi hlutanna betur. Þá gæti komið í ljós að þótt íslenskir ráðamenn séu ekki þeir spilltustu í heimi og vilji landsmönnum allt hið besta (meðan stjórnvöld fá að senda greiðslur inn á eigin reikninga og til vopnaframleiðenda) þá séu þeir undir áhrifavaldi erlendra kollega sinna og láti um of stýrast af hugsunarlausri þjónkun við þá sem mestu ráða úti í heimi. Hér heima heldur fiskurinn (ríkið) áfram að úldna með því að embættismenn hlýða líka í hugsunarleysi, sem og almenningur. Guð blessi Ísland.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.1.2025 | 09:51
Lítum ekki undan. Horfumst í augu við staðreyndir.
Orð megna ekki að lýsa hryllingnum sem yfirvöld í Bretlandi hafa leyft að viðgangast þar í landi árum saman. Vegna hugleysis lögreglu og saksóknara hafa þúsundir ungra breskra stúlkna orðið fórnarlömb kynferðisofbeldis af hálfu erlendra glæpahópa. Hver var ótti breskra embættismanna sem olli því að þeir kusu að líta í hina áttina og aðhafast ekkert? Jú, það var ótti við að vera sakaðir um kynþáttafordóma og við að gerast sjálfir "brotlegir" gegn ríkjandi hugmyndafræði í valdakerfi sem orðið var gegnsýrt af pólitískum rétttrúnaði. Og nú hefur meirihluti breskra þingmanna, þ.m.t. allir þingmenn Verkamannaflokksins, afhjúpað eigið hugleysi með því að kjósa gegn því að fram fari opinber rannsókn á því sem gerðist. Sannleikurinn er of berskjaldandi.
Öllum hugsandi mönnum má vera ljóst, að ef svona nokkuð getur gerst í Bretlandi, þá getur það gerst á Íslandi, þar sem "woke" - krabbameinið hefur náð að skjóta rótum djúpt í stjórnkerfinu. Ef Bretar, með alla sína hernaðarsögu, aga og hefðir, geta sýnt slíkt veiklyndi, þá er sú hætta margföld á Íslandi. Um það þarf ekki að hafa mörg orð. Ísland er smáblóm í samanburðinum og þarf á meiriháttar styrkingu að halda ef það á ekki að verða troðið niður. Sá styrkur getur aðeins komið frá vaknandi fólki sem vill axla ábyrgð á landinu sínu, samfélagi, menningu, þjóðararfi og eigin frelsi.
Svíar hafa fengið sinn skammt af vandamálum, sem ekki hefur mátt tala um eða viðurkenna fyrr en nú mjög nýlega. Allmörg ár eru síðan jóst varð að Svíar voru í afneitun um vandann og reyndu ýmist að blekkja umheiminn eða sjálfa sig.
Á árinu 2024 fór ég í tvö framboð í þeirri viðleitni að vekja Íslendinga til umhugsunar um hvers konar verðmætum við Íslendingar gætum glutrað frá okkur á næstu misserum ef við ætlum að sigla í sömu átt og nágrannaþjóðir okkar undir trommuslætti erlendra stofnana með atbeina atvinnustjórnmálamanna sem gleyma því iðulega að frumskylda þeirra er við Ísland og íslenska kjósendur. Vonandi finna Íslendingar hjá sér kjark til að horfast í augu við aðsteðjandi vandamál og dug til að taka á rótum vandans áður en of mikið tjón hlýst af.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2025 | 09:36
Svart og hvítt?
Nú liggur fyrir að ,,staðreyndavakt" Fésbókarinnar (e. fact-check) verður aflögð. Um er að ræða ,,meiri háttar stefnubreytingu" og í takt við þá vakningu sem er að eiga sér stað vestan hafs, þ.e. að allt of langt hafi verið gengið í þöggun og ritskoðun á síðustu árum. Þetta á ekki síst við um aðgerðir stjórnvalda á kóvid-tímabilinu.
Bæði austan hafs og vestan (en ekki á Íslandi) er hafin mikil umræða um aðgerðir stjórnvalda og þá pólitísku slagsíðu sem einkenndi leyfilega umræðu. Um þetta segir Zuckerberg sjálfur:
Við ætlum að losa okkur við þá sem hafa verið á staðreyndavaktinni, þar sem þeir hafa verið of hlutdrægir pólitískt séð og hafa dregið meira úr trausti fremur en að efla það, þá sér í lagi í Bandaríkjunum.
Af þessu tilefni er gott að rifja upp hvernig staðið var að ,,staðreyndavöktun" hér á Íslandi, sbr. m.a. þessa frétt frá árinu 2021, þar sem greint var frá því að Þjóðaröryggisráð hefði ákveðið að ,,koma á fót vinnuhópi til að kortleggja birtingarmyndir og umfang upplýsingaóreiðu í tengslum við COVID-19 hér á landi og gera tillögur um aðgerðir til þess að sporna gegn henni."
Lesendur eru hvattir til að kynna sér skýrslu vinnuhópsins, sem ekki hefur elst vel. Margt af því sem þar er talið til ósanninda hefur síðar verið viðurkennt sem sannindi. Skýrsla vinnuhópsins er minnisvarði um nálgun sem vonandi mun brátt heyra sögunni til, þ.e. um forræðishyggju stjórnvalda og vantraust í garð borgaranna. Nýir vindar vestan hafs blása í allt aðra átt, þ.e. að treysta beri almennum borgurum til að setja inn upplýsingar og athugasemdir til að skýra samhengi hlutana og útskýra það sem um ræðir.
Þýðir þetta að brátt verði farið með gagnrýnum hætti yfir það sem vinnuhópurinn og íslesk stjórnvöld stimpluðu sem upplýsingaóreiðu, falsfréttir o.fl.? Því er til að svara, að á meðan aðrar þjóðir hafa fyrir þegar hafið heiðarlega umræðu um þetta tímabil, þá hafa Íslendingar fengið einn helsta stjórnanda aðgerðanna í sæti heilbrigðisráðherra. Heiðarlegt uppgjör mun væntanlega ekki eiga sér stað fyrr en valdatíma hennar lýkur. Mismunurinn gæti orðið sláandi: Á sama tíma og Bandaríkjamenn munu sem sagt ráðast gegn ritskoðun og lækka skatta mun vinstri stjórnin á Íslandi halda áfram að loka á umræðu, auka á eftirlit, hækka skatta og gjöld og í stuttu máli íþyngja íslensku atvinnulífi. Mismunurinn verður að öllum líkindum augljós og sláandi.
![]() |
Meta lokar á staðreyndavaktina á Facebook |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.1.2025 | 21:31
Bjarni og Justin
Á einum og sama deginum lýsa tvær vonarstjörnur ,,framsækinna" stjórnmála nútímans því yfir að þær muni brátt hverfa af sjónarsviðinu. Bjarni Benediktsson og Justin Trudeau eiga það sameiginlegt að hafa viljað framselja völd til alþjóðastofnana á kostnað þjóðríkisins sem þeir voru kjörnir til að þjóna; báðir hafa þeir viljað draga úr áhrifum kjörinna fulltrúa og unnið að því að efla yfirþjóðlegt vald; báðir hafa dregið taum risafyrirtækja á kostnað meðalstórra og smærri fyrirtækja; báðir hafa verið talsmenn vopnakaupa og hernaðar, auk þess sem þeir hafa báðir unnið að því að þenja út ríkisbáknið í heimalöndum sínum á kostnað sjálfsákvörðunarréttar borgaranna.
Bæði Bjarni og Trudeu hafa sem flokksformenn snúið flokkum sínum á hvolf: Trudeu er formaður flokks sem kennir sig við frjálslyndi (e. Liberal) en orð og verk Trúdós hafa þó verið allt annað en frjálslynd, sbr. þessi dæmi hér og þetta hér líka. Þrátt fyrir framgöngu sína gegn trukkabílstjórum o.fl., þar sem riddaralögreglu var sigað á friðsama mótmælendur, var hann sérstakur vildarvinur íslenskra og norrænna ráðamanna. Sem formaður Sjálfstæðisflokksins hefur Bjarni snúið flokknum frá þeim gildum um fullveldi og sjálfstæði sem hann var reistur á árið 1929. Undir hans stjórn skoraði Sjálfstæðisflokkurinn óteljandi sjálfsmörk, sótti ekki fram undir sínum eigin gunnfána; úthýsti þeim sem vildu að Sjálfstæðisflokkurinn stæði undir merkjum; auk þess sem Bjarni lét sér lynda að sitja í ríkisstjórn með kommúnistum árum saman, þar sem dýrustu hugsjónir og prinsipp virtist mega selja fyrir aðgengi að valdastólum.
Bæði Bjarni og Trúdó eru vel af Guði gerðir, dagfarsprúðir og kurteisir í daglegum samskiptum, en áttu það til að sýna á sér aðrar og verri hliðar á opinberum vettvangi. Í tilviki Bjarna tel ég að þar hafi hann fallið í gryfju vondrar ráðgjafar, sbr. það hvernig hann reyndi að gera grýlu úr þeim sem vilja að stjórnmálamenn og embættismenn verji hagsmuni Íslands innan EES og mótmæla þeirri einstefnu sem einkennt hefur EES samninginn í seinni tíð. Varðstaða um sjálfstæði og fullveldi Íslands er hjartað í stefnu Sjálfstæðisflokksins, en ekki harðlína og þaðan af síður öfgar.
Á persónulegum nótum óska ég Bjarna Benediktssyni og fjölskyldu hans velfarnaðar í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. Þetta er góður tímapunktur fyrir hann að stíga frá borði í Sjálfstæðisflokknum því ljóst er að á næstu vikum, mánuðuðum og misserum mun sverfa til stáls innan flokksins, ekki aðeins um formannssætið, heldur um það hvað flokkurinn ætlar í raun að standa fyrir. Í minningargrein um föður minn, Jón Guðmundsson, sem jarðsunginn var í síðasta mánuði, fór Bjarni fögrum orðum um Jón og ekki að ástæðulausu, því Jón var einn af hans traustustu stuðningsmönnum og átti stóran þátt í að koma Bjarna inn á þing fyrir 22 árum. Við höfum því alltaf verið Bjarna vinveittir og sýnt honum stuðning, enda hefur Bjarni svo margt gott til brunns að bera. Mörg af síðustu samtölum okkar fegðanna snerust um Sjálfstæðisflokkinn og Bjarna. Pabbi var fulltrúi þeirra sem vildu halda tryggð við flokkinn fram í rauðan dauðann, á meðan ég taldi fullreynt og dagljóst að flokknum yrði ekki snúið á rétta braut meðan Bjarni héldi um stýrið og verða þá að vinna gegn eigin hugsjónum og með þeim sem vildu rýra varnir Íslands að óþörfu með því að leggja fram og styðja frumvarp (um bókun 35) sem veikti sjálft Alþingi Íslendinga. Bókun 35 er ekki bara lagalegt þrætuepli, heldur pólitísk eiturpilla, sem veikir stöðu Íslands.
Enn hafa engin viðunandi rök verið lögð fram fyrir þeirri stefnubreytingu sem Sjálfstæðisflokkurinn tók í þessu máli. Í aðdraganda formannskosninga í flokknum gefst almennum flokksmönnum færi á að ræða um grundvallarmál. Líkt og umsækjendur um þjálfarastarf ættu frambjóðendur að leggja fram áætlun um leikskipulag, sem miðar að einhverju öðru en að hleypa andstæðingnum sífellt nær eigin marki.
![]() |
Einn fremsti stjórnmálamaður sem við höfum átt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)