Færsluflokkur: Bloggar

Sjálfsmorðsleiðangur Sjálfstæðisflokksins?

Í sögulegu tilliti hefur Sjálfstæðisflokkurinn sótt kjarnafylgi sitt til þeirra sem umhugað er um það að hér búi frjáls þjóð í frjálsu landi. Ef þingflokkur XD hyggst halda áfram stuðningi við frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35 væri hann með því að hrekja frá sér sína dyggustu stuðningsmenn. Það hefði þær afleiðingar að flokkurinn myndi endanlega missa sérstöðu sína sem kjölfestuflokkur íslenskra stjórnmála og yrði einn af mörgum smáflokkum.

Með því að taka upp stefnumál Samfylkingar / Viðreisnar / annarra vinstri flokka um ólýðræðislega lagasetningu, miðstýrt og fjarlægt vald, aukin áhrif erlendra eftirlitsstofnana, vald án ábyrgðar o.s.frv. þá eykur Sjálfstæðisflokkurinn ekki fylgi sitt heldur minnkar það. Enginn þarf að ímynda sér að vinstri menn muni kjósa Sjálfstæðisflokkinn, sama hversu "woke" þingflokkur hans þykist ætla að vera eða hversu langt til vinstri flokkurinn vill seilast sem ,,breiðfylking". 

Í stjórnmálum velja kjósendur flokka út frá grundvallarstefnu þeirra. Þegar þingmenn missa sjónar á grunnviðmiðum sínum þurfa þeir hjálp til að rata aftur heim.

Á fjölmennum fundi Félags Sjálfstæðismanna um fullveldismál í gær var einhugur um það að forða verði Sjálfstæðisflokknum frá skipbroti. Fundarmenn voru sammála um að koma verði flokknum út úr þeirri hafvillu sem hann hefur ratað í og afstýra því að hann verði í stöðugri tilvistarkreppu og þreytandi eftirsókn eftir stundarvinsældum. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að standa undir þeim kröfum sem til hans eru gerðar: Hér þarf aukið aðhald í ríkisfjármálum. Koma þarf stjórn á innflytjendamálin áður en þau sliga hér innviði, þ.m.t. heilbrigðiskerfi, menntakerfi, húsnæðismál og löggæslu. Standa ber vörð um okkar kristna menningararf og íslenska tungu, efla trú þjóðarinnar á getu okkar til að stjórna okkur sjálf og taka ábyrgð á eigin framtíð. Sjálfstæðisflokkurinn verður að sýna aukið mótvægi við vinstri stefnuna sem verið hefur hér allsráðandi síðustu ár og sýna þar með að flokkurinn þjóni kjósendum sínum og hafi tilgang, annan en að skaffa þingmönnum vinnu og reka flokksskrifstofu. Flokkurinn þarf að hætta að sýna hér þjónkun við háværan minnihluta og standa vörð um sína góðu grunnstefnu. Hinn þögli meirihluti þarf að finna kjark til að tjá sig. 

Ef Sjálfstæðisflokkurinn treystir sér ekki til að standa undir þessu hlutverki sínu er óhjákvæmilegt að til verði nýr flokkur hægra megin við miðju, sem mun taka upp þann kyndil klassísks frjálslyndis og hófstillts íhalds, sem Sjálfstæðisflokkur nútímans virðist vera að leggja frá sér. Hefur Sjálstæðisflokkurinn efni á að slíkur klofningur verði?  


Fundarboð, 11.7. kl. 17.

Á morgun, 11. júlí kl. 17:00, verður aðalfundur Félags sjálfstæðismanna um fullveldismál, en félagið var stofnað til að standa vörð um þau gildi sem Sjálfstæðisflokkurinn er reistur á. Meðan flokksforystan og þingflokkurinn veigra sér við að leggja rækt við þessar rætur, þá hefur FSF brýnu hlutverki að gegna.
Ég geri ráð fyrir að ávarpa fundinn á morgun og biðja fundarmenn að íhuga þá vegferð sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið á síðustu ár í átt til þess að verða einhvers konar sósíaldemókratískur ESB-flokkur, sem með athöfnum sínum (og athafnaleysi) heggur á hugmyndafræðilegar rætur sínar og lýðræðisþráðinn sem réttlætir tilvist hans, í skiptum fyrir þýlyndi og undirgefni við yfirþjóðlegt vald.
FSF110723
Æskilegt væri að sem flestir sæki fundinn og tjái þar hug sinn, t.d. til þess hvernig réttlæta megi frumvarp um bókun 35 gagnvart sjálfstæðisstefnunni og hvernig á því standi að þingflokkurinn sé afskiptalaus um atlögu forsætisráðherra að málfrelsinu, sbr. svonefnda aðgerðaáætlun um hatursorðræðu. Þetta eru samviskuspurningar sem varpa þarf fram eins og blýsökku til að kanna hvort núverandi þingflokkur sæki hugmyndir sínar á djúpmið eða grunnsævi. Þingmenn flokksins eru sérstaklega hvattir til að mæta og standa fyrir máli sínu.
 
 
 

Skuggarnir lýstir upp

Svona sólbjartur og hlýr sumardagur er best nýttur í að endurnýja trú sína á mannkynið og vonina um betri tíma þar sem m.a. verður unnt að betrumbæta stjórnkerfið sem við búum við í dag. Þegar ég lít til baka yfir atburði síðustu ára eru þar nokkrar myndir sem ég vildi gjarnan geta losnað við úr undirvitundinni:   

Dæmi: 

- Í miðbæ Akureyrar, undir berum himni, mætti ég flóttalegum, fullorðnum manni með taugrímu í þykku skegginu, sem skömmu fyrir kófið hafði, á tónleikum með Dúndurfréttum, sungið með fullnum sal tónleikagesta texta Rage against the machine af sjáanlegri innlifun og með hnefann á lofti: ,,F... you, I won´t do what you tell me!". 

- Vinafólk mitt sem telur sig frjálslynt og réttsýnt birti myndir af sér á ferðalagi um mið-Evrópu þar sem þau sýndu, hróðug, bóluefnapassa sína til að vekja athygli á að nú hefðu þau sýnt gott fordæmi í hlýðni við stjórnvöld og kæmust óhindrað til útlanda, á listasöfn, leikhús o.fl.

- þegar starfsmaður í Borgarleikhúsinu vildi setja á mig límmiða til að votta það að ég væri ,,hreinn" og mætti ganga um leyfð rými hússins sem afmörkuð voru með plastsnúrum

- þegar kollegar mínir í dómarafélaginu vildu setja höft á lögmæta tjáningu mína, sem öll var rituð til varnar lýðræðislegum stjórnarháttum og efnislegu réttarríki 

- þegar ég, sem lögmaður, sá fulltrúa ákæruvalds varpa frá sér hlutlægnisskyldu og faðma kæranda eins og lögmaður viðkomandi

- þegar ég áttaði mig á því að frjáls hugsun á sér ekki öruggt athvarf í háskólaumhverfinu

- þegar forseti lýðveldisins notaði ræðustól Alþingis til að sneiða að óvinsælum þjóðfélagshópi með því að tala um ,,rangsnúinn rétt" þeirra til að smita. Þessi orð hefur forsetinn ekki útskýrt og ekki beðist afsökunar á. Fram að þessu hafði ég í einfeldni talið að hlutverk forseta væri að sameina þjóðina, ekki að sundra henni

- þegar ég áttaði mig á að þingmenn og ráðherrar veita erlendum stofnunum ekkert raunverulegt viðnám 

- þegar ritstjóri Fréttablaðsis boðaði aðskilnaðarstefnu í leiðara blaðsins 13. nóvember 2021

- þegar myndir birtust af lögreglumönnum að berja hús að utan til að telja fjölda gesta

- þegar fólk sat eitt í bílum sínum með grímur fyrir andlitinu

Hver er lærdómur síðustu missera? Trúum við öllu sem við heyrum og sjáum? Eitt er að trúa öllu gagnrýnislaust og hlýða. En hvað með þá sem trúa ekki en hlýða samt? Snýst lífið um að halda ytri ,,standard"? Ég hefði haldið að innri ,,standardinn" sé mikilvægari, þ.e. heilindi og hrein samviska.

Ég skrifa þetta með hugann við alla þá sem senda mér, nánast daglega, skilaboð og segjast vera sammála mér en þora ekki að tjá sig, þora ekki að sýna öðrum hver þau eru, hvað þau hugsa, hvað þeim finnst. 

Í samfélagi sem stöðugt dásamar umburðarlyndi, náungakærleika og fjölbreytni er súrt að standa frammi fyrir því að í reynd er reynt að útskúfa, útiloka og þagga niður í þeim sem vilja iðka gagnrýna hugsun, hlýða ekki fyrirvaralaust, spyrja málefnalegra spurninga, standa með sannfæringu sinni, samvisku og trú. 

Við hljótum að geta gert betur. Ert þú að nota þína eigin rödd, þitt eigið málfrelsi, eða siturðu þegjandi á kantinum og vonar að aðrir ,,reddi" málunum? Ef þú vilt forða samfélaginu frá því að verða alræði, harðstjórn og kúgun að bráð, þá verður þú að axla ábyrgð og taka þátt í að byggja upp og verja frjálsa samfélagsgerð. 

 

 


Á meðan Róm brann ...

Í Róm spilaði keisarinn á hljóðfæri meðan borgin brann. Öfugt við íslensk stjórnvöld nútímans horfði Neró beint í logana meðan hann vanvirti ábyrgð sína. Mikil er ógæfa þess lands þar sem stjórnvöld viðhafa engar brunavarnir og neita jafnvel að horfa á eldsbjarmann þegar hann birtist. 

Af ábyrgðarleysi og barnaskap treysta íslensk stjórnvöld á að aðrar þjóðir komi okkur til varnar ef ráðist verður á landið. Við höfum ekki einu sinni burði til að verja hér mikilvæga innviði meðan beðið væri eftir aðstoð annarra Nato þjóða. Á þetta bendir Arnór Sigurjónsson í Morgunblaðsgrein í dag. Arnór er fyrrverandi skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Orð hans undirstrika að í reynd gæti erlent herveldi hernumið Ísland fyrir hádegi á fyrsta degi, með því að taka flugvelli, stjórnarráðið, fjölmiðla, lögreglustöðvar o.fl., án nokkurs raunverulegs viðnáms af hálfu íslenska ríkisins. 

En kannski þarf ekki hervald til að skipta út íslenskri tungu og íslenskri menningu. Um þetta fjallar Ögmundur Jónasson í grein sinni í sunnudagsblaði Moggans. Ragnar Önundarson hefur bent á að með sama áframhaldi verði innfæddir Íslendingar orðnir minnihluti hér á landi árið 2035! Hér þarf að hægja á til að afstýra megi margþættum fjárhagslegum og samfélagslegum vanda. 

En eins og Neró forðum hafa íslenskir ráðamenn ekki gert neinar áætlanir um hvað skuli gert til að fyrirbyggja að eldarnir verði stjórnlausir. 

Nei, þvert á móti. Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp um bókun 35 sem miðar að stórfelldu framsali valds úr landi, sem í framkvæmd mun daglega þverbrjóta stjórnarskrá lýðveldisins. Á sama tíma er frumvarp til nýrra sóttvarnalaga á hraðferð í gegnum þingið, sem sömuleiðis miðar að stórfelldu valdframsali til WHO, þvert gegn stjórnarskrá, fullveldisrétti Íslands og gegn lýðræðislegum stjórnarháttum. 

Ef lesendur telja að hér að framan sé með ósanngjörnum hætti gefið til kynna að Alþingi sé fullt af froðusnökkurum og að aðrar þjóðir eigi þó örlítið skárri þingmenn sem þora að beina kastljósinu að erfiðum málum, þá er hér samanburður: Annars vegar er hér innihaldslaus 1. umræða á Alþingi um frumvarp til sóttvarnalaga. Hins vegar er hér umræða bandarískra þingmanna um sama efni. Til hliðsjónar er bent hér á umsögn sem undirritaður sendi inn á samráðsgátt um þetta mál í febrúar 2022. 

Að lokum: Þeir sem vilja ímynda sér að íslendingar (og heimurinn) þurfi ekki að hafa áhyggjur af stríðsrekstri, né af frelsisheftandi aðgerðum vegna nýrrar veiru mættu íhuga þá staðreynd að vígbúnaðariðnaðurinn hefur hagsmuni af því að stofnað sé til ófriðar; lyfjaframleiðsluiðnaðurinn hefur hagsmuni af því að fjármagnaðar séu rannsóknarstofur sem mögulega framleiði nýjar veirur; samtakaríkið hefur hagsmuni af því að þjappa saman valdi og aftengja það frá kjósendum. 


Sannleikurinn mun gera yður frjálsa

Við lifum á áhugaverðum tímum. Í þessari frétt Daily Telegraph kemur fram að bandarískur dómstóll hefur lagt bann við því að ráðamenn þar í landi hitti stjórnendur samfélagsmiðla vegna umfangsmikillar ,,Orwellískrar" viðleitni Biden-stjórnarinnar til að koma í veg fyrir að almenningur efist um gagnsemi sprautulyfja gegn "vírusnum skæða". 

Í þessu samhengi er áhugavert að lesa skýrslu vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19 um ,,samstarf" við vísindavef HÍ (sjá t.d. kafla 7.2.), þar sem ýmiss konar upplýsingaóreiða hefur verið ,,leiðrétt", m.a. með því að hafna þeirri tilgátu að veiran hafi verið búin til á rannsóknastofu. 

Dr. John Campbell hefur fjallað faglega um sóttvarnaaðgerðir sl. misseri og gert það með svo yfirveguðum hætti að honum hefur enn ekki verið varpað út af samfélagsmiðlum. Hér er umfjöllun hans um nýja danska rannsókn sjálfstæðra, óháðra og ólaunaðra sérfræðinga þar sem fram kom mjög mikill breytileiki varðandi aukaverkanir milli skammtanúmera (e. batches) og að hættan hafi í sumum tilvikum verið geigvænleg. 

Þetta gæti verið verðugt rannsóknarefni fyrir Lyfjastofnun Íslands. En slík úttekt er kannski ekki líkleg meðan nýr sóttvarnalæknir gerir lítið úr hættu vegna aukaverkana, sbr. þetta viðtal við hana 16. júní sl. Áframhaldandi þögn er því líklegust enn um sinni, a.m.k. meðan enn er verið að þagga niður gagnrýni og eyða óþægilegum niðurstöðum, sbr. þessa nýju rannsókn sem birt var í Lancet en látin hverfa 24 klst síðar

Til lengdar munu þöggunartilburðir stjórnvalda, ritskoðun og ,,leiðréttingar" ekki koma í veg fyrir að sannleikurinn fljóti upp. Þá verður tilefni til að ræða um mikilvæg atriði eins og upplýst samþykki og ábyrgð stjórnvalda.  


Varúð: Samtakaríkið hefur raungerst

Í fyrri greinum, útvarpsþáttum og víðar hef ég ítrekað varað við því ástandi sem nú hefur raungerst hér á Íslandi, þ.e. samruna stjórnmála og stórfyrirtækja. Fram á síðustu ár höfum við í einfeldni trúað því að kerfið, sem kostað er með skattfé almennings þjóni þessum sama almenningi. Með hverjum deginum kemur betur í ljós að kerfið þjónar sjálfu sér og þegar verst lætur vinnur það beinlínis gegn hagsmunum almennings. lenin

Þegar hægri flokkar færa sig yfir til vinstri og vinstri flokkarnir til hægri, þá fara af stað eitraðir straumar, eins og saga 20. aldar sýndi átakanlega. Við þessar aðstæður verður til fyrirbæri sem kalla má samtakaríkið (e. corporate state). Í slíku ríki verður allt tal um lýðræði þyrnir í augum valdhafa, því lýðræðið er til þess fallið að raska þessu ,,þægilega" jafnvægi sem nú ríkir. Í ólýðræðislegu andrúmslofti samtakaríkisins hopa upplýsingar fyrir áróðri um leið og fjölmiðlar eru gerðir að málpípum stjórnvalda. Í slíku ríki verður ákæruvaldið pólitískt og lögreglan að varðhundum valdsins. 

Samtakaríkið leiðir fram það versta sem stjórnmálin hafa fram að færa: Stórfyrirtækin sem vaxið hafa í skjóli frjálshyggju hægri flokka verða hluti af valdakerfinu sem svo fyllist af vinstri mönnum sem loks fá útrás fyrir þann sósíalíska draum að stjórna sem flestum þáttum mannlífsins. 

Í framkvæmd er þetta mjög óhagstætt einstaklingsframtakinu, samfélaginu, þjóðríkinu og Alþingi. Kreddufullir vinstri menn kalla eftir stöðugt fleiri innflytjendum og slíkt hentar vel fyrirtækjum sem þurfa ódýrt vinnuafl. Innviðir brotna að lokum undan þunganum og afleiðingin verður glundroði. Til að leysa þann vanda mun almenningur að lokum kalla eftir lögregluríki sem leggur hlekki um háls hvers einasta manns til að tryggja ,,öryggi" þeirra.

Þetta er fyrirkomulag sem þjónar öllum hagsmunaaðilum vel: Ríkið hefur ótakmarkaðan aðgang að tekjum almennings með stöðugt meiri skattheimtu og stórfyrirtækin hafa aðgang að fjármunum almennings í gegnum lífeyrissjóði sem fjárfesta á markaði. 

Til að viðhalda þessari stöðu má nýta fjölmiðla til deyfingar og dulinnar innrætingar, menntakerfið (þar á meðal háskólana) til að heilaþvo mannskapinn og kenna þeim ,,rétta" hugsun og ,,réttar" skoðanir. Á þann hátt er tryggt að ætíð sé nægt framboð af þægu fólki til að manna stöður í embættismannakerfinu, sem nýtist vel til eftirlits og eftirfylgni.

Ef eitthvað er óljóst í framkvæmd, þá er það ekki vandamál, því framangreint stjórnarfar er mjög í anda Leníns og hentugar leiðbeiningar hans má finna í alræmdum bæklingi, sem sá ,,góði" maður gaf út árið 1902. Um það rit verður mögulega fjallað síðar. 


Myndir þú kjósa Annie Wilkes?

Mannkynssagan geymir ótal dæmi um ótrúlegt langlundargeð venjulegs fólks. Sagan er til marks um að menn séu tilbúnir til að sætta sig við harðstjórn, niðurlægingu, kúgun, ofbeldi, einelti s.frv. En sagan sýnir einnig að þolinmæðin er ekki endalaus. Án fyrirvara getur það gerst að menn segi skyndilega hingað og ekki lengra. Einn daginn gátu landamæraverðir Austur-Þýskalands ekki lengur haldið aftur af fólki sem vildi fara til vesturs. Einn daginn stendur einhver upp og segir hið augljósa: Keisarinn er nakinn. 

Við búum nú í samfélagi:

- þar sem ríkisvald og alþjóðastofnanir ganga sífellt nær borgurunum með kæfandi ,,umhyggju", sem notuð er til að skerða réttindi sem eiga þó að heita varin í stjórnarskrám og mannréttindasáttmálumi will take good care of you

- þar sem verstu hliðar stjórnmálanna er daglega til sýnis; þar sem stjórnlyndir hægri og vinstri flokkar sameinast um að þenja út regluverkið og hleypa þannig ofvexti í lögin, embættismannakerfið, eftirlitskerfið o.fl.; þar sem völdin þjappast saman en ábyrgð er látin hverfa; þar sem gagnrýnin hugsun er illa séð; þar sem tækniræði og ánauð eru hærra metin en skapandi hugsun og frjáls mannsandi

- þar sem skólar eru orðnir að innrætingarstöðvum sem þjálfa fólk í að hlýða en ekki að hugsa sjálfstætt

- þar sem stjórnmálaflokkar standa ekki lengur vörð um hugsjónir, en verja þess í stað hagsmuni og völd 

- þar sem valdboðssinnaðir stjórnmálamenn sækja hugmyndir til Davos en hlusta ekki á kjósendur í heimalandinu

Keisarinn er nakinn. 

[Til nánari skýringar: Sjá hér Kathy Bates í hlutverki Annie Wilkes í kvikmyndinni Misery (1990)]


Valkvæð blinda sóttvarnalæknis?

Nýr sóttvarnalæknir, Guðrún Aspelund, segir í nýlegu viðtali að Covid sé ekki búið, því enn séu smit í gangi. Enn sé unnt að fá bólusetningu. Fjöldamörg afbrigði af Omicron hafi verið í gangi, nánar tiltekið hundruðir. Guðrún segist vonast til að bóluefni verði tilbúið þegar næsti faraldur kemur. Spurð um aukaverkanir, segist Guðrún ekki vita um fjölda tilkynntra tilvika. Ekki hafi verið áhyggjuefni að mikið hafi verið um alvarlegar aukaverkanir, „við höfum ekki séð það og Lyfjastofnun hefur ekki merkt það. Auðvitað er búið að gefa þetta bóluefni milljónum manna í heiminum og það hafa komið fram aukaverkanir eins og með öllum lyfjum og geta gerst, en þær eru mjög sjaldgæfar og flestar aukaverkanir eru vægar.“ Guðrún segir að Astra Zenica hafi ekki verið bannað í Danmörku, en notkun þess hætt því önnur efni hafi verið talin betri. Um bólusetningar barna segir Guðrún að engar afleiðingar hafi komið fram hérlendis. Að sögn Guðrúnar eru engin tengsl milli dauðsfalla hérlendis og bólusetninga, hvorki umframdauðsfalla né annarra dauðsfalla.

Sama mál, önnur hlið

Ég hrökk við þegar ég heyrði svör sóttvarnalæknis í viðtalinu, þar sem ég hafði nýverið hlustað á samtal Joe Rogan við breska hjartalækninn Dr. Aseem Malhotra, þar sem m.a. er vísað í grein sem Malhotra birti í september 2022. Í stuttu máli segir Malhotra að hann hafi aldrei á sínum ferli séð lyf sýna jafn lélega virkni og jafn mikla skaðsemi og sprautulyfin gegn covid-19. Á þessum grunni gagnrýnir hann að yfirvöld hafi haldið þessum lyfjum að almenningi. Hann vísar einnig til greinar í sem birtist sumarið 2022 í tímaritinu Vaccine þar sem fram fór endurmat á upprunalegum rannsóknum Pfizer og Moderna sem lágu því til grundvallar að bóluefnin voru samþykkt af lyfjaeftirlitsstofnunum. Niðurstaða höfunda, sem Malhotra segir vera óháða sérfræðinga, er sú að upphaflegu tilraunirnar hafi sýnt að bóluefnin væru hættulegri en covid, m.ö.o. að hættulegra væri að láta sprauta sig með bóluefnum en að smitast af covid-19. Því hefði aldrei átt að leyfa notkun þessara lyfja. Tíðni alvarlegra aukaverkana væri a.m.k. 1 af hverjum 800 og rannsóknir sýni að aukaverkanir geti komið fram mörgum mánuðum eftir sprautur.

Frammi fyrir þessari skelfilegu tölfræði furðar Malhotra sig á að lyfin hafi ekki þegar verið tekin úr umferð. Líklegustu skýringuna sé að finna í því sem hann kallar valkvæða blindu (e. willful blindness), þ.e. sálfræðilegt fyrirbæri þar sem fólk kýs að sjá ekki sannleikann til að finna öryggi, komast hjá ágreiningi, óþægindum, draga úr ótta og vernda stöðu sína og viðkvæm egó.

Blindur leiðir blindan?

Vonandi á þessi tilgáta Dr. Aseem Malhotra ekki við um einhliða málflutning nýs sóttvarnalæknis. Ég vona innilega að Guðrún Aspelund sé fulltrúi góðrar læknisfræði og að Malhotra hafi rangt fyrir sér. Ef því er öfugt farið þá verður stund sannleikans mjög sársaukafull fyrir þá sem kosið hafa að nálgast þessi mál með rörsýni, en ekki síður fyrir þá sem kosið hafa að trúa þeim í blindni. Vonandi rennur aldrei upp sú stund að almenningur verði að horfast í augu við að embættismenn og sérfræðingar hafi talað gegn betri vitund, gefið út leyfi í vondri trú, afneitað staðreyndum og kæft niður gagnrýni.     

[Grein þessi birtist fyrst á krossgotur.is 4.7.2023]


Lestarferð út í óvissuna

Líkja má stöðu almennings gagnvart ríkisvaldi við það þegar við kaupum okkur lestarmiða frá A til B. Með því að kaupa miðann (greiða atkvæði) lýsum við yfir trausti til lestarstjórnenda og veitum þeim umboð til að flytja okkur á áfangastað á sem skemmstum tíma og vandræðalaust. Umboð lestarstjórnenda er sem sagt takmarkað og allir vita að um borð eru neyðarhemlar (stjórnarskrárákvæði) sem grípa má í ef hætta er á ferðum, t.d. ef lestin er farin að bruna of hratt eða ef henni er stýrt inn á vitlausa teina. Neyðarhemlarnir eru öllum aðgengilegir, ekki bara fólki á fyrsta farrými. Með sama hætti er alls staðar sýnileg neyðaropnun á lestargluggum. Aðgengi að þessum öryggistækjum er grunnforsenda fyrir því að fólk kaupir sér far með lestinni. 

Hvað gerist um borð í slíkri lest þegar hún sjáanlega eykur hraðann vegna lestar sem sögð er nálgast of hratt (t.d. óþekktur vírus)? Jú, þá er hátalarakerfið notað til að róa fólk, segja því að hlusta bara á tilkynningar lestarstjóra, treysta engu öðru, óla sig niður í sætið og hlýða, ekki leita sjálft að upplýsingum því símarnir birti falsupplýsingar í bland við staðreyndir sem enginn geti túlkað rétt nema faglærðir lestarstjórar. ,,Treystum sérfræðingunum" heyrir þú fólk segja við hvert annað um leið og það velur sér nýja bíómynd til að horfa á í afþreyingarkerfinu.

Hvað gera hinir þegar þeir sjá að lestin hefur tekið nýja stefnu? Hvað ef þú sérð lestarvörðinn aftengja neyðarhemlana (mannréttindaákvæði stjskr.) með vísan til þess að ástandið sé ,,fordæmalaust"? Hvað gerir almenningur þegar hann sér að eftirlitsmennirnir (þingmenn, ráðherrar, forseti, fræðimenn, faglærðir sérfræðingar, lögmannafélagið, fjölmiðlamenn o.fl.) aðhafast ekkert og þykjast ekki sjá að lestin er komin út af sporinu? Hvað ef fólkið á fyrsta farrými neitar að bregðast við með vísan til þess að þeim líði sjálfum ljómandi vel? Hvað gerist ef í ljós kemur svo, að stjórntæki lestarinnar eru rykfallin af notkunarleysi og lestinni er fjarstýrt af fólki sem situr órafjarlægð og svarar engu?

Hvaða tryggingu höfum við fyrir því að slík lestarferð endi vel?   

   

 


Án málfrelsis er ekkert frelsi, ekkert lýðræði, engin pólitík

Síðustu ár hafa dunið á okkur þau skilaboð að við eigum að TRÚA því sem yfirvöld segja okkur og HLÝÐA. Fyrrverandi forsætisráðherra Nýja-Sjálands dró þetta vel saman á innan við 60 sekúndum þar sem hún sagði að yfirvöld myndu áfram vera eina sannleiksheimild almennings. Forssætisráðherra Íslands lýsti dálæti á þessum fyrrum kollega sínum og er einnig sérlega vinveitt forsætisráðherra Kanada sem í orði og verki hefur sýnt vafasama afstöðu til samskipta ríkis og borgara.

hlýðum víði

Í slíku umhverfi er það auðvitað merki um óleyfilega villutrú að efast sannindi þess sem hið opinbera hefur skilgreint sem ,,réttar upplýsingar". Á álagstímum er því sérstök ástæða til að skipa vinnuhóp um upplýsingaóreiðu og þá jafnframt fullkomlega eðlilegt að slíkur hópur kalli eftir því að skuldbindingar alþjóðlegra tæknifyrirtækja (Facebook, Google, Twitter, Mozilla, Microsoft og TikTok) til að sporna gegn upplýsingaóreiðu séu ,,einnig virtar gagnvart Íslendingum". Ég ráðlegg almenningi að prenta skýrsluna og eiga til minja um hvernig ríkisvaldið vildi skilgreina sig (og tæknifyrirtækin!) sem merkisbera sannleikans, þ.e. áður en sú leikmynd fór að falla og falsfréttir gærdagsins urðu að viðurkenndum staðreyndum. 

Í Sovétríkjunum sálugu var Aleksandr Solzhenitsyn dæmdur í 8 ára þrælkunarvist í Gúlaginu fyrir hafa, í einkabréfi, hallmælt (óskeikulum) leiðtoga ríkisins. Á Vesturlöndum búum við ekki (enn) við slíka ógn. En fræjunum hefur verið sáð. Þingslályktunartillaga forsætisráðherra Íslands um hatursorðræðu og vinirnir sem hún velur sér gefa vísbendingar um hvert stefnir. Afskiptaleysi þingflokks Sjálfstæðisflokksins af þessu máli er vítavert. Ef þögn um þessi mál á sér þá réttlætingu að ekki megi raska ró á stjórnarheimilinu, þá er slíkur friður of dýru verði keyptur. 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband