1.12.2023 | 09:15
Ferðast einhver til Dúbaí til að segja annað en hallelúja?
Hér er spurning sem einhver getur vonandi svarað: Hversu margir þeirra rúmlega 80 (!) fulltrúa Íslands á loftslagsráðstefnunni í Dúbaí ferðast alla þessa leið til að lýsa sjálfstæðri skoðun sem mögulega víkur frá rétttrúnaði loftslagskirkjunnar? Ef svarið við þessu er 0 væri gott að vita til hvers allt þetta fólk er sent á okkar kostnað hálfa leið í kringum hnöttinn. Ætli Bandaríkin sendi sama hlutfall fulltrúa á ráðstefnuna, þ.e. 80.000 manns? Varla þvi ráðstefnuna sitja ,,aðeins" 97.000 fulltrúar. Ef enginn getur nefnt til sögunnar einn einasta mótmælanda / yfirlýstan efasemdamann í hópi þessara 80 fulltrúa Íslands og ef enginn þeirra mun taka þátt í rökræðum á vísindalegum grunni um forsendur þess átrúnaðar sem þarna verður boðaður, þá verða skattgreiðendur væntanlega fyrir miklum vonbrigðum. Þá þyrfti fjármálaráðherra t.d. að svara fyrir það hvers vegna verið er að skrifa upp á ferðaheimild og dagpeninga fyrir allt þetta fólk á vegum hins opinbera.
En þar sem ég reikna með að ráðstefnan muni fremur líkjast trúarsamkomu sanntrúaðra en ráðstefnu fólks sem mætir með opinn huga til að hlusta á ólík rök, þar sem ég reikna með að hallelúja og standandi lófatak verði algengara en hvassar rökræður og málefnaágreiningur, þá spái ég því að niðurstaðan verði í þessa átt:
- Auka verði eftirlit með litla fólkinu og litlu fyrirtækjunum
- Fjölga verði lögum og reglum sem miða að því að ná fram markmiðum ráðstefnunnar
- Þjappa beri valdinu betur saman, helst í eina miðstýrða alþjóðlega stofnun
- Veita beri framkvæmdavaldi (lögreglu) í héröðum (þjóðríkjunum) meira svigrúm til valdbeitingar
- Þrengja beri að fullveldisrétti þjóðríkja, samhliða því að þrengja að frelsi borgaranna til orðs og athafna
- Tala fallega um mikilvægi lýðræðis (í orði), en þrengja að lýðræðinu í verki með því að sjá til þess að embættismenn fái aukið vald
- Boða lausnir sem byggja allar á miðstýringu og að valdið eigi að koma ofan frá og niður en ekki úr grasrótinni og upp
Allar þessar áherslur samræmast vel þeirri hugmyndafræði sem svífa mun yfir vötnum á ráðstefnunni í Dúbaí, þ.e. sameignarstefnu (kommúnisma) í nýjum búningi, en sú stefna mun nú sem ætíð fyrr leiða til þess að auður og völd munu safnast á hendur æ minna hlutfalls samfélagsins og búa til stétt ofur-ríkra annars vegar og réttlausra öreiga hins vegar.
Fyrir mitt leyti mótmæli ég að þurfa að taka þátt í að fjármagna þessa skrautsýningu embættismanna og flokksgæðinga.
![]() |
Listi: Ríflega 80 fulltrúar Íslands fara á COP28 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)