Pendúllinn sveiflast til baka

Eftir langvarandi þöggunartilburði lyfjarisa og heilbrigðisyfirvalda er hið óhjákvæmilega nú að gerast, þ.e. hafin er opinber umræða um sprautulyfin sem yfirvöld héldu að þjóðinni, þar á meðal 5-11 ára börnum. Opnun þessarar umræðu var óhjákvæmileg í ljósi þess að viðvörunarmerkin hafa orðið sífellt háværari og hættumerkin skýrari. Þúfan sem velti hlassinu hér á landi var sennilega yfirlýsing sóttvarnalæknis fyrir skemmstu, þar sem hún þóttist ekkert kannast við rannsóknir um skaðlegar aukaverkanir umræddra lyfja

Í Morgunblaðinu í dag birtist grein eftir Helga Örn Viggósson, Þorgeir Eyjólfsson og Þorstein Siglaugsson. Í greininni segir m.a. að orð Kára Stefánssonar séu

,,ekki síst for­vitni­leg fyr­ir þær sak­ir að hún er fyrsta til­raun­in til að koma rík­is­stjórn­inni og ráðgjöf­um til varn­ar vegna stærstu lækn­is­fræðilegu og sam­fé­lags­legu mistaka síðari tíma.

Í yf­ir­lýs­ing­unni legg­ur Kári áherslu á að ábyrgðin á öll­um sótt­varn­araðgerðum í covid-19 hafi verið rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Að stjórn­völd hafi „nær al­ger­lega farið að ráðum sótt­varn­ar­yf­ir­valda sem sóttu sér ráð víða í sam­fé­lag­inu, meðal ann­ars til mín og fólks­ins í Íslenskri erfðagrein­ingu (ÍE)“. Skilj­an­lega er Kára í mun að al­menn­ing­ur átti sig á að hann beri ekki ábyrgð á mis­tök­un­um. Að ábyrgðin á hundruðum ís­lenskra um­framdauðsfalla og heilsuskaða þúsunda sé rík­is­stjórn­ar­inn­ar." [Leturbr. AÞJ]

Þetta eru stór orð en miðað við alþjóðlega tölfræði um umframdauðsföll er alls ekki víst að hér sé of fast að orði kveðið. 

Vegna veiru með 0,3% dánarhlutfall (IFR) tóku stjórnvöld stjórnarskrárvarin mannréttindi úr sambandi og aftengdu önnur stjórnarskrárákvæði sem eiga að tryggja valddreifingu, meðalhóf o.fl. Framangreint dánarhlutfalli er sambærilegt flensum sem gengu yfir heiminn árið 1957 og 1968. Með aðstoð fjölmiðla var almenningur tekinn á taugum í því skyni að samþykkja sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda andmælalaust. Með áróðri, fortölum og hópþrýstingi var almenningur fenginn til að láta sprauta sig með nýrri tegund tæknilyfja. Nú, þegar óttanum hefur slotað og þokunni er að létta, sitja margir eftir með sárt ennið og ásaka sjálfa sig fyrir að hafa verið auðtrúa og stjórnvöld um blekkingar. 

Pendúllinn er farinn að sveiflast í hina áttina og miðað við fyrri sögu hjarðhegðunar á Íslandi verður bakslagið svo kröftugt að krafist verður alvöru rannsóknar á því sem hér gerðist þannig að unnt verði að draga af því viðeigandi lærdóm til framtíðar. Samhliða þarf að víkja þýlyndum og spilltum embættismönnum úr starfi. Án slíks uppgjörs er vonlaust að byggja aftur upp traust á íslenskum stjórnmálum og stjórnsýslu. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband