Færsluflokkur: Bloggar
11.10.2023 | 23:33
Frelsi og sjálfstæði, já takk.
Fyrir þá sem áhuga hafa á umræðu um stöðu Íslands gagnvart yfirþjóðlegu valdi og um dýrmæti sjálfsákvörðunarréttarins, þá er hér upptaka af ávarpi sem ég flutti í Sandgerði 10.10. sl.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.10.2023 | 10:22
Ekki í mínu nafni, ekki á mínum vegum.
Mér er tjáð að einhvers konar undirskriftalisti gangi um bæinn undir nafni samtaka sem heita ,,Mín leið - mitt val". Enginn frá þessum samtökum hefur haft samband við mig vegna þessa lista eða beðið um leyfi til að nota ummæli frá mér eða óskað staðfestingar frá mér á ummælunum. Undirritaður er alls ekki á móti því að fólk nýti lýðræðislegan rétt sinn til að vekja máls á hugðarefnum sínum, en vil bara árétta að fólk þarf að gera slíkt í eigin nafni og á eigin ábyrgð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2023 | 19:45
Nýtt hlaðvarp
Í gríni og alvöru segist ég vilja eiga þátt í því að berjast gegn upplýsingaóreiðu RÚV.
Til að breikka umræðuvettvanginn hef ég sett af stað nýtt hlaðvarp. Fyrsta viðtalið er nú öllum aðgengilegt hér á Spotify. Þetta er fyrri / fyrsti hluti samtals okkar Phillip Kruse, svissnesks lögmanns sem gengið hefur fram með góðu fordæmi sl. ár. Phillip er einstaklega vandaður maður og vel að sér. Upptakan er af samtali okkar á leið til Þingvalla, en veghljóðið í bakgrunni skaðar engan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2023 | 15:40
Sakleysið er heilagt, eins og lífið
Það fylgir því engin gleði að fjalla um málefnið sem var til umræðu í þessum útvarpsþætti fyrr í dag, en það þarf þó að gera. Öll menningarsamfélög sögunnar hafa glímt við stórar tilvistarspurningar svo sem hver við erum, hver sé tilgangur okkar og hvað tekur við að lokinni þessari jarðnesku tilvist. Með sama hætti hafa menn glímt við spurninguna um hver sé hinn rétti jafnvægispunktur milli ábyrgðar og frelsis. Öll stóru trúarbrögð mannkynsins virðast vera sammmála um mikilvægi þess að rækta beri dyggðir, en forðast lesti. Í þeim tilgangi hefur áherslan verið á það að hækka vitundarstigið, þannig að hið holdlega megi helgast og göfgast af hinu háleita og helga sem er heimur umhyggju og elsku. Maðurinn er andleg vera (e. spiritual), fær um að lifa vitsmunalífi og greina gott frá illu. Í almennu tali heitir það að maðurinn sé fær um að lifa siðferðilegu lífi, sem stefnir í átt til hins góða, sanna og fagra. Hluti af því er að leyfa sakleysinu að vara sem lengst, því sakleysið er heilagt, eins og lífið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.10.2023 | 11:06
Stóru fjölmiðlarnir eru á fallanda fæti
Traust almennings til fjölmiðla á Vesturlöndum hefur verið í frjálsu falli síðustu ár. Þetta kemur m.a. fram í könnunum þar sem spurt er hvort fólk telji fréttamiðla vera óháða gagnvart þrýstingi frá stjórnmálum og ríkisvaldi. Í Bretlandi og Bandaríkjunum gætir stöðugt vaxandi vantrausts til stóru fjölmiðlanna. Í leit að skýringum má telja mestar líkur á að þetta megi rekja til þess að almenningur telji stóru fjölmiðlana vera málpípur eigenda sinna og ráðandi afla, enda geti bæði valdhafar og fjölmiðlar haft gagnkvæman hag af því að afvegaleiða umræðu, beita hræðsluáróðri o.fl.
Öfugt við áherslur Ritskoðunarnefndar (afsakið, Fjölmiðlanefndar) sem hvetur fólk til að trúa helst ,,stórum og rótgrónum fjölmiðlum" þá leitar almenningur á Vesturlöndum í síauknum mæli að upplýsingum frá litlum, óháðum og einkareknum fjölmiðlum, sem blessunarlega hafa sprottið upp víða um heim sem andóf gegn þeirri einsleitni, ritskoðun, miðstýringu og skoðanamótun sem vestræn stjórnvöld í samstarfi við ,,stóra og rótgróna fjölmiðla" færa nú grímulaust fram undir flaggi falsfrétta, upplýsingaóreiðu o.fl.
Þótt öllum sé vissulega frjálst að leggja fullkomið traust á einsýna og pólitíska fréttastofu RÚV og neita að hlusta á aðrar útvarpsstöðvar, þá tilheyrir slíkt hugarfar liðinni tíð, enda er það engin dyggð að hafa lokaðan huga.
Fyrir þá sem vilja fá að heyra aðra hlið en þá sem glymur í RÚV og öðrum ,,stórum og rótgrónum fjölmiðlum" þá leyfi ég mér auðmjúklegast að hvetja lesendur til að hlusta á þetta samtal hér og beita svo eigin dómgreind til að kynna sér þær reglur sem hér um ræðir ... og kalla eftir því að kjörnir fulltrúar okkar geri slíkt hið sama.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.10.2023 | 19:41
Að gera sér grein fyrir stöðu sinni
Er við hæfi að forsætisráðherra herlauss ríkis, sem ekki þarf að senda unga menn út á vígvöllinn, skuli tala eins og hér er gert? Væri ekki nær að Katrín Jakobsdóttir stígi fram sem talsmaður sátta og friðar fremur en að hvetja til þess að ríki Evrópu haldi áfram að hella olíu á stríðsbálið? Hefur VG algjörlega slitnað af sinni pólitísku rót? Ef það er rétt að sérhver þjóð fái þá leiðtoga sem hún á skilið, þá hlýtur þetta viðtal að vera til marks um að við Íslendingar þurfi að vakna af þyrnirósarsvefni og taka til heima hjá okkur áður en við förum að hvetja til þess að garðar annarra þjóða séu sprengdir í tætlur.
Áhyggjur af umræðu um stríðið í Úkraínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2023 | 08:47
Þingvellir
Á Þingvöllum í gær velti þýskumælandi félagi minn fyrir sér orðsifjum. Þing er náskylt orðinu think á ensku og sögninni denken á þýsku. Þýska nafnorðið Ding og enska nafnorðið thing þýðir málefni eða hlutur. Þegar kollegi minn horfði yfir landið sagði hann útilokað að menn hefðu komið um svo langan og torfæran veg til að ræða smámuni og aukaatriði.
Á Þingvöllum komu menn saman til að hugsa og ræða saman um aðkallandi vandamál, sammælast um reglur og finna lausnir / úrræði / viðbrögð / svör við knýjandi áskorunum samtímans. Menn sem voru fjarverandi heimilum sínum um hábjargræðistímann höfðu örugglega engan húmor fyrir innantómu blaðri, sýndarmennsku eða dyggðaflöggun. Þar hefði enginn vogað sér að gera tillögur um kostnaðarsamar gervilausnir á tilbúnum / uppblásnum vandamálum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2023 | 09:21
Almenningur er að vakna en skipuleggjendur ,,lagadagsins" sofa
Húsfyllir var á málþingi um Covid-19 bóluefni sem haldið var í Reykjavík í gærkvöldi. Yfir 200 manns sóttu fundinn, auk þeirra sem fylgdust með í beinni útsendingu. Erlendir sérfræðingar fluttu kraftmikil erindi um ýmsar hliðar þessa máls, sem ekki hafa verið til umræðu í íslenskum fjölmiðlum. Margt kom fram sem sýnir aðgerðir stjórnvalda í vafasömu ljósi, m.a. niðurstöður þessarar rannsóknar sem bendir til að lítill hluti framleiðslunnar hafi valdið mestum skaða.
Frammi fyrir vísbendingum um útbreiddan og alvarlegan skaða af völdum bóluefnanna líkja sífellt fleiri þessu við einhvers konar lyfjatilraun sem framkvæmd hafi verið á almenningi. Rifjað var upp hvernig lýðræðislegir stjórnarhættir voru aflagðir í kófinu og stjórnarskrár teknar úr sambandi með þeim afleiðingum að grundvallarmannréttindi voru vanvirt og almenningur beittur ýmiss konar ofríki, svo sem með því að fyrirskipa grímunotkun, hefta ferðafrelsi, þrengja að tjáningarfrelsi og beita almenning þrýstingi í því skyni að fá fólk til að láta sprauta sig með lyfjum sem telja má hafa verið á tilraunastigi. Á meðan öllu þessu gekk sleppti Alþingi eftirlits- og aðhaldshlutverki sínu gagnvart ríkisstjórn landsins og ríkisstjórnin afhenti handvöldum sérfræðingum stefnumörkun og daglega stjórn. Lögmannafélagið þagði þunnu hljóði og þegir enn. Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir undirritaðs þess efnis að þetta tímabil verði tekið til alvarlegrar umræðu á opnum vettvangi hins svonefnda ,,Lagadags" gerist það nú, annað árið í röð, að ,,lögfræðingasamfélagið" kemur saman til að ræða allt annað en það sem heita má stærsta aðför að réttarríkinu á lýðveldistímanum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.10.2023 | 10:56
Börn eiga rétt á að njóta bernsku sinnar. Sakleysi þeirra ber að verja.
Í dag, 4.10.2023, hefur, af hálfu fjölmargra foreldra grunnskólabarna, verið lögð fram kæra til embættis héraðssaksóknara vegna svonefnds kynfræðslurits Menntamálastofnunar (Kyn, kynlíf og allt hitt, útg. Menntamálastofnun 2023), sem kynnt hefur verið sem námsefni fyrir yngstu skólabörn landsins. Kærendur telja ritið vera ögrun við þær skyldur sem skólayfirvöld bera gagnvart börnum og foreldrum þeirra, enda gangi efni ritsins í bága við þær siðferðilegu, menningarlegu og lagalegu stoðir sem íslensk stjórnskipun og íslensk siðmenning hvílir á.
Efni kvörtunarinnar er nánar sem hér greinir:
Héraðssaksóknari
Skúlagötu 17
101 Reykjavík
Reykjavík, 4. október 2023.
Efni: Lögreglu- og barnaverndarmál. Kæra.
Til undirritaðs lögmanns hafa leitað [NN], sem öll eiga það sameiginlegt að vera foreldrar barna í grunnskólum, þar sem svonefnt kynfræðslurit Menntamálastofnunar, bókin Kyn, kynlíf og allt hitt (Menntamálastofnun 2023), hefur verið kynnt sem námsefni fyrir yngstu skólabörn landsins.
Í kjölfar þess að uppvíst varð um efni og innihald framangreinds rits má segja að hrikt hafi í lagalegum og siðrænum undirstöðum íslensks samfélags og hins miðstýrða skólakerfis. Umbjóðendur mínir eru meðal þeirra fjölmörgu foreldra sem misbýður sú fyrirætlan að umrætt rit sé lagt fyrir ung börn þeirra sem ekki hafa þroska til að sjá eða heyra það sem þar er borið fram. Þessa afstöðu umbj.m. ber að skoða í ljósi efnis og innihalds títtnefnds rits, en að áliti þeirra má telja ótvírætt að það hafi að geyma bæði myndir og texta sem ekkert erindi eiga við grunnskólabörn og allra síst þau yngstu. Því má að gættum gildandi barnaverndarákvæðum o.fl. lagareglum jafnvel halda því fram að umrætt innihald sé undirorpið fortakslausu og algeru birtingar- og dreifingarbanni, sbr. nánar hér á eftir.
Umbjóðendur mínir telja það til sinna helgustu réttinda sem foreldra að ákvarða hvenær og með hvaða hætti börn þeirra fái fræðslu um viðkvæm málefni. Hafandi kynnt sér efni, innihald og framsetningu fyrrgreinds rits telja þau að þar sé að finna myndefni og texta sem ekki eigi erindi við ung börn þeirra og sé til þess fallið að framkalla skömmustukennd og þarflausan hugmyndarugling. Umbjóðendur mínir virða gildi almennrar menntunar og telja að umræða um sjálfsmynd, sjálfsvitund, kynlíf o.fl. megi eiga sinn sess á þeim vettvangi, en telja varasamt að börn á viðkvæmu mótunarskeiði fyrir hugmyndum sem teljast bæði tilfinningalega og vitsmunalega mjög margslungin. Umbjóðendur mínir telja að sem foreldrar gegni þau frumleiðsagnarhlutverki gagnvart börnum sínum í þessum efnum, a.m.k. þar til börnin hafa náð þeim aldri og þroska að þau geti betur skilið margbreytileika þeirra viðfangsefna sem hér um ræðir.
Með tilvitnuðu innihaldi þessa svonefnda kennslu- eða kynfræðslurits er hér um ræðir birtist bæði klámfenginn og þannig ögrandi og óviðurkvæmilegur og bersýnilega blygðunarkenndarsærandi texti, svo og teikningar eða myndefni á sambærilegu alvarleikastigi; nánar greint texti og myndefni sem fjallar um svo og sýna börn í kynferðislegum athöfnum, sbr. skjámyndir úr bókinni sem fylgja með erindi þessu og brjóta að mati umbj.m. gegn þeim lagaákvæðum sem til er vísað hér á eftir.
Áður en lengra er haldið, skal það skýrlega áréttað að hér er engan veginn verið að viðhafa einhvers konar hatursorðræðu gegn tilteknum félögum, samtökum eða einstaklingum í samfélaginu. Þvert á móti er aðeins verið að leitast við að tryggja hér sjálfsagða og virka barnavernd, það er tiltekna lágmarksvernd og líkamlega og andlega velferð og öryggi barna fyrir efni sem augljóslega má ætla þeim mjög svo skaðlegt og íþyngjandi, eins og glögglega kemur raunar fram af erindinu hér og samhengi þess við gildandi lög og barnaverndarsjónarmið.
Umbjóðendur mínir telja það á alvarlegum misskilningi byggt að forvörn gegn kynferðislegri misnotkun felist í því að lýsa kynferðislegum athöfnum í smáatriðum fyrir börnum sem ekki hafa náð kynþroskaaldri. Þvert á móti telja umbj.m. að með því að sýna börnum kynferðislegar og / eða klámfengnar myndir áður en þau hafa þroska til að skilja samhengi þess sem hér um ræðir marki óafmáanleg spor í hugsun þeirra og lækki varnarþröskuld þeirra gagnvart hvers kyns kynferðislegri áreitni, áleitni og misnotkun. Grafískar lýsingar á kynferðislegum athöfnum eiga ekki erindi til ungra barna og flokkast ekki undir ábyrga kynfræðslu. Að mati umbj.m. er það heldur ekki ábyrg kynfræðsla að hvetja börn til kynferðislegra hugsana, kynferðislegra athafna (með sjálfum sér eða öðrum) eða að líkja kynlífi við leik eða ferð í tívolí. Slík skilaboð geta falið í sér hvatningu til óábyrgrar og ótímabærrar hegðunar. Myndefni í tilvísuðu riti sýnir börn á kynferðislegan hátt og texti ritsins hvetur börn til kynferðislegrar háttsemi. Í heild telja þau að ritið brjóti gegn blygðunarsemi og barnaverndarsjónarmiðum.
Eins og kunnugt má vera hefur börnum löngum og eðlilega verið veitt aukin og sérstök vernd samkvæmt stjórnarskrá, barnaverndarlögum og alþjóðlegum sáttmálum þar að lútandi enda um að ræða sérlega viðkvæman þjóðfélagshóp og þannig mikilvæga hagsmuni. Af þessari sérstöku verndaráherslu laga leiðir og að sjálfsögðu að opinberum stofnunum samfélagsins ber skýlaus skylda til að virða hana í hvívetna í stjórnsýslu allri og lagaframkvæmd og skipa hagsmunum og réttindum barna skör ofar; með öðrum orðum tryggja að hagsmunir barnanna séu í fyrirrúmi og að það sem börnum er fyrir bestu skuli ávallt haft í forgangi. Af hálfu stjórnvalda sem hafa með málefni barna öðrum fremur á sínu valdsviði, þá ekki síst menntamálastofnana landsins og grunnskólanna sjálfra, þá mega ákvarðanir þeirra og athafnir í fyrsta lagi ekki ganga í berhögg við gildandi lög og reglur viðvíkjandi barnavernd. Á þetta eins og að líkum lætur alveg sérstaklega við ef lög lýsa tiltekið framferði gagnvart barni refsivert.
Í ljósi þess sem að framan greinir er hér næst til þess að líta að samkvæmt 210. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er það m.a. lýst refsivert að framleiða eða flytja inn, aflar sér eða öðrum, dreifa eða hafa í vörslum sínum myndefni sem sýnir kynferðislega misnotkun á barni eða sýnir barn á kynferðislegan hátt og geta viðurlög orðið fangelsi allt að 6 árum. Í 209. gr. tilvitnaðra laga er svo tekið fram að hver sem með lostugu athæfi særir blygðunarsemi manna eða er til opinbers hneykslis skal sæta fangelsi allt að 4 árum.
Strax í 1. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 kemur svo skýrlega fram m.a. að börn eiga rétt á vernd og umönnun. Þau skulu njóta réttinda í samræmi við aldur sinn og þroska.
Allir sem hafa uppeldi og umönnun barna með höndum skulu sýna þeim virðingu og umhyggju og óheimilt er með öllu að beita börn ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi. Ber m.a. ávallt að sýna börnum umhyggju og nærfærni. Í 4. gr. sömu laga eru síðan tilgreindar meginreglur viðvíkjandi barnaverndarstarfi og er rauði þráðurinn þar sérstök vernd og virðing barna og hagsmuna þeirra sem sérlega líkamlega og andlega viðkvæms samfélagshóps. Í 16. gr. og 17. gr. eru síðan ákvæði og reglur um m.a. tilkynningaskyldur þeirra sem starfa á vettvangi barna eða geta haft aðkomu þar að vegna vinnu sinnar, til að mynda starfslið grunnskóla eða aðrir þeir er starfa sinna vegna hafa aðkomu eins og ráðgjöf eða þjónustu viðvíkjandi þjónustu barna. Þessi tilkynningarskylda gengur framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu samkvæmt niðurlagsákvæði 17. gr. barnaverndarlaga. Þá eru í XVIII. kafla barnaverndarlaga sérstaklega tilgreind refsiákvæði viðvíkjandi brotum gegn börnum, þar á meðal tilkynningarskyldu o.fl. Þannig segir í 99. gr. síðastnefndra laga lögð refsing við því að börnum sé sýnd vanvirðandi háttsemi, þau hvött til hegðunar sem stefnir heilsu þeirra, lífi eða þroska í alvarlega hættu, auk þess sem refsivert er að sýna barni ósiðlegt athæfi, særa það eða móðga.
Í lögum um Menntamálastofnun nr. 91/2015 eru sömuleiðis ríkar verndarskyldur lagðar á forstjóra og starfsmenn þar með tilliti til m.a. barna, sbr. til að mynda 1. gr. þeirra laga og þar greindar tilvísanir. Einnig verður ekki litið undan ábyrgðarhlutverki fræðslu- og skólasviði sveitarfélag í þessu tilliti. Í samhengi við framangreinda löggjöf og refsiheimildir er og til að líta refsiákvæða XIV. hegningarlaga varðandi brot í opinberu starfi sérstaklega. Öllu framangreindu til skýringar og fyllingar er jafnframt vísað til 2. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla, þar sem fram kemur m.a. að grunnskóli skuli stuðla að góðu samstarfi heimilis og skóla með það að markmiði að tryggja farsælt skólastarf, almenna velferð og öryggi nemenda, sbr. einnig ákvæði 13. gr. sömu laga þar sem fram kemur m.a. að nemendur eigi rétt á því að njóta bernsku sinnar í öllu starfi á vegum skólans. Öll framangreind lagaákvæði marka ramma utan um það svigrúm sem skólar hafa til að skipuleggja hvernig staðið er að kennslunni, sbr. 5. gr. grunnskólalaga sem mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur reynt að nota til varnar þeirri kennslu sem hér um ræðir. Almenn tilvísun ráðuneytisins til barnasáttmála SÞ um rétt barna til menntunar takmarkast af ákvæðum 14. gr. sáttmálans.
Að mati umbj.m. má telja veruleg líkindi fyrir því að texti og myndefni títtnefnds fræðslurits sem gefið var út á vegum Menntamálastofnunar og hefur jafnframt verið tekið til notkunar í vissum grunnskólum landsins brjóti gróflega gegn gildandi barnaverndarlöggjöf landsins, þar með talið fyrrgreindum refsiákvæðum almennra hegningarlaga. Ábyrgð þeirra sem stóðu að útgáfu þessari má í þessu ljósi teljast mjög afgerandi að gættum framanröktum lagaákvæðum og sjónarmiðum. Nú þegar munu hafa verið lagðar fram kærur eða tilkynningar til m.a. lögreglu vegna þessa og ljóst að miklar líkur eru á að slíkum erindum muni fara fjölgandi. Má hér um leið vísa til nýlegs fréttaflutnings af kynferðislegri árás á sex ára stúlku af hálfu þriggja eldri samnemenda hennar í tilteknum skóla í Kópavogi, sem óhjákvæmilega vekur upp spurningar um hvort samhengi sé á milli fyrrgreinds texta- og myndefnis og þeirrar árásar sem stúlkan varð fyrir, þá einnig að því gættu að búið er að auki að festa áþekkt texta- og myndefni upp á veggi í tilteknum grunnskólum landsins samkvæmt því sem best er vitað.
Ábyrgðarstöðu forstjóra stofnunar menntamála sem og stjórnenda innan grunnskóla má telja í fyrsta þrepi í þessu sambandi og ættu þeir skyldum sínum samkvæmt að sjálfsögðu að sameinast um að viðurkenna þá alvarlegu og ógeðfelldu stöðu sem m.a. þau hafa sett yngstu grunnskólabörn landsins í og tryggja að umrætt rit verði tafarlaust tekið úr umferð og ekki borið fram að nýju nema þá í formi sem telja má boðlegt og birtingarhæft. Í því samhengi vísast til þess að íslenskt samfélag grundvallast á því að til sé siðferðilegur rammi sem ekki megi brjóta án þess að vegið sé að allsherjarreglu, friði, siðrænum og lagalegum undirstöðum, sbr. m.a. ákvæði 63. gr. stjórnarskrár lýðveldisins. Með þessari áherslu er því þó ekki endilega haldið fram að fyrrgreind innihalds- og efnisbirting ritsins og þar að lútandi fyrirætlanir verði án lagalegra eftirmála fyrir hlutaðeigandi ábyrgðarmenn. Menntamálayfirvöld bera sérstaka ábyrgð í þessu sambandi og hafa hvorki umboð né vald til að víkja af braut þeirrar stjórnskipulegu, lagalegu og siðferðilegu stefnumörkunar sem skýrlega hefur verið mótuð í sögulegu, menningarlegu, siðfræðilegu og lagalegu samhengi. Umbj.m. leggja áherslu á að að tilgreint myndefni og texti komi alls ekki fyrir sjónir barna enda megi það heita skaðvænlegt fyrir þau í margvíslegu tilliti. Í samhengi stjórnarskrárinnar má vísa hér nánar til ákvæða 71. gr. um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu og lokamálsgreinar 76. gr. stjskr. þess efnis að börnum skuli tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst. Athafnaleysisábyrgð yfirvalda, sérstaklega lögreglu og barnaverndaryfirvalda, hlýtur einnig að koma hér til skoðunar, sérstaklega ef látið verður dragast að bregðast formlega við erindi þessu með viðeigandi hætti, enda bera yfirvöld hér ákveðna viðbragðsskyldu. Af hálfu umbj.m. er í síðastnefndu samhengi vísað til 140. gr., 141. gr., sbr. og 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með vísan til alls framanritaðs og meðfylgjandi blaðsíðna úr títtnefndu riti er af hálfu umbj.m. farið fram á að embætti héraðssaksóknara taki málefni þetta til rannsóknar í samræmi við lögbundið hlutverk sitt, en þar sem telja má að hér sé um að ræða brotasamsteypu á rannsókn þessa máls betur heima í höndum héraðssaksóknara en lögreglustjóra. Umbj.m. telja að það sem hér sé á ferðinni sé ekki fræðsla heldur framleiðsla og dreifing á klámefni, sem brjóti gegn blygðunarsemi og að um sé að ræða atriði sem fari skýrlega í bága við fyrrgreind lagaákvæði og meginreglur íslenskra laga. Af hálfu umbj.m. er áskilinn allur réttur til að bæta við ítarlegri tilvísunum og rökstuðningi á síðari stigum.
Í ljósi alvarleika málsins er þess krafist, f.h. umbj.m., að héraðssaksóknari taki kæru þessa til tafarlausrar meðferðar og rannsóknar eftir farvegi laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, boði hlutaðeigandi ábyrgðaraðila til skýrslutöku, haldleggi umrætt námsefni, þ.m.t. veggspjöld o.fl., þannig að séð verði til þess að grunnskólar landsins verði ekki vettvangur dreifingar slíks efnis sem skaðlegt má telja ungum börnum. Nánar tiltekið er yfirvöldum bent á eftirtalda skóla þar sem vitað er að umrætt efni hefur verið haft í frammi gagnvart börnum umbjóðenda minna: [NN].
Virðingarfyllst,
f.h. umbj.m.,
Arnar Þór Jónsson lögmaður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2023 | 09:08
Myndir sem segja meira en þúsund orð
Hér eru tvær ljósmyndir úr Mogganum í dag til að minna lesendur á mikilvægi þess að taka öllu með fyrirvara og láta ekki blekkjast eða leiðast í villu án þess að hugsa og leggja sjálfstætt mat á stóru myndina sem býr að baki leiktjöldunum.
Mynd 1: Kafarar á bökkum Hrútu eru ekki að fara að bjarga / afstýra / lágmarka það tjón sem orðið er. Vitað er að þúsundir eldislaxa sluppu úr sjókvíum og ganga nú upp í ár um allt land. Myndin væri hlægileg ef heildarsamhengið væri ekki svona alvarlegt.
Mynd 2: Þegar bókstaflega allir eru hættir að ganga með grímur fyrir andlitinu birtist mynd af tveimur prófessorum í slíkum búningi. Myndin vakti sérstaka eftirtekt mína því síðast í gær hitti ég mann frá Kaliforníu sem sagði að sjúkrahúsin þar hefðu nýverið reynt að setja á grímuskyldu að nýju en þurft að hörfa undan eindregnum andmælum almennings þar sem þó lét bjóða sér býsna margt í kófinu. Eina leiðin til að skilja það að prófessorar á hátindi síns starfsferils feli andlit sín er sú að þau óttist eftirmálin, enda hefur annað þeirra, Drew Wessmann, sjálf vakið athygli á að aukaverkanir mRNA lyfjanna séu ,,ekki smávægilegar" (e. non trivial). Fleiri aðvörunarbjöllur hringja daglega, sjá t.d. hér, hér og hér. Myndin væri hlægileg ef heildarsamhengið væri ekki svona alvarlegt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)