Pólitísk leiksýning sem dylur raunveruleikann

Stjórnmál nútímans eru orðin að einhvers konar leikriti þar sem átök milli hægri og vinstri eru til sýnis án efnislegra áhrifa í raunveruleikanum. Þegar Alþingi kemur saman í haust mun vafalaust hefjast heiftúðug orðræða um fjárlögin þar sem ekkert verður til sparað í stóryrðum. Að lokum munu allir vinstri flokkarnir á Alþingi (Sjálfstæðisflokkurinn þ.m.t.) sammælast um að spara sem minnst í ríkisútgjöldum. Þannig er hið ,,dásamlega" pólitíska stríð háð hér á landi. 

En meðan stjórnmálamenn og kjósendur eru uppteknir af gervi-átökum um skattheimtu, ríkisútgjöld og áframhaldandi aðgerðaleysi í stærstu viðfangsefnum þjóðarinnar, þá aflagast stjórnmálin á hinum lóðrétta ási með því að valdboðsáherslur vaxa á kostnað lýðfrelsis og klassísks frjálslyndis.pólitískur kross

Kannski er ósanngjarnt af mér að tala um Sjálfstæðisflokkinn sem vinstriflokk, því þingmenn flokksins hafa vafalaust minni ánægju en aðrir af útþenslu ríkisins á þeirra vakt, en um hitt verður ekki deilt að með framlagningu á frumvarpi um bókun 35 hefur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins afhjúpað að hann tekur valdboðsáherslur ESB fram yfir hugsjónir um sjálfstæði og frelsi. Frumvarpið er í anda þeirra stjórnarhátta sem ESB viðhefur nú á tímum, þar sem vikið hefur verið frá eldra viðmiði um einróma samþykki aðildarþjóða í átt til meirihlutaræðis þar sem stærstu ríkin ráða för og smáríki eru gerð að borgandi farþegum. 

Hið nýja valdboðsfyrirkomulag ESB (og nú íslenskra stjórnmála) hefur engan tíma fyrir umræður, umber engan skoðanamun, og jaðarsetur þá sem ekki vilja spila með. Mismunandi sjónarmið eiga sér ekki tilvistarrétt í slíku kerfi. Í nafni hagkvæmni, tímasparnaðar, skilvirkni o.fl. er valtað yfir minnihlutasjónarmið og hagsmuni smáríkja. Undir forystu þingflokks Sjálfstæðisflokksins eiga Íslendingar nú að undirgangast slíkt ok sjálfviljugir og aðlagast hinum nýja pólitíska veruleika valdboðsins, en kasta um leið frá sér hugsjónum um frjálst val, fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt. 

Í minni orðabók er slíkt leiðarval ávísun á pólitískt sjálfsmorð. Í orðabók "woke" stjórnmála, þar sem öllu er snúið á hvolf, er sjálfkrafa innleiðing erlendra reglna án umræðu vafalaust skilgreind sem einhvers konar lýðræðislegt afrek. 

   

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband