Stóru fjölmiðlarnir eru á fallanda fæti

Traust almennings til fjölmiðla á Vesturlöndum hefur verið í frjálsu falli síðustu ár. Þetta kemur m.a. fram í könnunum þar sem spurt er hvort fólk telji fréttamiðla vera óháða gagnvart þrýstingi frá stjórnmálum og ríkisvaldi. Í Bretlandi og Bandaríkjunum gætir stöðugt vaxandi vantrausts til stóru fjölmiðlanna. Í leit að skýringum má telja mestar líkur á að þetta megi rekja til þess að almenningur telji stóru fjölmiðlana vera málpípur eigenda sinna og ráðandi afla, enda geti bæði valdhafar og fjölmiðlar haft gagnkvæman hag af því að afvegaleiða umræðu, beita hræðsluáróðri o.fl.

Öfugt við áherslur Ritskoðunarnefndar (afsakið, Fjölmiðlanefndar) sem hvetur fólk til að trúa helst ,,stórum og rótgrónum fjölmiðlum" þá leitar almenningur á Vesturlöndum í síauknum mæli að upplýsingum frá litlum, óháðum og einkareknum fjölmiðlum, sem blessunarlega hafa sprottið upp víða um heim sem andóf gegn þeirri einsleitni, ritskoðun, miðstýringu og skoðanamótun sem vestræn stjórnvöld í samstarfi við ,,stóra og rótgróna fjölmiðla" færa nú grímulaust fram undir flaggi falsfrétta, upplýsingaóreiðu o.fl. 

Þótt öllum sé vissulega frjálst að leggja fullkomið traust á einsýna og pólitíska fréttastofu RÚV og neita að hlusta á aðrar útvarpsstöðvar, þá tilheyrir slíkt hugarfar liðinni tíð, enda er það engin dyggð að hafa lokaðan huga. 

Fyrir þá sem vilja fá að heyra aðra hlið en þá sem glymur í RÚV og öðrum ,,stórum og rótgrónum fjölmiðlum" þá leyfi ég mér auðmjúklegast að hvetja lesendur til að hlusta á þetta samtal hér og beita svo eigin dómgreind til að kynna sér þær reglur sem hér um ræðir ... og kalla eftir því að kjörnir fulltrúar okkar geri slíkt hið sama. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Já, þetta var sannarlega frábært viðtal sem þau skötuhjú Arnþrúður og Pétur áttu þarna við þig á einu hlutlausu og mögulega vinsælustu útvarpsstöð landsins.

Þakka þér hugrekkið að tala svo grímulaust.

Jónatan Karlsson, 7.10.2023 kl. 15:44

2 Smámynd: Dominus Sanctus.

Allt virðist ganga út á að hræða heldur en að fræða.

Dominus Sanctus., 7.10.2023 kl. 20:28

3 Smámynd: Sigurður Antonsson

Vitlaust gefið, tek undir með Arnari. Að nota 8 milljarða af ríkisfé til að styrkja einn fjölmiðill er alveg út úr kú. Yfirburðastaða RUV dregur til sín auglýsingafé frjálsra fyrirtækja. Ryksugar allt það sem annars hefði farið til minni miðla. RUV átti upphaflega að vera til að styrkja menningarstarfsemi sem annars færi forgörðum. Styrkja við veikt móttökunet á landsbyggðinni. Nú er staðan gjörbreytt en Ríkið er aldrei stórtækara þegar dreifa skal skattfé. Forystumenn í stjórnmálum og ríkisstarfsmenn eru þarna forgangs  sviðsljósi RUV. Þeir tungulipru skreyta sína köku og fá athyglina sama hversu hlutlausir þeir vilja vera.

Í Danmörku er svipað upp á teningnum, nema hvað pólitík einstakra stjórnmálamanna er ekki eins áberandi. Hlutleysi t.d.TV2 meira? Fréttir frá Úkraínu og innrás Rússa eru gerð miklu betur skil. Þar er einlægari stuðningur við styðja Úkraínu og stöðva útrás Rússaveldis. Styrjaldir sem hafa staðið nær sleitulaust yfir í meira en tvær aldir. 

Sigurður Antonsson, 8.10.2023 kl. 15:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband