Rödd skynseminnar lifir góðu lífi

Fjölmiðlar láta nú eins og skoðanakannanir séu heilagur sannleikur þótt þær séu framkvæmdar áður en framboðsfrestur rennur út, áður en kosningabaráttan er formlega hafin og áður en minna þjóðþekktum frambjóðendum hefur gefist kostur á að kynna sig. Þetta fer í bága við lagalegar skyldur fjölmiðla um að virða lýðræðislegar grunnreglur.   

Gunnar Heiðarsson bloggari talar á öðrum nótum, eins og fjölmargir sem ég hitti á fundum og á förnum vegi. Fólki mislíkar þessi framganga fjölmiðla því kjósendur vilja fá að mynda sér sjálfstæða skoðun og taka sjálfstæða afstöðu eftir að hafa kynnt sér öll framboð.

Gunnar Heiðarsson á þakkir skildar fyrir sína skýru framsetningu. 

Bloggfærsla Gunnars í dag er svohljóðandi:

Kjósið réttan frambjóðanda

Það er sorglegt þegar frambjóðendur velja að heyja sína baráttu á því að telja fram ókosti annarra frambjóðenda, í stað þess að spila fram eigin ágæti. Það eru svo kjósendur sem velja og þeir mega tala um bæði ágæti og lesti allra frambjóðenda. Frambjóðendur sjálfir eiga hins vegar að halda sig við að boða sína eigin stefnu og eigið ágæti.

Reyndar er það svo að flestir frambjóðendur eru á svolitlum villigötum í sinni baráttu. Telja embætti forseta Íslands vera stærra og meira en það er, jafnvel að það nái yfir alla heimsbyggðina. Svo er ekki. Forsetinn er fyrst og fremst forseti okkar Íslendinga og ber að standa vörð lands og þjóðar.

Einn frambjóðandi hefur ekki valið þá leið að níða meðframbjóðendur sína, telur fram eigið ágæti og hvað hann telji sig geta gert fyrir land og þjóð. Hann býður sig fyrst og fremst fram til að standa vörð þjóðarinnar. Er ekki haldinn þeirri ranghugmynd að þessu embætti sé ætlað að stjórna heimsbyggðinni.

Þessi frambjóðandi er ekki stjórnmálafræðingur, ekki leikari og ekki dýralæknir (sem er víst viss frami í stjórnmálum á Íslandi), heldur lögfræðingur og fyrrum dómari. Þessi frambjóðandi hefur sýnt í verki að hann lætur verkin tala, jafnvel þó það kosti streð, erfiði og vinsældir meðal vina og samherja. Lætur ekki stjórna sér. Það sást vel í baráttu hans gegn orkupakka 3, þar sem hann fékk eigin flokk gegn sér. Fyrir löngu tímabært að fá mann með lögfræðiþekkingu og kjark til að standa vörð þjóðarinnar inn í embættið á Bessastöðum.

Fyrir þá sem ekki vita hvern er talað um er rétt að nefna nafn hans:

Arnar Þór Jónsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

MANNLÍF lagði spurningar fyrir  Arna Þór  Jónsson.

Hver getur svarað betur:

mannlíf.is/kultur/jesus-er-helsta-fyrirmynd

Guðmundur Örn Ragnarsson, 17.4.2024 kl. 08:49

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég tek undir með Gunnari Heiðarssyni, Arnar Þór Jónsson er sá frambjóðandi til forsetakosningar sem vert er að taka mark á.

Tómas Ibsen Halldórsson, 17.4.2024 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband