Upplýsingaóreiða í boði lyfjarisa

Með góðfúslegu leyfi birti ég hér í heild nýtt samtal okkar Sölva Tryggvasonar, þar sem við ræðum m.a. um pólitískan rétttrúnað. Eitt af því sem ég nefni þarna eru bólusetningar barna v/kórónuveirunnar. Ég segi eitthvað á þá leið að það hafi kunni að hafa verið læknisfræðileg/lyfjafræðileg mistök að sprauta ungt og heilsuhraust fólk með þessum lyfjum, en að í tilviki barna væri nær að tala um læknisfræðilegt / lyfjafræðilegt misferli. Ef menn telja þetta stór orð má til hliðsjónar benda á nýbirta niðurstöðu áfrýjunarnefndar í Bretlandi þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að forstjóri Pfizer hafi látið frá sér fara villandi og rangar upplýsingar um réttmæti þess að sprauta 5-11 ára börn með umræddum efnum. Nánar taldi kærunefndin að forstjórinn hefði brotið siðareglur með því að hvetja fyrirvaralaust til þess að börn á þessum aldri yrðu sprautuð. Forstjórinn hafði fylgt þessu eftir með því að segja ávinninginn slíkan að það væri enginn vafi á réttmæti lyfjagjafarinnar. Forstjórinn nefndi hvergi mögulega áhættu sem þessu gæti fylgt eða hugsanlegar aukaverkanir, né setti fram sjónarmið sem hefðu gert almenningi betur kleift að meta kosti / galla og taka þannig betur upplýsta ákvörðun. 

Hér liggur sem sagt fyrir skýrt dæmi um dreifingu rangra / misvísandi upplýsinga (e. misinformation), en kannski úr óvæntri átt. Eða var nokkurs staðar gert ráð fyrir því sl. ár að lyfjarisarnir eða opinber yfirvöld væru að dreifa slíkum upplýsingum? Í samtali okkar Sölva segi ég frá því hvernig Fjölmiðlanefnd sigaði erlendu ritskoðunarfyrirtæki á íslenskan almenning. Hvernig mun sagan dæma íslenskar ríkisstofnanir sem brugðust aðhalds- og eftirlitshlutverki sínu í meðvirkni með yfirvöldum og alþjóðlegum stórfyrirtækjum? Íslenskir skattborgarar, sem halda þessum ríkisstofnunum gangandi með skattgreiðslum, hljóta í náinni framtíð að kalla eftir úttekt á því hvernig embættismenn ríkisins brugðust skyldum sínum, settu kíkinn fyrir blinda augað og unnu jafnvel gegn þeim verndarhagsmunum sem þeim er að lögum falið að annast. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband